Laugardagur, 23. ágúst 2008
Þjóðin býr sig undir leikinn
Jæja, nú fer að styttast í leikinn. Sumir hanga í bænum fram yfir miðnætti eða fram á nótt...aðrir fara að skríða í bælið til að vera vakandi þegar leikurinn hefst.
Áfram Ísland.
![]() |
Útsending undirbúin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Málin skýrast
Sumir okkar hér á blogginu hafa stundum rætt skringilega framsetningu efnis hér á mbl.is.
Nú taka málin að skýrast. Já, skýringin er fundin.
Færeyskir blaðamenn í starfskynningu á Mogganum.
![]() |
Ísland tekur Frakkar á bólið" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Fitubollufasismi?
Svo sem allt í lagi, þannig séð, að láta fitubollur borga aukalega í sjúkratryggingar.
En hvernig á að skilgreina "fitubollu" í landi þar sem helmingur íbúanna er með hamborgararass?
Hvað þá í Suðurríkjunum, þar sem offita er úbreiddust í heiminum?
En hvað kemur næst?
- reykingamenn borga aukalega í sjúkratryggingu
- drykkjumenn borga aukalega í sjúkratryggingu
- fólk með sjúkrasögu borgar aukalega ....
- fólk yfir 40 ára aldri borgar aukalega...
- fólk með ung börn borgar aukalega vegna veikindadaga barna og "smithættu"
- innflytjendur borgi aukalega, því þeir gætu borið með sér "sofandi" smit frá heimaslóðum
Þetta er svosem réttlætanlegt þegar í hlut á fólk sem vill ekki bæta sig...fitubollur sem vita af vandamálinu en hakka samt í sig þrjá Big Mac í hádeginu með 2 stórum skömmtum af frönskum.
Hef meiri samúð með hinum flokkunum...þar er oft erfiðara við að eiga, þó matarfíkn sé vissulega til og geti verið vandamál.
![]() |
Bollurnar borgi eða grenni sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Menningardagur?
Jæja, dæmið er byrjað.
En eins og venjulega mun ég ekki taka þátt. "Censor Culture Night" er málið.
Ég tek jafnan ekki þátt í svona fjöldahysteríu, fer jafnvel ekki í bæinn 17. júní.
Ég mun því frekar sitja heima og lesa um Buzz marketing, bloggið hans Matt Cutts eða eitthvað skemmtilegt.
![]() |
Góð stemning í bænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Loksins komst Ísland á forsíðu New York Times...fyrir eitthvað jákvætt
Árangur Íslendinga á forsíðu NYT! Jahérna.
En hvað ætli þetta merki í raun fyrir handboltann? Kannski árangur Íslendinga verði til þess að áhugi fólks á þessari íþrótt fari vaxandi í USA og viðar?
En strákarnir eru að auka hróður Íslands og bara allt gott um það að segja.
![]() |
Íslenskur handbolti á forsíðu New York Times |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Góður strákur
Ég las greinina alla í Mogganum í morgun. Þetta er alvöru karakter, ungur maður sem hefur harðnað í stormum sinna tíða.
Gaman að fá svona mini-bio um leikmenn, þá sér maður þá í nýju og e.t.v. réttara ljósi.
En það kæmi varla á óvart ef hann loki markinu gegn Frökkunum. Hann virðist hafa hausinn í lagi og það er yfirleitt fyrsta skrefið í því að ná árangri á þessu sviði eins og flestum öðrum.
Þó það sé talið óæskilegt t.d. í stjórnmálum, er bæði góður karakter og hagkvæm reynsla í aðstæðum þegar stormar blása til að gera fólk hæfara. Ekki skemmir fyrir að hafa lesið allt sem hægt er að lesa um handboltamarkvörslu og notið leiðsagnar Hellströms.
Ég hef fulla trú á að þessi fulltrúi FRAM í landsliðinu muni verða hetjan okkar í fyrramálið.
![]() |
Handboltinn bjargaði honum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Handboltalandsliðið fær traustsyfirlýsingu
Já, þetta er viðurkenning fyrir liðið, ekki síður en Ólaf, Snorra og Guðjón Val.
En mér er spurn: hvaða stórlið í Evrópu munu gera tilboð í Snorra Stein í næstu viku? Eða amk spyrjast fyrir um kappann?
Einn af albestu leikstjórnendum heims hlýtur að enda með uber stórliði en ekki liði frá smáborg í Danmörku?
En til hamingju strákar.
Nú er að taka Frakkana á morgun.
![]() |
Guðjón, Snorri og Ólafur í úrvalsliði Ólympíuleikanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Framferði Rússa í Georgíu
Merkilegt er hversu þeir, sem harðast gagnrýna Bandaríkjamenn fyrir Írak og Afghanistan, þegja nú flestir þunnu hljóði, þegar Rússar þverbrjóta samninga eftir að hafa ráðist inn fyrir viðurkennd landamæri fullvalda ríkis og hegðar sér þar eins og verstu ruddar.
Og ekki þannig að Georgíumenn hafi verið hættulegir alþjóðafriði; þeir vildu bara ráða yfir því landi, sem liggur innan landamæra ríkisins.
![]() |
Rússar vakta hafnarborgir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Obama velur reynsluna
Jæja, þá mun Obama velja sér reynslubolta sér til hægri handar, vísast til að vega upp á móti eigin reynsluleysi.
Og hver er betri til að sigra McCain, en maður sem er úr svipuðum ranni dreginn og er þar að auki lýkur frambjóðanda Repúblikana?
Kannski hefði Samfó átt að leika þennan leik með því að bjóða Örn Árnason fram, í gervi Davíðs Oddssonar, hér á árum áður.
En jæja, í öllu falli efast ég um að þetta hafi verið sniðugt hjá Obama, því mig grunar að amk töluverður hluti stuðningsmanna Clintons, þó ekki sé nema 25%, muni annað hvort sitja heima eða kjósa McCain, þó ekki sé nema til að refsa Obama.
![]() |
Obama velur Joseph Biden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Verður þinn vilji?
Já, vonandi, takk fyrir.
Ég var reyndar að frétta að Frakkarnir munu beita leynivopni, dirty trick, gegn Íslendingum. Frakkarnir eru nú byrjaðir að borða heilu hvítlauksfarmana og verða albúnir þegar kemur til leiks.
Þegar Íslendingar nálgast vörnina munu þeir síðan anda og anda, blása og blása, svo Íslendingar verði að skjóta langt, langt fyrir utan.
Gulli...lll...li...
![]() |
„Ég vil fá gullið og þjóðsönginn“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)