Hizb'Allah að æsa sig

Ja, það er nú talið að vinir Hizb'Allah í Sýrlandi hafi nú verið eitthvað viðriðnir þetta morð á einum grimmasta terrorista samtímans. En auðvitað veit maður ekki hvað er rétt og hvað ekki í þessum fréttum.

En hitt veit ég, að nýlega komu lögreglusveitir í Evrópu upp um samsæri Hizb'Allah um að myrða eða ræna háttsettum stjórnmálamönnum eða öðrum "major figures" í Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi og Ítalíu, eins og komst upp í árás frönsku lögreglunnar á bæli terroristanna í París. Um þetta má lesa í nýlegu Spectator. Og franska leyniþjónustan hafði semsagt frétt frá Beirút að Nasrallah hafi kallað saman fund foringja sinna og sagt þeim að "vekja" svokallaðar "sellur" Hizb'Allah í Evrópu og láta þær hefjast handa við þessa áætlun.

Ég held að Hassan Nasrallah, sem er einn helsti ófriðarseggur heimsins þessa dagana, ætti að líta í eigin barm.
mbl.is Leiðtogi Hizbollah segir Ísraela hóta nýju stríði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband