Mig dreymdi Össur í nótt!

Jæja, fyrri kannanir staðfestar í aðalatriðum. Það kemur manni á óvart, að VG skuli enn eiga inni fylgishækkun. En hörmungar Samfylkingarinnar halda áfram. Í sjálfu sér kemur það minna á óvart -  eða alls ekkert.

Ég tel, að Samfylkingarmenn verði að fara að taka hausinn úr sandinum, ef ekki á að fara mjög illa. Strategía þeirra er röng, í stað þess að nöldra og nöldra, væla út af öllu sem aðrir eru að gera og gagnrýna þá, ætti Samfó að fara að reka jákvæðari kosningabaráttu. Hún ætti að fókusa á þá framtíðarsýn, sem flokkurinn hefur og berjast fyrir hugsjónum flokksmanna. En gallinn virðist vera, að flokkurinn virðist ekki hafa neina fastmótaða framtíðarsýn, enga heildar framtiðarhugsjón, heldur reyna að taka það upp sem vinsælast er hverju sinni. Það hefur nú  komið í bakið á þeim og mun halda áfram að gera það.

Mig dreymdi mjög furðulega í nótt. Mig dreymdi m.a. Össur! Af pólítískum ástæðum tel ég ekki við hæfi að rekja drauminn ítarlega, en kjarninn var, að ný stjórn hafði komist á hér á landi og hafði hún gengið mjög harkalega á réttindi borgaranna, í raun komið hér á hörkulegri einvaldsstjórn fyrir tilstilli erlendra aðila, sem hér réðu öllu og börðu niður allt, sem Íslendingar stóðu fyrir. Undirritaður var starfandi í einum af mörgum andófshópum og hafði Össur fengið það hlutverk frá stjórninni, að ganga á milli bols og höfuðs á þessum "uppreisnarmönnum". En sú atlaga hans hafði endað með því, að honum var  dumpað eitthvert út á Suðurnes,  og endaði draumurinn á því að Össur kom til baka gangandi og mætti mér og sagði: Nú ættir þú að forða þér strákur. Það síðasta sem ég man var, að ég var að pakka í skyndingu helstu persónulegu eigum mínum og var á leið í útlegð.

En það besta við þennan draum var, að ég hafði greinilega misst nokkur kíló. Það versta var, að það hafði Össur líka gert! En hann hélt þó Amish skegginu og slaufunni.

Ef einhver getur ráðið þennan draum, vinsamlegast látið oss vita.

 


mbl.is Samfylkingin með 19,2% fylgi samkvæmt könnun Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TómasHa

Bara martraðir í gangi!

TómasHa, 11.3.2007 kl. 09:25

2 Smámynd: Dante

Í gömlum kerlingarbókum um drauma hefur mannsnafnið Össur verið talið fyrirboði erfiðleika.

Dante, 11.3.2007 kl. 10:17

3 Smámynd: Snorri Bergz

Aha, kemur ekki á óvart svosem. En þetta hefði getað verið verra, mig hefði líka gertað dreymt ...!

Snorri Bergz, 11.3.2007 kl. 10:20

4 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Já ég get ráðið hann,þetta er fyrirboði um hið ókomna og valdníðslan er auðvitað alger á stundum,enginn fær neitt fyrir ekki neitt,þú uppskerð eins og þú sáir þeir sem eru fullir af skít hafa ekkert nema skít að gefa öðrum,What comes around goes around,ekkert er nýtt undir sólinni,og vertu launa þinna virði.Drottinn sagði þú verður ekki saurugur af því sem inn um munn þinn fer heldur því sem út af honum gengur,eigðu góðan dag minn kær.

Virðingafyllst:Úlfar B Aspar.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 12.3.2007 kl. 08:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband