Hans Petersen og co á hausnum - tímarnir breytast

Ég er svo aldeilis hissa. Kannski hefur þessi farsímabissness farið með fyrirtækið á hausinn. Maður hélt nú að HPet væri stöndugt, en hvað var þetta að fara að gera út á það sérstaklega að selja farsíma þegar amk sum símafyrirtækin gefa þá?

Og síðan skilst mér að fólk sé hætt að framkalla. Jafnvel pabbi gamli, maður að nálgast eftirlaun og lítið tæknivæddur, lódaði myndirnar úr sumarfríinu í tölvuna, keypti tölvupappír einhvers staðar og prentaði myndirnar út á fínan pappír, alveg jafn flottar myndir og hjá Hans Pet, en fyrir samasem ekkert.

Hvað á þá Hans Pet að selja? Ljósmyndavélar?

Þær má kaupa miklu ódýrara í fríhöfninni eða í útlöndum; þangað sem flestir landsmenn ferðast hvort sem er amk einu sínni á ári, ef ekki oftar og geta versað myndavélar þar, hafi þeir áhuga.

En ég sá flotta plötuspilara fyrir LP í búðarglugga í dag, kosta bara nokkra tugi þúsunda. En DVD spilarar kosta 5000 kall og menn hlusta orðið á músík í Ipod / Mp3 spilara, eða bara í tölvunni.

Já, tímarnir breytast.


mbl.is HP Farsímalagerinn gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér sést mynd af tvíburunum (tekin af netinu)

arnarogbjarkiHérna er mynd af tvíburunum. Ég þekki þá ekki í sundur, en hérna eru frægustu tvíburar landsins.
mbl.is Bitust um myndir af tvíburunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er allt sem sýnist

Þessi náungi vill fá amk 100.000 pund á viku, eða miklu, miklu meira en aðrir leikmenn félagsins. Svona gaura á bara að losa sig við, ef kostur er.

En 100.000 pund á viku fyrir leikmann sem hefur bara getað eitthvað eitt tímabil er fáránlegt, enda verður það vísast ekki gert.

Ef hann skorar 40 mörk þetta season má alltaf skoða málin upp á nýtt.


mbl.is Adebayor ætlar að halda kyrru fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðjón Þórðar: Býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít

chickenskagiAldeilis kaldar kveðjur frá Guðjóni til "strákana". Þeir eru semsagt rusl og drasl, hvorki meira né minna. En þeir sýndu þó gegn Finnunum, að þjálfarinn var vandamálið, ekki liðið.

Kallinn er búnað missa það. Hann ætti að skammast sín og hunskast í felur áður en Skagamaður í vondu skapi heilsar honum að sjómannasið.


iórh ruttöh

Já, þetta er svona Hrói höttur system afturábak.
mbl.is Með 62 milljónir á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að vera formsatriði.

Þetta hlýtur að verða formsatriði hjá mínum mönnum í Arsenal. Twente liðið reyndar ágætt en þjálfarinn afar slakur.

Síðan verður spennandi að sjá hvernig Standard Liege vegnar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar Wink


mbl.is Arsenal mætir liði McClarens og Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandarísku úrræðin

Maðurinn er greinilega með "deathwish". Kanalöggurnar hefðu nú bara skotið hann!

En kannski óþarfi fyrir lögguna að stunda slík líknardráp hér á landi.


mbl.is Á 245 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðilegging

Hverjir voru á svæðinu, þegar gróðursystemið var eyðilagt eða skemmt? Ja, ég veit nú bara um Saving Iceland LoL

Ég yrði ekki hissa þó....


mbl.is Spjöll unnin á gróðurreitum á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Helgi Seljan orðinn sækó?

"Ég hef áhyggjur af því sem læknir og heilbrigðisstarfsmaður ef fagmennska og heiðarleg vinnubrögð eru ekki hluti af leikreglunum hjá fjölmiðlamönnum eins og Helga.“

Greinilega telur Ólafur að Helgi sé ekki með öllum mjalla. En hvað á að gera við Helga? Ómar sagði forðum, í gríni, skemmtilega vísu um afa hans og nafna, þar sem seinniparturinn var eftirfarandi:

Það er ekki hægt að kaupann, ekki hægt að kveljann
hvað á að gera við Helga, Seljan?

En í þættinum var Ólafur greinilega á allt annarri bylgjulengd en Helgi. Ég skil í raun báða. Helgi var að reyna að vinna vinnuna sína eins vel og kostur var. Ég get ómögulega metið hvort hann hafi farið yfir strikið eða ekki, hallast þó að því að hann hafi verið amk á strikinu, jafnvel slagað yfir það á stundum.

En Ólafur hefði átt að afgreiða þessa margumræddu spurningu með ítarlegri hætti, en ekki bara segja, að kona þessi væri í stjórnarandstöðu innan borgarstjórnar. Menn þurfa að vita í hverju sú andstaða er fólgin. Þess vegna hélt Helgi áfram að spyrja sömu spurningarinnar.

Ég held þó að Ólafur geti sofið rólegur yfir líðan Helga, þar að auki ætti hann sem minnst að tala um mál sem tengjast slíku. En ljóst er að Helgi Seljan verður blörraður í Spaugstofunni næsta vetur.


mbl.is Ólafur: Boðaður á fölskum forsendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaginn vaknar

Jæja, nú sést hver munurinn er á Skaganum með eða án Guðjóns, þrátt fyrir að missa besta mann sinn er Skaginn betri núna, enda kominn með þjálfara sem þora að láta lið sitt fara fram yfir miðju...
mbl.is „Finnarnir halda örugglega að þeir hafi dottið úr keppni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband