Deilt um kostunarsamning Björgólfs og RUV

Leikskáld og handritshöfundar fagna þessum samningi vitaskuld, enda fá liðsmenn félagsins nú frekari tækifæri til að selja afrakstur vinnu sinnar til útvarps/sjónvarps miðaldra/aldraðra landsmanna.

En hollvinasamtök RUV mótmæla, því þau telja, eða amk einhverjir forsvarsmenn samtakanna, að Bjöggi sé að kaupa sér ítök.


Sko, ef hollvinasamtökin hafa virkilega hagsmuni RUV í huga, skil ég ekki hvers vegna þau gagnrýna það, að maður úti í bæ sé að gefa nokkur hundruð milljónir til starfseminnar.


Þessi hollvinasamtök 365 ættu frekar að koma fram undir réttu nafni.
mbl.is Fagna samningi RÚV og Björgólfs Guðmundssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir af snillingnum

Þetta eru góðar fréttir, en koma þó ekki sérlega á óvart. Hann hefur fengið gríðarlega mörg tækifæri hjá Arsenal og hefur nýtt sér þau. Allt leikur í lyndi, hann spilar betur en nokkru sinni og er aðeins 20 ára.

Mér sýnist Arsenal hér hafa gulltryggt sér besta miðvallarleikmann í heimi næstu 12-13 árin amk. Og liðið fékk hann fyrir smáaura.
mbl.is Fabregas vill ljúka ferlinum hjá Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskur hlaupinn í læknana?

Já, þetta getur vel passað. Ég þekki t.d. lækni sem er frekar hreistugur í framan og annar, sem kemur jafnvel stundum upp til að anda.


En ég hafði þó talið, að þar væri lax hlaupinn í læknana, enda margir læknar mjög harðir í laxveiðinni. En ekki grunaði mig að menn gætu séð sjóbirtinga í læknum.
mbl.is Sjóbirtingar sjást í læknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eddan og einhvers konar pælingar

Og Edda fékk ekki Edduna!?


En mín persónulega skoðun á Eddunni er, að þetta sé nú meira pípið. 


Ég fór allt í einu að huxa um í kvöld, hver væri eiginlega tilgangur lífsins. Hvernig verða menn hamingjusamir og hvað er það sem veldur? Mín niðurstaða er, eftir skamma umhugsun, að Eddan komi því máli ekkert við.


Ergo: þetta er bara enn einn bautasteinninn í tilgangsleysi þeirrar tilveru, sem búin er til í Hollywood og eftirlíkingargerviveröldum víða um heim.


Ef menn hugsa um málið í samhengi tíma og eilífðar, hvaða máli skiptir það að hafa hlotið Edduna? Í því samhengi er þessi atburður, Edduhátíðin, ekkert mikilvægari en það að fara á klósettið.


Varla taka menn gripinn með sér þegar þeir deyja? Æ, mér er meinilla við hátíðir og verðlaunaafhendingar, sérstaklega þegar er verið að búa til platform til að hlaða lofi á fólk, sem er nú lítið meira en la la og hefur afskaplega lítið fram að færa í víðara samhengi.


Æ, ég er farinn heim að sofa. Svona pælingar fækka bara hárunum á hausnum og ég má ekki við frekari hárföllum.


mbl.is Kvikmyndin Foreldrar fékk flest Edduverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólaljósin

Jæja, þá eru þau komin. Jólaljósin eru komin. Þá fer að styttast.


Það skásta við þetta er, að ljósin lýsa upp myrkrið, færa dálitla birtu í svartasta skammdegið.


En meðfylgjandi ljósunum kemur auglýsingaflóð og margt það, sem gerir aðdraganda jólanna gjörsamlega óþolandi.


Ég hef ekkert á móti skammdeginu, og enn síður hef ég horn í síðu jólaljósa. En ég þoli ekki þessa kaupmannahátíð, sem á ekkert skylt við jólin. Ég vil vitna í gamlan félaga sem sagði svo c.a. 1986: "Ég vildi helst hætta að taka þátt í þessari vitleysu".


En það er hægara sagt en gert. Maður verður víst að leika með, a.m.k. kaupa gjafir handa nærliggjandi börnum. Það er mér að vísu mikil gleði, því litlu krakkarnir eru yndisleg og maður verður alltaf eitthvað svo mjúkur þegar maður gaukar einhverju að þeim, um jól eða á öðrum tímum.


En hvað á að gefa í jólagjafir þetta árið.


Ég auglýsi hérmeð eftir hugmyndum að jólagjöfum handa börnum á öllum aldri, frá um 4-13 ára.





mbl.is Jólaljósin sett upp í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Níðstöng

Mér finnst þetta ósmekklegt.


Ef menn vilja virkilega reisa svona níðstangir í Reykjavík hef ég nokkra betri staði í huga:

1. KR-heimilið
2. Hverfisgata, gegnt skrifstofu Björns Inga í Framsóknarhúsinu LoL
3. osfrv
mbl.is Níðstöng reis á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrar myndir frá EM í Kemer, Antalyu, Tyrklandi

Captain Reykjavík í actionEM og fleira 107

 

EM og fleira 081EM og fleira 076


Þolir einhver Tom Cruise?

Tom Crús var unglingastjarna, sem varð stjarna með myndum eins og Endless Love, Risky Business og síðast en ekki síst Top Gun og Color of Money.


Hann varð síðan ofurstjarna með Rain Man og Born on the 4th of July, bara svo maður nefni myndir sem maður man eftir. Og síðan fylgdu auðvitað margar fínar myndir á eftir.


Hann hefur nokkuð lengi verið talinn með áhrifamestu mönnum í Hollywood. En sumir hafa sett fyrir sig það, að hann sé meðal foringja Vísindakirkjunnar, sem þykir í hæsta máta vafasöm og er, að mínum dómi, lítið meira en peningaplokk.


Og á síðustu árum, eftir að hann byrjaði með Katie Holmes, hefur hann einhvern veginn fengið mjög marga upp á móti sér, bæði meðal almennings og leikara.


Það kemur mér ekki á óvart. Að mínum dómi er maðurinn ekki með öllum mjalla og er óþolandi hrokagikkur, sem ætti helst af öllu að loka inni einhvers staðar.



Ég skil Redford og Streep, tvo af virtustu leikurum heims, að fá nóg af þessum fíflalátum í Crús og vilja sem minnst við hann tala og lítið saman að sælda.


Ég vitna nú bara í skáldið sem sagði: "Út með jólaköttinn. Hann á ekki lögheimili hér."


mbl.is Redford og Streep þola ekki Tom Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæfileikaríkur brjálæðingur

Ok, Barton kominn enn einu sinni í fréttirnar fyrir ruddaskap, innan vallar eða utan. Slæmt að þessi hæfileikaríki fótboltamaður skuli eyðileggja fyrir sér aftur og aftur vegna svona framkomu.

Enska knattspyrnusambandið verður að fara að tukta strákinn almennilega til og dæmann í langt bann, svo hann læri vonandi af þessu.

En svona menn koma óorði á fótboltann.
mbl.is Barton á yfir höfði sér þriggja leikja bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalistar og fasistar

Þetta var nú ekkert merkilegt, sem einræðisherrann Chavez sagði, a.m.k. ekki með "face value" skilgreiningu. Ég meina, Klerkurinn kallar mig oft fasista af því ég er ekki sósíalisti, og Svampurinn kallar mig nýnasista, af því ég er á móti Hamas, Taliban og öðrum öfgasamtökum íslams. Svona er bara hugtakanotkun öfgafullra sósíalista; þeir sem ekki eru sósíalistar eru fasistar. Málið dautt.


Þessi skilgreining er þó rugl, því "fasismi" grundvallast á einræðishyggju og Chavez og aðrir sósíalistaleiðtogar eru helstu merkisberar slíkra skoðana. Nær eini fasisminn, sem ég tek eftir, kemur frá sósíalistum og herforingjum, eins og í Burma og Pakistan. Síðan má nú svo sem nefna leiðtoga flestra arabaríkja í sama vetfangi. En það kom úr hörðustu átt hjá "fasistanum" Chevez að kalla forsætisráðherra í lýðræðisríki "fasista", bara af því að hann er ekki sósíalisti og var/er vinsamlegur Bandaríkjunum. Þetta sýnir kannski best, hvurs lags hugarfar er ráðandi hjá þessum mönnum.


En það sem Juan Carlos hefur vísast tekið inn á sig er hin sögulega tenging. Fasistar Francos réðu öllu á Spáni frá því í borgarastríðinu 1936-1939 og fram til c.a. 1975, þegar Franco lést. Því hefur þessi fasistatenging vísast sært kónginn (sem var nú víst ekki svo óvinsamlegur Franco á sínum tíma! -- ef ég man rétt).


En ég tek ofan fyrir kónginum fyrir að hafa sagt þessu fífli að þegja.
mbl.is Spánarkonungur sagði Chaves að þegja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband