Besti vinur konunnar?

Ég hef einlæga samúð með Sölmu í þessu máli. Það er ekkert grín að fá stöðuglega þessi andstyggilegu höfuðverkjaköst. Það þekki ég af eigin raun. En ég stend e.t.v. betur en Salma að þessu leyti, því þegar maður er alveg að drepast, hóar maður bara í mömmu, sem er nuddkona, og hún ýtir á einhverja bletti á fótunum og maður steinliggur eins og rotuð skata og vaknar svo a.m.k. betri ef ekki eldhress.

En a.m.k. yrði mikil sorg meðal karlmanna á "besta aldri" hefði hundurinn ekki komið til bjargar.LoL


mbl.is Hundurinn bjargaði Sölmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband