Vandamálið með innflytjendur

polandMenn hafa hér að undanförnu af og til rætt um þau vandamál, sem annars vegar innflytjendur búa við á Íslandi og hins vegar þau, sem samfélagið hlýtur af komu "of margra" innflytjenda. En ég rakst hér á blogginu á skemmtilegan þátt alls þessa. Íslensk-fæddur karlmaður er giftur pólsk-fæddri konu, sem m.a. sér um eldamennskuna á heimilinu. Hvað ætli gerist eftir leikinn Ísland-Pólland í kvöld? Fær kallinn ekkert að borða, eða mun konan fá skeyting og athugasemdir frá kallinum?

Eða eru þetta kannski svo yndisleg hjón, að stríðið Ísland-Pólland í kvöld verður bara rómantískt krydd í tilveruna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Spyrjum Guðjón formann hvernig þessu er háttað á hans heimili

Heiða B. Heiðars, 25.1.2007 kl. 11:10

2 Smámynd: Snorri Bergz

Hehe, góður þessi!

Snorri Bergz, 25.1.2007 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband