Mánudagur, 26. maí 2008
"Hægri umferð 40 ára gömul"
Æææ, ég er ekki í skapi fyrir svona núna. En ég verð þó að taka ofan hattinn fyrir Mogganum að leyfa menntaskólanemum að koma í starfskynningu og sletta úr pennum sínum á vefnum; og fá borgað fyrir það!
Ég var að enda við að lesa yfir 30 síðna "ritsmíð" þar sem hver einasta setning var móðgun við íslenskt málfar og málskilning, þrátt fyrir háskólamenntun viðkomandi.
Ég þoli ekki meira í bili og neyðist því greinilega til að sleppa því að lesa mbl.is, a.m.k. eitthvað fram eftir degi.
Þá er nú visir.is skárri. Þar má þó ganga að því vísu, að ein og ein frétt sé vel skrifuð.
![]() |
Hægri umferð 40 ára gömul |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 25. maí 2008
Eurovision umræðan heldur áfram
Sko, ef t.d. Rússar eru 35% íbúa "sjálfstæðra" lýðvelda fyrrv. Sovétríkjanna og kjósa eins og "mofos" er ljóst hvaða ríki fær 12 stig. Þetta er bara svona einfalt.
Lag Rússans var ekki slæmt, eðlilega ekki, en mörg lög voru miklu betri. Og við hlutum 12 stig frá Dönum, ekki aðeins vegna vináttu okkar og Danans og e.t.v. svipaðs tónlistarsmekks, heldur líka vegna þess að þúsundir Íslendinga búa í Danmörku og hamast þar á sms-hnöppunum.
Til þess að sigra í Eurovision þurfum við að stofna sjálfstæð ríki á Heimaey, Surtsey, Eldey, Viðey, Engey, Flatey á Breið, Svefneyjum, Vigur, Æðey....osfrv., og flytja þjóðernissinnaða Íslendinga, t.d. skipta félögum Frjálslynda þjóðernisflokksins niður á þessi "nýfrjalsu ríki".
Annars eigum við engan séns, ja, nema ef keppnin skiptist í tvennt: West Eurovision og East Eurovison. Önnur leið er að fá FLugleiðir, Atlanta og Iceland Winepress til að hjálpa til; flytja c.a. 275.000 Íslendinga í frí til evrópskra smáríkja, t.d. Andorra, San Marínós og annarra mínus 10 milljóna landa utan Skandinavíu, láta þá fá GSM og láta þá kjósa ÞAR.
![]() |
Söngvakeppnin gekk fram af Sir Terry |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. maí 2008
Winehouse í meðferð til Ísraels
Ok, fyrsta skrefið ætti að vera að skipta um nafn: Það að heita "Vínbúð" (Vínhús) er ekki alveg ávísun á bindindi. Í öðru lagi, ég held að hún myndi snarlega þorna upp með því að flytjast til Saudi-Arabíu í nokkra mánuði.
En ef þetta gengur ekki í Ísrael er stutt yfir til Gasa...
![]() |
Winehouse í meðferð til Ísraels |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. maí 2008
Grant rekinn
Afturendafall og hrákadella John Terrys hefur nú kostað Grant starfið. Hann hefði vísast fengið að hanga áfram hefði Terry skorað úr vítinu, en svona er þetta.
Er þá ekki Móri að taka við Inter og Mancini við Chelsea? Eða getur verið að Rijkaard verði næsti stjóri Chelsea?
Ég myndi fagna því, enda myndi þá hið leiðinlega 1-0 varnarlið Chelsea fara að spila almennilegan fótbolta.
![]() |
Grant rekinn frá Chelsea |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. maí 2008
"Getum alveg unnið þetta"
![]() |
Getum alveg unnið þetta" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. maí 2008
Hefðbundinn erill
![]() |
Hefðbundinn erill og 11 í geymslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. maí 2008
40 ár til hægri
Jæja, 40 ár frá þeim merka tíma, þegar landsmenn skiptu yfir í hægri umferð. Sú breyting hefur reynst vel, enda jafnan breyting til batnaðar þegar vinstri sinnar færa sig yfir til hægri. Bretar og fylgihnettir þeirra keyra þó ennþá vinstra megin, en kannski það breytist amk á eylandinu þegar Íhaldsflokkurinn kemst til valda í næstu kosningum og kemur hálf-vinstra liðinu frá völdum.
Þegar ég bjó í Englandi varð ég að nota smá aulahúmor á þennan mismun á hægri og vinstri, og smá lingústík. Til að mynda seig hressilega í enska ungfrú, sem ég átti þá töluvert vingott við, þegar ég sagði að við Íslendingar færum ferða okkar keyrandi "on the "ræt" side of the road". Nú, hún taldi vitaskuld að þar hefði ég átt við "réttu megin" og innst inni gerði ég það, en gleymdi skamma stund að "ræt" getur einnig þýtt "hægra megin". Ótrúlega gaman að djóka aðeins í Tjöllunum með allskonar aulahúmor.
Það þarf varla að taka fram að við hættum saman skömmu síðar. Ég á því góðar minningar frá hægri umferð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 23. maí 2008
Lúðvík Bergvins ánægður

![]() |
Lúðvík: Niðurstaðan í takt við sjónarmið Samfylkingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. maí 2008
Stormsker all in á Stefán Hilmars
Jæja, deila þeirra Sókratesarfélaga heldur áfram. Stormsker segist hafa gert Stefán frægan. Stefán þvertekur fyrir það og Stormsker svarar fullum hálsi, "all in" eins og við segjum það í skákinni. Ætli hann sé að stúdera dónaorð á kvöldin með Torfa Stefáns?
Ég skal bara útkljá málið. Easy. Ég fylgist ekki vel með músík, hef aldrei gert. En 1986 byrjaði ég að starfa með skólanum í Litaveri, að selja dúka, teppi og svoleiðis stuff. Fyrsti kúnninn var Þórir Baldursson, sem allir þekkja, og síðar sama dag eða daginn eftir kom ungir maður að kaupa smá dúk fyrir ömmu sína. Hann hét Stefán Hilmarsson...og ég vissi vel hver hann var, ég sem hlustaði nánast aldrei á Rás 2. Vormenn Íslands! Málið dautt.
Ergo: ef ég þekkti Stefán Hilmarsson vegna söngferils hans 1986, var hann þegar orðinn frægur.
Málið dautt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. maí 2008
Stjórnin eins árs

![]() |
Ríkisstjórnin ársgömul |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)