Föstudagur, 13. apríl 2007
Skoðanakönnun Blaðsins og Magnúsar tveir
Heldur dregur úr fylgi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, samkvæmt skoðanakönnun, sem Blaðið birtir í dag. Fylgi VG mælist 15,5% en var 23,6% í könnun blaðsins fyrir mánuði. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist 45% en var tæp 43% í síðustu könnun blaðsins.
Fylgi Samfylkingar mælist nú 19%, svipað og áður, fylgi Framsóknarflokks mælist 9% eins og í síðustu könnun Blaðsins, fylgi Frjálslynda flokksins er 9% en var 6,1% fyrir mánuði og fylgi Íslandshreyfingarinnar mælist nú 2,4%.
Könnunin var gerð 11. apríl. Úrtakið var 800 manns, svarhlutfall var 91,4% en aðeins 54,7% tóku afstöðu, 36,7% sögðust óákveðin og 8,6% sögðust hlutlaus eða ekki ætla að kjósa.
Vonandi veit þetta á gott. En VG maðurinn hér á Kaffi BSÍ er ekki hress. Og nú fær Magnús Stefánsson á baukinn, Magnús Zero, eins og hann kallar hann. Já, segir hann, það hefur ekki friðvænlegt í heiminum síðan múslimar kenndu Evrópubúum að nota núllið.
"En ef Magnús Stefánsson er Zero", spurði ég, "hvað er þá Magnús Hafsteinsson?"
"Magnús Hafsteinsson er 14-2" svaraði sá gamli og hló.
Ég gæti ekki hafa orðað þetta betur!
Dregur úr fylgi VG samkvæmt könnun Blaðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gott skot hjá VG manninum á kaffi BSÍ, hann átti þá væntanlega við Magnús Þór 14 Magnús Stef 2, eða hvað??
kv. af skaga.
Einar Ben, 13.4.2007 kl. 08:39
Nei, að Magnús Þór væri jafn ánægjuleg sending og 14-2 varð Íslendingum.
Snorri Bergz, 13.4.2007 kl. 09:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.