En hvað segir Inga Jóna?

Var að lesa Mannlíf tbl. með steinamynd af Davíð Oddssyni utaná. Þar segir hreinlega, að Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona Geirs Haarde, stjórni í raun Sjálfstæðisflokknum og sé að plotta til að koma "hirðsveinum" Davíðs úr húsi.


Ef satt er, langar mig til að spyrja, hvort Inga Jóna hafi samþykkt þetta? Wink


Annars kemur mér voðalega lítið við hver stjórnar bakvið tjöldin. Mín vegna má Inga Jóna stjórna í laumi, ef vel er stjórnað.


Annars held ég að í Mannlífi sé verið að gera lítið úr Geir. Ég held nefnilega að hann sé ekki jafn vitlaus og þar er haldið fram, og hafi í raun sjálfstæðan vilja.


En hvað veit ég? Ég hef aldrei tekið þátt í pólítík.


mbl.is Ekkert athugavert við félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband