Hvala-safnið!

Ég get auðvitað ekki skorast undan því, að lýsa yfir stuðningi við hvala-safnið.

Annars er fyrrv. spænskukennarinn minn með merkilegt safn þarna á Húsavík, ekki síður merkilegt en hvala-safnið.

Hvala


mbl.is Ríki og sveitarfélög á Norðurlandi eystra semja um menningarsamstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eggert og co í mál við fyrri eigendur?

Það hlýtur að vera. Þarna fara annars 700 milljónir í hafið. Og rúmlega það. Og jafnvel Bjöggi eldri gæti notað þá peninga í eitthvað.
mbl.is West Ham sektað um 5,5 milljónir punda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sverrir Hermannsson á lista

mih_164178Jæja, gamli maðurinn tekur sæti á listanum í sínu gamla (stækkaða) kjördæmi. Heiðurssætið, hvorki meira né minna.

En af hverju er það frétt, að gamall stjórnmálamaður taki heiðurssæti á lista? Eru ekki fleiri slíkir á öðrum listum, án þess að þess sé getið sérstaklega?


mbl.is Sverrir Hermannsson í heiðurssæti Íslandshreyfingarinnar í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björk lekur

Spurning hvort einhver hafi kallað út slökkviliðið með dælurnar frægu?
mbl.is Björk lekur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Njálsgötumálið: Misskilningur fjölmiðla

Ég hef það eftir óáreiðanlegum heimildum, að þetta sé allt saman misskilningur. Íbúarnir séu í raun ekki að mótmæla komu heimilislausra í hverfið, því fái það inni á Njálsgötu nr. sjötíu og eitthvað, eru þeir ekki lengur heimilislausir.

Staðreyndin er víst sú, að nýjasta skoðanakönnun Capacent/Gallups sýni, að 64% heimilislausra styðji KR og 74% styðji Liverpool í enska boltanum.

Með þetta í huga, er ég, fyrrv. íbúi við Njálsgötu og Bergþórugötu, farinn að skilja betur hvers vegna íbúarnir við Njálsgötu vilja ekki fá þetta lið í hverfið.


Pretty Woman

Hann hefur sennilega misskilið þetta, haldið að hún væri vændiskona.
mbl.is Indverskur dómstóll gefur út handtökuskipun á Richard Gere
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón eða séra Jónína

Jæja, í mínum huga breytir engu þótt nefndarmenn hefðu ekki vitað um þessi tengsl umsækjanda og Jónínu Bjartmarz ráðherra. Svona lagað á ekki að gerast. Þessi útlendingur hefur ekkert, að mér vitandi, neitt sem afsakar það, að fá undanþágu eftir aðeins 15 mánuði á dvalarleyfi námsmanna.

Ég skil ekki alveg hvers vegna þessi kona átti að ganga fyrir öðrum, sem höfðu kannski dvalið hér mun lengur og uppfyllt skilyrði laganna betur.

En ef kona þessi hafði sérstakar aðstæður, hvaða aðstæður voru það?


mbl.is Nefndarmenn hafi tekið fram að þeim hafi verið ókunnugt um tengsl Jónínu og umsækjandans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvót dagsins

kemur af www.andriki.is

Alþýðuflokkurinn er horfinn og formaður hans er nú sendiherra Íslands í Svíþjóð. Í staðinn er krötum ætlaður flokkur sem er svo einkennilegur samsetningur að helstu einkenni hans eru að þar stunda alþýðubandalagsmenn tækifærismennsku undir stjórn kvennalistans.


Í sömu knérun?

ogmundurÆjá, VG hamaðist gegn tilveru Alcan í Straumsvík, en sníkir síðan pening af fyrirtækinu.

En VG hamast líka gegn einkabílnum, en þiggur 300.000 kall frá Brimborg?

Hverjir fá næst sníkjubréf frá VG? Bankarnir?


mbl.is Brimborg styrkir alla stjórnmálaflokka um 300 þúsund krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svarti listinn!

1. Myndir með Anthony Hopkins

Wink Hvalur hf mun í staðinn styrkja dreifingu á Moby Dick Cheney með japönsku tali en íslenskum texta.


mbl.is Anthony Hopkins tekur þátt í herferð gegn hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband