Sjóræningjalaust á Reykjaneshrygg

piratesÞað er ákveðið vandamál í íslenskunni að eiga ekkert betra orð yfir "pirates" en sjóræningjar. Þetta orð var notað yfir eiginlega sjóræningja, eins og þá sem eru nú við Sómalíu, þá sem ræna skipum, ráðast upp í þau og gera usla. Þetta eru sjóræningjar.


Það þyrfti að vera til orð á íslensku yfir þá sem stunda ólöglegar veiðar, það að kalla þá "sjóræningja" er vafasamt, enn frekar þegar talað er t.d. um niðurhal og annað á netinu, þegar enskurinn segir "piracy". Hvernig geta menn stundað sjórán í tölvum?

Á íslensku má alltaf finna svar. Vinsamlegast finnið nú svarið...


mbl.is Engin sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

......Veiðiþjófar, Captain Short Sneott Silver!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.6.2008 kl. 13:42

2 Smámynd: Snorri Bergz

En það er talað um sjóræningjaveiðar, sbr. þessa frétt.

 Já, en þeir sem dánlóda stuffi með torrent? Myndaþjófar Villi ungi?

Snorri Bergz, 23.6.2008 kl. 15:10

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Torrent, hvað er það gamli Snorri? Ég er svo gamall að ég fylgist ekki með. 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.6.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: Snorri Bergz

Ja, Villi ungi, ég sá bara myndina af þér :)

Snorri Bergz, 23.6.2008 kl. 22:25

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ertu að segja að myndin sé ekki af mér, að ég hafi sett falsaða mynd í passann minn fyrir tæpum 28 árum? Það þykir mér frekar torrennd staðhæfing.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.6.2008 kl. 04:40

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hvað með að kalla niðurhalara Niðursetninga eða bara þjófa?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.6.2008 kl. 04:43

7 Smámynd: Snorri Bergz

Neinei, Villi, ekki misskilja. Ég var bara að commenta á hversu góð myndin er þarna af þér...en þarna varstu ungur!

Snorri Bergz, 24.6.2008 kl. 10:19

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hefur þú séð nektarmyndina sem ég er með nú? http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/#entry-575572 

ekki af sjálfum mér, rólegur nú....

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.6.2008 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband