Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Leifi hættur?
Já, Leifi er hættur með Fylki. Já, líka með leyfi eða í sumarleyfi.
Eða kannski er bara Leifur hættur með Fylki? Maður veit aldrei nú orðið þegar Mogginn á í hlut
![]() |
Leifur hættur með Fylki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Pervertar!
Ok, þetta er nú með því versta. Ef menn ætla sér að vera riðlar á annað borð, mæli ég nú einhverju auðveldara viðfangsefni.
En jæja, ok, burtséð frá útúrsnúningi þá sleppur Inter afskaplega vel, Man Utd og Chelsea líka, en Liverpool og Arsenal eiga frekar erfiða tíð fyrir höndum, sér í lagi Arsenal, sem fær Tyrki (erfiður útivöllur og brjálaður áhorfendur) og Úkraína (óvenju sterkt lið hjá Kiev núna og kaldir vetrar (og langt ferðalag)). Ekki bætir úr, að Porto er mjög sterkt.
![]() |
Riðlar Meistaradeildarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Hún lofaði að þegja!
![]() |
Hefur átt leynilega elskhuga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Fjöldauppsagnir á Alþingi
Jæja, þá er verið að segja upp þingmönnum. Búið er að losna við Jón Bjarnason, Ögmund, Kolbrúnu, Árna Johnsen, Jón Magnússon einstaka þingmenn sem aldrei opna munninn og 50% af þingliði Samfó, enda segir það aldrei neitt af viti.
Strax skárra!
![]() |
Pósthúsið og Ístak segja upp fólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Landsliðið
Merkilegt að velja í landsliðið tvo æfingalausa menn; Heiðar hefur verið meiddur meira og minna í næstum heilt ár; Stefán Þórðarson hefur nú ekki verið að skora neitt og hefur verið í banni lengi ve í sumar!
Og þetta sýnir vel framherjaskortinn, að þurfa að velja þessa tvo og síðan GUnnar Heiðar, sem er ekki að standa sig.
Eigum við enga frambærilega sóknarmenn í góðri leikæfingu lengur?
![]() |
Heiðar Helguson í landsliðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Rússar að einangrast
En þetta byrjaði með Kosovo. Rússar eru núna að hefna sín á Vesturlöndum fyrir að styðja brölt NATO í gömlu Júgóslavíu.
Forðum voru serbeskir íbúar Kosovo fluttir burtu og Albanir settir í staðinn. Nú er verið að flytja georgíska íbúa á brott frá hinum "nýsjálfstæðu" lýðveldum.
Þetta er óafsakanleg hegðun hjá Rússum - það deila fáir um - en hvar voru þeir, sem nú deila á Rússa, þegar Kosovo lýsti yfir sjálfstæði?
Svosem engin furða þó Rússar séu spældir, því greinilega gilda aðrar reglur fyrir Bandaríki Norður Ameríku og Bandaríki Evrópu en Rússland.
![]() |
ESB íhugar að beita Rússa refsiaðgerðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Iceland Express does it again
Jæja, Iceland Express does it again. Lággjaldaflugfélag svokallað með lágmarksþjónustu og varla það. Selur aukahluti dýru verði, sér í lagi þá sem teljast mega nauðsynlegir.
En þrátt fyrir það er félagið ekkert ódýrara en Icelandair, amk, ekki þegar ég hef átt í hlut, þá hef ég fengið betra verð hjá Icelandair en IE, þrátt fyrir að þar sé vatn, Moggalestur og fleira innifalið, auk miklu betri þjónustu innan flugvélar og utan.
En þetta rugl þarna í Köben og víða undanfarið er ekkert undrunarefni í mínum huga. Ég treysti þessu flugfélagi afar illa...af fenginni reynslu.
![]() |
Sólarhringsbið á Kastrup |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Sigurbjörn biskup látinn
Frétt á mbl.is: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/08/28/sigurbjorn_einarsson_latinn/
Þarna er genginn, að mínum dómi, einn merkasti Íslendingur 20. aldar. Um það held ég að flestir geti verið sammála um, hvar í trúarflokkum þeir standa, eða utan.
Við Meðallendingar höfum þarna misst okkar mætasta mann, gegnheilan í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur.
Megi hann hvíla í friði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Svangir sjónvarpsfíklar
Það svangir að þeir sætta sig við hráa og frosna kjúklingabita, frosnar franskar og pizzudeig.
Og síðan vantaði kókakóla með matnum og því var laumast inn í Bónusvídeó.
Hefði ekki bara verið nær að fara í 10-11 0-24?
![]() |
Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Eden á hausnum
![]() |
Eden í Hveragerði gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)