Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Lélegt atriði
Æ, já, maður hafði álit á Svandísi, þrátt fyrir allt. En maður gleymdi greinilega hvaða hún kemur.
Svandís var nú í þeim leikhóp sem sprengdi fyrsta meiri hlutann í borginni. Það er greinilega gleymt og grafið. Og sú sprenging hratt af stað þeirri atburðarás, sem náði nýju hámarki í dag.
En hvað átti að gera? 100 daga ruglið hafði enga málefnasamning, hafði mestan áhuga á völdum og meðfylgjandi bitlingum, og var ruglingurinn orðinn svo mikill, að Ólafur F. gekk út. Og það er varla hægt að segja að hann sé neitt verulega afruglaður.
Ruglinu í Fjórflokkaklíkunni var síðan reddað og málum bjargað fyrir horn með samstarfi Ólafs F og Sjálfstæðisflokks. Samstarf D-lista og Framsóknar var ómögulegt vegna persónu Björns Inga, sem hætti fljótlega á eftir og nýr maður, hinn hnífalausi Óskar Bergsson, settist í stól.
Þá var komið færi á að gefa upp á nýtt, ekki síst þar eð Ólafur F. hafði tekið upp einræðishyggju og gleymdi hvað stjórnar"samstarf" merkti. Gjörsamlega óstjórntækur maður, því miður.
En til að bjarga því sem bjargað verður var D og F stjórn eina leiðin, því sósíalistarnir vildu hvorki starfa með D né F, og Framsókn vildi ekki setjast í stjórn með umhverfisöfgamönnu og alls konar liði sem ekki vildi virkja, borgarbúum til hagsælda.
Þetta var nauðsynlegt...en Svandís vælir auðvitað, enda völd og flokksmannabitlingar runnir út í sandinn.
![]() |
Svandís segir ástandið í borginni snúið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Hanna Birna borgarstjóri
Glæsilegt.
Jæja, vonandi fer þetta nú að komast í lag og arfleifð Björns Inga grafin. Og nú er bara að rífa þetta upp og bjarga því sem bjargað verður eftir þá þremenninga, Villa, Dag og Ólaf.
![]() |
Hanna Birna borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Beðið eftir Godot
Jæja, nú er beðið eftir Godot-stjórninni. En mikið lifandis, skelfingar verð ég feginn að losna við núverandi borgarstjóra. Það þarf að fara alla leið aftur til Dags B. Eggertssonar til að finna verri borgarstjóra.
En Dagur hafði þá afsökun, að það er ekki hægt að útbúa kjúklingasalat úr kjúklingaskít. Ég er nú ekki alveg viss hverjir voru verstir, en 100 daga stjórnin lyktaði a.m.k. skelfilega. En frá fnyknum frá þeirri stjórn tók við Ólafur F. Magnússon, einræðissinnaður stjórnandi sem hélt hann væri að spila Matador þarna í ráðhúsinu, skipti um menn á báðar hendur og stjórnaði með tilskipunum eins og Castró.
En ef Dagur hafði afsökun, hafði Ólafur enga. Ég held að hans verði minnst sem lélegasta borgarstjóra sögunnar úr flokkum utan Samfylkingunni.
En hvað ætli hann geri nú?
Spurning hvort hann opni ekki bara heimilislækningakliník með Sveini Rúnari Haukssyni, eiginmanni eins borgarfultrúa afturhaldskommatittanna?
![]() |
Frétta af meirihluta beðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Enn fleiri fréttir af Ólafi F.
Nú hefur skrifstofa borgarstjóra borið til baka sögusagnir þess efnis, að hann sé borgarstjóri. Það hafi verið á misskilningi byggt. Jafnframt er borið til baka að skrifstofa borgarstjóra sé í raun skrifstofa borgarstjóra.
Síðan er borið til baka það sem var borið til baka hér að ofan.
![]() |
Bera til baka fréttir um Tjarnarkvartett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Ólafur F. að missa það?
Jæja, Ólafur að missa það?
Hvað á maður að segja? Fylgislaus maður hrifsar til sín völd vegna oddaatkvæðis síns, hagar sér eins og einræðisherra og gerir hvern skandalinn á fætur öðrum, bruðlar með almannafé og tekur ekkert tillit til samstarfsflokksins (sem hefur 6-1 fulltrúa).
Og síðan þegar 6-1 aðilinn vill ekki lengur láta bjóða sér þessa einræðisstjórn Ólafs F. býðst hann til að segja af sér til að tryggja að þeir sem hann hafði kúgað fengju ekki að komast til valda, eins og hann hafði sjálfur samið um.
En hvað hefur Ólafur upp á að kvarta við Sjálfstæðisflokkinn? Að hann vildi brjóta af sér hlekkina og losna undan kúguninni?
Manni er svo gjörsamlega misboðið að ég veit ekki um nein orð til að lýsa þeim viðhorfum sem ég hef í þessu máli.
Ég vitna því bara í Jenný og segi: "Afsakið meðan ég æli".
![]() |
Ólafur vildi Tjarnarkvartett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Íhaldsflokkarnir tveir í samstarf?
Hér forðum töluðu sósíalistarnir gjarnan um "Íhaldsflokkana tvo", Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk, annars vegar bæjaíhaldið og hins vegar sveitaíhaldið.
En íhald er stundum (oft, yfirleitt) ágætt. Óþarfi að henda því sem reynst hefur vel.
En þessi einræðisstjórn Ólafs Friðriks hefur ekki reynst vel. Það verður að viðurkennast. Að vísu skárri pakki en sá sem áður var, en samt ekki nógu góður. Óþolandi að einn oddamaður geti kúgað aðra til hlýðni með þessum hætti.
En jæja, þetta virðist vera mun betra system. Og föðurnafnið hjá Óskari tryggir gæðin.
![]() |
Nýr meirihluti að fæðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Keppt í þukli
Tveir flokkar; a) reyndur þuklarar, b) óreyndir þuklarar.
Spurning hvað dýraverndunarsamtök segja við þessu?
![]() |
Keppt í hrútaþukli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Borgarfulltrúar segja fátt
Jæja, þeir segja þó ekki vitleysu á meðan.
En merkilegt er þetta:
"Hvorki Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, né Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, hafa ekki sést þótt fundur borgarráðs sé hafinn."
Úff...og þetta heldur áfram. Það hlýtur að koma að því að dregið verður af launum blm. fyrir villur í texta!
![]() |
Borgarfulltrúar segja fátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Bubbi að fjölga mannkyninu?
Já, blessaður kallinn.
Það væri nú gaman fyrir hann að fjölga með hinni ungu og fallegu konu sinni. Ef satt reynist. Þá óska ég þeim vitaskuld til hamingju.
En hvort Hrafnhildur er eða er ekki ólétt, kemur mér eða öðrum óviðkomandi faktískt ekki við. Þó menn séu opinberar persónur ættu þeir nú að eiga eitthvað í friði.
En á hinn bóginn er það hlutverk Séð og heyrt og svoleiðis miðla að flytja skúbb af því sem ritstjórinn heldur að almenningur vilji vita.
![]() |
Bubbi: Hef hlutina fyrir mig" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Erfitt gegn Kóreubúunum
Kóreubúarnir núna yfir 12-9. VIð höfum brennt mörgum færum í röð. Sóknarleikurinn gjörsamlega ónýtur.
Hvaða rugl er þetta eiginlega?
![]() |
Ísland tapaði með einu marki fyrir Suður-Kóreu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)