Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Sama fólkið
og sá ísbirni á Hveravöllum?
En a.m.k. sá ég tvo strúta í Mjóddinni rétt áðan, þrjú tígrisdýr og tvo fíla.
![]() |
Þýskir útivistarmenn sjá rándýr í hverju horni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Internetið mælir ekki með vefsíðu Saving Iceland
Jæja, fór á heimasíðu sem ég fann á google.is og á víst að vera heimasíða Saving Iceland. Þessi síða kom amk efst upp þegar ég sló þessa leitarspurningu upp. Kannski er til önnur síða, en kannski ekki. Ég nenni amk ekki að leita lengra.
En niðurstaðan var athygiverð og varð ég að vista mynd þar af....í litla, fína forritinu mínu.
Vek sérstaklega á eftirfarandi skilaboðum: "Halda áfram til vefsíðunnar (ekki mælt með því)".
Jæja, tæknin er farin að hafa vit fyrir vefnotendum!
Siðan er semsagt "security risk". Kemur ekki á óvart.
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Ætli
þessir menn vilji ekki bara rækta garðinn sinn...eða eru þarna á ferð dópsalar að verða sér úti um ókeypis ræktunaráhöld?
Hallast að hinu síðarnefnda... en löggan hlýtur að finna gaurana, fyrr eða síðar.
![]() |
Gróðurlömpum stolið í Hveragerði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Baneitraðir Færeyingar
En ef hvalirnir eru svona eitraðir af því að borða eitraðan fisk, hvað erum við þá að borða eitraða fiskinn "milliliðalaust".
A.m.k. er ég samasem hættur að borða sjófisk, svona almennt séð, enda verður mér jafnan illt af þessari ákveðnu fæðu, einkum ýsu, ruslakistu hafsins.
En vatnafiskar eru ágætir.
![]() |
Eiturefni berast úr hvölum í Færeyinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Fór allt á versta veg?
Nei, unglingurinn hefði getað dáið og tekið með sér ökumenn og/eða farþega bifreiða á veginum.
Það fór því ekki allt á versta veg. Það segir sig sjalft.
![]() |
Allt fór á versta veg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Móðgum Afghani og það strax!
![]() |
Sviss fær ekki olíu frá Líbýu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Spurning dagsins
Hvað eru fjórir Frakkar kallaðir, þegar þeir standa úti í rigningu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Skráning klósettferða
Ég vil í þessu sambandi leggja eftirfarandi mynd til málanna. Æ, hún er eitthvað svo krúttaraleg í samhengi við klósettferðir úti í óbyggðum.
Oft fer allt á versta veg
er villidýrin kýta.
En þokan verður þokkaleg
þá Pandan fer að .... (sjá mynd)
![]() |
Skrásetja klósettferðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Skemmtilegar myndir


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Einkennileg mannanöfn og skondin mannanafnasaga
Þetta er auðvitað snilld. Gaman að sjá hversu menn eru frjóir...en gamanið er þó grátt þegar kemur að hagsmunum barnanna.
En hér á Íslandi skilst mér að sé bannað að heita Jón Borgar. Heyrði sögu þar sem þrír strákar voru í biðröð í sjoppu og sá fyrsti keypti sér eitthvað smávegis, kók og prins eða eikkað, og benti síðan afturfyrir sig og sagði: "Jón Borgar".
Hið sama gerði sá nr. 2
En þegar sá þriðji fékk "reikninginn" neitaði hann að borga. Hann hefði aldrei fallist á að borga þetta, en hann heiti hins vegar Jón Borgar.
Önnur svona "sniðug" nöfn mætti telja, t.d.
Sigurjón Þ Jónsson (pabbi hans er þjónn)
Vilhjálmur H Karlsson (pabbi hans er hákarl)
osfrv. Var einmitt að gantast með nokkur slík skemmtileg nöfn í gær, við Hinrik brautarstjóra. En gaman að þessu.
![]() |
Einkennileg mannanöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)