Beinar útsendingar

brokeBeinar útsendingar frá Politiken skákmótinu eru nokkuð skemmtilegar. Í dag, í 2. umferð, gerði Lenka Ptacnikova jafntefli gegn Svetlönu Agrest á Norðurlandamótinu í kvennaskák, en mótið er haldið samhliða Politiken Cup.


Í dag eru Guðmundur Kjartansson og Bragi Þorfinnsson báðir í beinni útsendingu í skákum gegn sterkum stórmeisturum, hinn ungi og efnilegi Bragi (mynd til vinstri) gegn Sargissian, grjótsterkum Armena, sem tefldi á Rvk open 2006, og Gummi með svart gegn Íslandsvininum De Firmian frá USA / Danmörku, en hann hefur oft teflt hér á landi.

Vek athygli á þessu, ef einhverjir hafa áhuga. Sjá heimasíðu Politiken Cup.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég tefldi við Braga á Helgarskákmóti á Egilsstöðum fyrir mörgum árum síðan. Hann var ekki nema 11 eða 12 ára, frekar lítill eftir aldri og rétt sá yfir skákborðið í stólnum. Svo var hann með bland í poka og tíndi uppí sig á meðan við tefldum. Ég sá aldrei til sólar og það var ekki vegna vanmats . Ég hef sjaldan verið tekin eins skelfilega í bakaríið. Meira að segja skák mín við Helga Ólafs var meira spennandi

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.7.2007 kl. 01:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband