Morkinn laugardagur

Jæja, morkinn laugardagur. Veðrið þó með skásta móti, þ.e. engin rigning og það sést jafnvel til sólar héðan úr Faxafeninu.


Já, ég þurfti að flýja skrifstofuna. Ég er í sama húsi og Rafhönnun og þeir kumpánar fóru að endurnýja símkerfin hjá sér og skáru á línuna mína. Og ekki í fyrsta skipti. Þeir gleyma því alltaf að mínar lagnir liggja um sömu lagnir og þeirra; og þeirra kaplar liggja um skrifstofuna mína. En þeim er sama. Síðast var ég viku án internets og hlaut aðeins leiðindi, lygasögur og stæla frá þeim í Rafhönnun. Þá lá við að ég flytti út. Kannski ég geri það núna. Svona gengur þetta ekki lengur að þeir telji eðlilegt að skera á símann minn þegar þeim hentar og það án þess að láta mig vita eða spyrja leyfis.


Ég fór núna í TR og sit hér frekar morkinn. Aðstæður ekki sérlega góðar, en allt í lagi. Og internet sambandið töluvert verra en hjá mér á skrifstofunni. En þetta hefst allt.


Þetta er bagalegt því ég er að falla á tíma með verkefni. Var að vinna í heimasíðu, að þessu sinni að búa til speglasíður á þýsku, frönsku og spænsku. Ég hafði þegar skrifað þessar síður á íslensku og ensku, og nú var komið að hinum þremur. Sami texti, en á þremur öðrum málum. Ég var nú stúdent í frönsku og spænsku, en datt ekki í hug að reyna að þýða þetta, svo Skjal reddaði þessu. Snillingar þar á bæ.


En þegar ég var að setja inn, rofnaði sambandið. Gjörsamlega pirraður á þessu rugli hjá nágrönnum mínum í Ármúlanum. Þótt þeir séu stórfyrirtæki en ég bara einyrki, hef ég mín réttindi fyrir því. Þeir geta ekki vaðið svona yfir mann og það ítrekað. Og biðjast ekki afsökunar, hvað þá bæta skaðann, en síðast tapaði ég viku. Og það munar um, þegar maður fær fyrir salti í grautinn með því að vinna on-line.


Og þeir vildu ekki viðurkenna að þeir hefðu neitt með þetta að gera, jafnvel ekki þegar gaurinn frá Símanum hafði rekið það oní þá. Þá spunnu þeir upp þá lygasögu að ég hefði skipt um símafyrirtæki og þess vegna hefði sambandið hrunið! Ég skipti síðast um símafyrirtæki þegar ég fór frá Símanum yfir í þáverandi Íslandssíma, þegar Eyþór Arnalds var forstjóri. En þeir héldu sig við þessa sögu og í meira en viku mátti ég þola háðsglósur frá þeim af þeim sökum.

 

En hér er maður kominn í Taflfélagið að dúlla sér. Eiginlega er maður hér sem skákstjóri, því tefla á í dag frestaða skák Davíðs Kjartanssonar og Guðna Stefáns Péturssonar. Og þar sem ég er skráður skákstjóri í Haustmóti TR, verð ég að vera hér hvort sem er.


En jæja, morkinn laugardagur. Úff, ég vildi að það væri sunnudagur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband