Fáránlega dýrt bensín

Nú hlýtur Ríkið að skoða það alvarlega að lækka álögur sínar. Ekki nóg með að bensín hækki, heldur eru tryggingar orðnar mun dýrari en áður, svo og annað sem viðkemur bifreið, t.d. smurning og skoðun, osfrv.
mbl.is Eldsneyti hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Hólm Ármannsson

já við skulum vona að eitthvað verði að gert núna... þar sem bifreiðin er orðinn langdýrasti útgjaldaliður heimilanna, og ríkið tekur inn enn meiri tekjur en nokkru sinni:)

Arnar Hólm Ármannsson, 19.2.2008 kl. 13:50

2 Smámynd: Snorri Bergz

Já, ég var að borga smurningu um 10.000, bifreiðaskoðun 6.000+ og síðan gjöld og allskonar greiðsur; og maður er alltaf að taka 5.000 kr. bensín á miðlungsstóra fólksbílinn.

Það er orðið lúxus að eiga bíl...aðeins á færi bankastarfsmanna og iðnaðarmanna? :)

Snorri Bergz, 19.2.2008 kl. 14:15

3 identicon

Arnar - af hverju segirðu að ríkið taki inn meiri tekjur en nokkru sinni?  Eru ekki nokkur ár síðan þeir skiptu yfir í fasta krónutölu af hverjum lítra í stað þess að setja prósentutölu á?  Jú, auðvitað munar einhverju með virðisaukaskattinn en það er ekki svo mikið.

Snorri - Ég skil ekki af hverju fólk þarf alltaf að vera að ráðast á ríkið.  Ekki eru það þau sem ákveða endalaust að okra á fólki og hækka verðin upp úr öllu valdi.

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 14:16

4 Smámynd: Snorri Bergz

Ríkið já, því það er engin leið að koma neinu viti fyrir olíufélögin. Það er margreynt. Eina leiðin er að reyna að fá ríkisgjöldin lækkuð, enda tekur ríkið helming eða meira af hverjum lítra beint í vasann, ef ég man rétt.

Snorri Bergz, 19.2.2008 kl. 14:24

5 identicon

Þá á fólk bara að hætta að keyra bensínbílinn. Það er ekki eins og það sé ekki hægt (-: Þá um leið geturðu hætt að skipta við olíufélögin.

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 14:30

6 Smámynd: Morten Lange

Tek undir með Braga Þór.  Er fólk sem hrópa um hátt bensínverð kannski ekki fylgjandi markaðshagkerfið ?

Þegar verð hækka þá  eigi samkeppnisstaðan hjá keppinautunum að batna. 

Keppinautar er  samnýting bíla, hjólreiðar, almenningssamgöngur, ganga, rafmagnsbílar, og lausnir sem púsla þessu öllu eða sumt af því saman.

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að bensínverð hækki. Mátti sjá að þetta væri í aðsigi fyrir mörgum, mörgum árum síðan. Eftirspurnin að hækka um allan heim, og Íslendingar og Evrópubúar eiga sín þátt í því, ásamt Kínverjum ofl. 

Verðið á eftir að hækka miklu meira, að öllum líkindum.  Það sem ríkið þarf að gera er að  aftengja bensínverð frá verðbótum og þess háttar, eða helst hætta þessu með verðtryggingu yfirhöfuð.

Morten Lange, 19.2.2008 kl. 14:45

7 Smámynd: ViceRoy

Eini gallinn með það að af að Ríkið lækkar sínar álögur, þá verða þeir að treysta því að olíufélögin lækki í samsvarandi verð, nákvæmlega eins og var með þegar vaskurinn var lækkaður í 7%.  Þá fyrst myndi virkilega sjást hversu mikið verðsamráð væri hér í gangi hjá olíufélögum.

Vil ég nú líka benda á að Ríkið tekur jú 70 kall af hverjum lítra, og ef við skoðum kvittanir fyrir hvern lítra, þá er 24% vsk af heildarupphæðinni, ekki af upphæðinni sem eftir er, eftir að 70 krónurnar eru teknar. Þ.a.l. er tvísköttun í gangi.

 Ef þú kaupir 10 lítra (um 1.400 kr.) þá fara 700 kr. til ríkis, og af því 336 í vsk, = 1136 kr.  Eftir situr 364 kr af þessum 10  lítrum sem fara til olíufélagsins.  Og ef við reiknum það niður, 36,4 kr. á hvern lítra sem olíufélagið græðir (eða svo að segja, því meira er nú eftir).

Ekki að ég sé að afsaka neitt fyrir hönd olíufélaganna, en þá er eftir launakostnaður, rekstrarkostnaður (olíufélögin verða jú að kaupa það eldsneyti sem þeir selja), og svo skatturinn sem á fyrirtæki leggjast, sem nú er 18% (lækkar í 15% bráðlega).  Og svo auðvitað verða þeir að hagnast eitthvað á hverjum seldum lítra, það bara segir sig sjálft.

 Þó svo 18% hljóti jú auðvitað eingönu að leggjast á hagnað fyrirtækis, þá erum við samt að tala um að ríkið tekur meirihlutann af þessum krónum inn til sín, en ekki olíufélögin. Þannig er nú málið, 70 kr. föst upphæð af hverjum lítra, svo 24% vsk á heildarupphæð, og svo skatturinn á fyrirtækið.

Hví er verðið svona svakalega svipað hjá félögunum? miðað við 36 kr. ca á hvern lítra(gróflega reiknað auðvitað), og svo ofan á það, þá er innkaupaverð er hátt, þá finnst mér ekki skrýtið að þeir leggi svona mikið ofan á eldsneyti.

ViceRoy, 19.2.2008 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband