Ótrúleg spenna!

hellirÞetta var eitt mest spennandi Íslandsmót skákfélaga í mörg, mörg ár. Hellismenn eru vel að þessum sigri komnir. Þeir voru einfaldlega með besta liðið, að vísu ekki besta liðið á pappírnum, en stundum er ekki nóg að "fylla liðið af útlendingum" eins og Eyjamenn gerðu. Hellir var reyndar með einn útlending í haust og tvo núna.

Ég missti af síðustu umferðinni, en sá seinni helming hennar á netinu. Sá ég þar greinilega, að Hellismenn voru að ná yfirhöndinni, enda kom í ljós að 6-2 urðu úrslitin. Glæsilegur sigur, sem skrifast fyrst og fremst á góðan liðsanda og mikla stemningu í liðinu. Gunnar Björnsson hershöfðingi Hellismanna stóð sig vel í því, að koma hópnum í gírinn og halda honum á tánum.

 Við TR-ingar, fráfrarandi Íslandsmeistarar, stilltum upp vængbrotnu liði, bæði í haust og aftur nú í mars. Við attum því aldrei möguleika, en héldum þriðja sætinu með góðum sigri í síðustu umferð. Við vorum eina a-liðið, sem ekki stillti upp erlendum málamiðum, en í ljós kom að fjölmargir úr heimavarnarliðinu áttu ekki heimagengt.

Garðbæingar og TRb féllu. Þeir fyrrnefndu stilltu nánast upp b-liði þetta skiptið, en mjög marga vantaði. TR-b leið fyrir veikleika a-liðsins og átti aldrei möguleika. SA-b kom á óvart með góðri frammistöðu allt mótið. A-sveit Akureyrar og Haukar sigldu lygnan sjó lengst af, eins og við mátti búast.

En ljóst er, að við TR ingar þurfum að gera betur næst og reyna að tryggja, að okkar bestu menn mæti betur, efla liðsandann og hugsanlega styrkja liðið eitthvað.

 

 

 


mbl.is Hellir vann Íslandsmót skákfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband