Árekstur við "mafíuna"?

Jæja, löggan komin og farin. Innbrotið formlega afstaðið. Tæknideildin horfin á braut og ljóst er af ummerkjum og því sem var stolið að hér hafa útlendingar átt í hlut, vísast erlent glæpahyski sem gert hefur verið út til að ræna og rupla hér á landi af mafíu eða einhvers konar glæpahyski. Nei, ég er ekki að koma af stað neinni útlendingaparanóju, þetta var það sem löggan sagði. Og annað hús tekið alveg eins í dag niðrí Smáíbúðahverfi.

Silfrið hennar ömmu er því á leiðinni til útlanda, að því að best fæst séð. Meira hyskið...

Vatn á myllu FF, það er nokkuð ljóst.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband