Meira rasssæri?

Eða mun strákurinn fá að spila? Kemur í ljós!
mbl.is Eiður í leikmannahópi Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Al-Kaída sigruð?

Einmitt. Ég trúi þessu svona rétt mátulega. En ef þeir eru sigraðir nú, koma þeir bara aftur. Málið dautt.
mbl.is Segir Al-Qaeda liðsmenn sigraða í Bagdad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eyðni ólæknanleg?

Menn hafa nú í 20 ár rifist um eyðni, til eða frá. Sumir segja, að þetta sé bara enn einn sjúkdómurinn, sem fundin verði lækning við. Aðrir telja að hér sé eitthvað nýtt og meira á ferðinni.

Eftir 20 ára þrotlausar rannsóknir eru menn, að því að virðist, engu nær. Lyf hafa verið fundin til að draga úr áhrifum HIV veirunnar, en skv. þessu er ekki von á beinni lækningu í náinni framtíð. Læknavísindin standa víst á gati.

Og kannski eftir 20 ár, þegar lækning hefur e.t.v. fundist, kemur bara nýr sjúkdómur, jafnvel enn verri, fram á sjónarsviðið.

Maðurinn hefur með lifnaðarháttum sínum og siðvenjum tekið stóra stökkið inn í nútíðina, ja, t.d. eru lifnaðarhættir okkar gjörbreyttir nú eða um 1980, þegar ég var að komast á unglingsárin. Heimurinn hefur breyst og mennirnir með.

En e.t.v. eru læknavísindin dálítið á eftir í framþróuninni, þó vissulega hafi margt áunnist.


mbl.is Engin lækning fundin þrátt fyrir 20 ára baráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur Silvía Nótt fram í Kastljósinu?

Úff, ég vona ekki, þó leikkonan að baki hennar sé ágæt í eigin búningi.
mbl.is Frá Silvíu Nótt í Kastljósið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykingar á Tapasbarnum

Var verið að mótmæla reykingabanninu?


mbl.is Reykfylltur veitingastaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel valið hjá ÖBÍ

Valið á Halldóri Sævari Guðbergssyni er skynsamlegt. Þetta er afar góður drengur, duglegur og ber hag fólks fyrir brjósti einlæglega.

Ég óska ÖBÍ til hamingju. Þetta var vel kosið.

Ég óska Halldóri jafnframt til hamingju með nýja starfið. Ég efa ekki að hann eigi eftir að standa sig vel.
mbl.is Halldór Sævar Guðbergsson kjörinn formaður ÖBÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað - stórkostleg vísa

Fékk eftirfarandi sent frá Kokknum: 


 

Vonandi er það öllum ljóst að upplýsingar úr sjúkraskrám eru og verða aldrei birtar á netinu né á öðrum opinberum vettvangi. Þó verður hér gerð undantekning frá þeirri reglu með samþykki viðkomandi sjúklings. Sagan er dagsönn, um það getur vefsmiður vitnað.

Bóndi úr Laxárdalnum kom til læknis í Búðardal. Þegar læknirinn innti manninn eftir því hvað að honum amaði rétti hann honum blað með eftirfarandi texta:
   
Nú líður mér illa,
lasinn er ég,
margs konar kvilla
merki ber ég,
um allan skrokkinn
frá skalla að il
mér finnst ég alls staðar
finna til.
Þessi andskoti birtist í ýmsum myndum,
- fjölbreytnin er með ólíkindum:
í vindverkjum sterkum,
vondu kvefi,
ræmu í kverkum
rennsli úr nefi,
svo er þrálátur hósti
og þyngsli fyrir brjósti,
en beinverkir þjarma að baki og fótum,
og það brakar í öllum liðamótum,
þar grasserar sem sé giktarfjandi,
sem almennt er talinn ólæknandi.
Þá er sljóleiki í augum,
en slappelsi á taugum,
og svo þessi eilífa syfja,
eða sárindin milli rifja,
og óþægindi í einhverri mynd,
oftast báðu megin við þind.
Yfir höfðinu er þessi þráláti svimi,
en þreyta gagntekur alla limi.
Loks fylgir þessu lítill máttur,
óreglulegur andardráttur,
bólgnir eitlar og blásvört tunga,
bronkíttis í hægra lunga.
Svo safnast á skrokkinn skvapkennd fita
þótt ég skeri við nögl hvern matarbita,
og í sjö vikur hef ég, segi og rita,
sofnað með köldu og vaknað með hita.
Samt hefði ég aldrei uppphátt kvartað,
ef lasleikinn væri ekki lagstur á hjartað,
þar hef ég nú stöðuga stingi,
sem stafa af of háum blóðþrýstingi.
Og lon og don
hjá læknum er ég,
með litla von
frá langflestum fer ég,
því að lítið er gagnið
að geislum, bökstrum og sprautum
við svona fjölbreyttri
vanlíðan og þrautum.
Það ber helst við
að mér batni á köflum
af brúnum skömmtum
og magnyl töflum.
Sem sagt: ég er á eilífum hlaupum
milli sérfróðra lækna og í lyfjakaupum.
Já, útlitið er ekki gott.
Ég þoli orðið hvorki þurrt né vott,
það er að segja fæði.
Og friðlaus af fjörefnaskorti
til fróunar mér ég orti
þetta kvalastillandi kvæði.
                             
Böðvar Guðlaugsson

Varla þarf að taka það fram að læknirinn gat ósköp lítið fyrir sjúklinginn gert. Höfundur ljóðsins mun vera móðurbróðir bóndans og vita þá kunnugir við hvern er átt.

Á að kæra Rauða krossinn, SÁA og önnur veðmálafyrirtæki?

Það er spurning. Þessi fyrirtæki, sem hafa það hlutverk að hjálpa fólki, hafa ásamt öðrum eyðilagt líf hundruða Íslendinga með því að lauma þessum spilafíknarvélum sínum hist og her um landið.

En en ég held þó að lagaheimildir skorti. En persónulega hef ég amk litla samúð með SÁÁ sem gefur sig út fyrir hjálpa fíklum, jafnvel þeim sem félagið hefur búið til sjálft.
mbl.is Í mál við veðmangarann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til opinberra starfsmanna í Bretlandi

Ef þið elskurnar mínar hafið einhverjar milljónir aflögu megið þig gjarnan senda þær á eftirfarandi heimilisfang:

Snorri Bergz
Reykjavik
Iceland

 


mbl.is Hundruð milljóna á rangt heimilisfang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varnir Íslands

Ég hef lengi haldið því fram, að mesta hættan við öryggi Íslands og Íslendinga komi frá Svíþjóð. Þá ég ekki aðeins við ytra öryggi, heldur einnig verndun og viðhald íslenskrar menningar og siðvenja. Af einhverjum ástæðum hafa menn, sem flutt hafa til Svíþjóðar, breyst í Svía og síðan orðið fimmta herdeild þeirra á Íslandi.

Ef við ætlum okkur að sigra Svía reglulega í handbolta eða fótbolta á komandi árum verðum við að stöðva þessa fimmtu herdeild sænskrar ómenningar. Framtíð Íslands er í húfi.
mbl.is Svíi grunaður um hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband