Þriðjudagur, 17. júní 2008
Verðhækkanir á innfluttu brauði

![]() |
Brauðhleifur fullur af kókaíni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Ófeigur felldur
Þó fyrr hefði verið. Ég fattaði aldrei hvaða circus var þarna í gangi. Ég held að ráðherra hafi verið að setja af stað sýningu...ömurlegt ef satt reynist.
![]() |
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Fálkaorðan
Í fyrsta lagi finnst mér þetta tóm della. Fólk fær fálkaorðu fyrir að sinna skyldu sinni og fá borgað fyrir það.
Í öðru lagi, ætti að leggja niður fálkaorðuna og taka upp ísbjarnarorðuna...nú, eða grísaorðuna.
![]() |
11 sæmdir fálkaorðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Inngangan í ESB
Innganga ríkja í ESB hefur jafnan verið með þrenns konar hætti, frá því nýliðar tóku að streyma inn. Annars vegar komu inn ríki sem vildu stjórna, eins og Bretland, í öðru lagi ríki eins og Austurríki, Svíþjóð og Danmörk, sem voru setin af krötum sem trúa mönnum meira á þennan samkrull þjóða og ríkja, og í þriðja lagi misjafnlega fátæk eða illa stæð ríki sem vildu græða, t.d. Írland, Finnland, Spánn, Portugal, Grikklands & co og ríki Austur-Evrópu.
Við sjáum að hin síðari ár hafa nær eingöngu fátæk eða veikburða ríki gengið í ESB (gæti verið undantekning á reglunni :) ), en sterkari ríkin, efnahagslega, eins og Sviss, Noregur og Ísland staðið utan við, ríkin þar sem fólkið er einna best stætt í Evrópu.
Myndu þessi ríki græða á inngöngu, í ljósi sögunnar? Eða þurfa að borga með sér; borga fyrir að glata sjálfstæðinu endanlega í hendur skriffinna í Brussel? Nei, kratarnir stjórna ekki hér eins og í Svíþjóð og víðar. Hér eru líka aðilar með sjálfstæða hugsun.
Ég vil ekki ganga í ESB. Ég held að Íslendingar tapi meira á inngöngu og græði. Það besta við inngönguna yrði, að þá myndum við losna við flesta leiðinlegustu Samfó-aðilina til Belgíu.
![]() |
Noregur og ESB: Flestir á móti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Eru ekki frönsku orrustuþoturnar hérna ennþá?
![]() |
Flugbann ekki virt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Björgvin ráðherra verður skýrari fyrr en seinna
"Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra: Mun skýrast fyrr en seinna"
segir í fyrirsögn Mbl.is. Ekki seinna vænna. Hlýtur að vera vont fyrir manninn að vera svona óskýr og sitja í embætti ráðherra. En þetta útskýrir vísast hvers vegna hann lætur svona drengurinn.
En úr því Björgvin verður smám saman skýrari getur maður vísast átt von á því, ef hann skýrist mikið, að hann skipti um stjórnmálaflokk og fari frá þeim óskýru.
![]() |
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra: Mun skýrast fyrr en seinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Enn eitt bullið um bangsa
![]() |
Erfið aðgerð framundan að Hrauni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |