Spenna hlaupin í Landsbankadeildina?

Jæja, þetta var nú ágætt. FHingarnir ætla þá ekki algjörlega að slátra deildinni.

En gaman að þessu. Nú er ljóst orðið að enginn er öruggur með neitt. Greinilega geta allir unnið alla.

En nú er jafnframt ljóst, að FRAM er sterkasta varnarliðið í deildinni, hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk, þar af tapað þremur leikjum.  En ekki hafa mínir menn samt verið á skotskónum. :)


mbl.is Breiðablik vann stórsigur á FH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiddur fótboltavöllur

Jæja, í Fjölnir-Fram leiknum segir svo frá í lýsingu:

 

41: Joe Tillen fer af velli sem meiðist.

 

Ég man ekki áður eftir að hafa séð það, að leikmaður fari af velli þegar völlurinn meiðist! En jæja, allt er víst hægt í fótboltanum.

 


mbl.is Fram sótti þrjú stig í Grafarvoginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarp Frjálslynda flokksins í klandri

Jæja, nú virðist Útvarp Frjálslynda flokksins vera í smá bömmer. Ekki nóg með að því hafi mistekist að svíkja manninn um laun, heldur þarf nú að greiða dráttarvexti af heildarsummunni, auk eftirstöðva.

Eitt er að vera frjálslyndur, en þegar kemur að þvi að borga laun er lítið frjálslyndi leyfilegt.


mbl.is Útvarpi Sögu gert að greiða eftirstöðvar launa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annar ísbjörn kominn

Ætli Viðar Guðjohnsen hoppi ekki hæð sína í loft upp. Innflutningur hvítra hafinn. Glæsilegt.
mbl.is Ísbjörn í æðarvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrr má nú aldeilis fyrrvera

En jæja, ég commentaði í morgun á, að ákveðin grein á mbl.is væri ítarleg og vönduð, en ekki bara þunn þýðing úr ensku yfir á ísl-ensku eins og oft vill verða. Þessi grein er jafnframt óvenju góð. Er þetta tilviljun, eða er Mogginn að bæta mbl.is greinaskrif og vinnslu?

Police Fann engan klappkarl, svo þessi verður að duga. Það er ekki svo oft að maður geti hrósað mbl.is mönnum fyrir góð greinaskrif.

En að græna skrímslinu, sem er að slá í gegn. Ætli hið sofandi græna skrímsli hér á Íslandi, Framsóknarflokkurinn, nái jafn vel að slá í gegn á næstu misserum og Uncle Hulk gerði í USA?


mbl.is Græna skrímslið slær í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers að gera sjálfsvígsárás?

RealSuicideBomb-XOK, hér voru vísast Tamíl-Tígrar á ferðinni. En ólíkt t.d. íslömskum sjálfsmorðsárásarmönnum, sem lofað er slatta af sveskjum / meyjum (eftir því hvaða merking er lögð í orðið - burtséð frá því að þetta loforð ku vera afar vafasamt, guðfræðilega séð!) fyrir verknaðinn, þá veit ég ekki til að neitt sérstakt taki við fyrir uppsprengda Tamíl-tígra. Ein svona sprenging færir sjálfstæði Tamíla engu nær, eina sem þetta gerir er að fækka íbúum landsins um 12 og veita læknum yfirvinnu.

Ég fatta ekki tilganginn með svona. Fatta eiginlega heldur ekki tilganginn með sjálfsmorðsárásum eða drápum á almennum borgurum almennt.

Japanskir sjálfsmorðsflugmenn á tíð seinni heimsstyrjaldar gengu í dauðann fyrir hinn guðlega keisara sinn, en sá aflagði guðlegt tilkall sitt eftir stríð, enda fékk hann kvef og pestir eins og hver annar og því lítið guðlegt við hann svosem. Þeir voru að fórna lífi sínu fyrir ættjörðina, rétt eins og hver einasti hermaður í heiminum gæti þurft að gera (nema þeir sem sitja á rassinum á skrifstofum!).

En ef maður ber saman tilgangslausar árásir á óbreytta borgara, eins og t.d. Tamílar gera þarna, og sjálfsmorðsárásir í stríði, eins og á tíð japönsku orrustuflugmannanna, verður maður að segja, að þar er um tvennt ólíkt að ræða. Í öðru tilvikinu er um að ræða árásir á hernaðarlegt skotmark, fjarri dvalarstöðum óbreyttra borgara, í hinu tilvikinu er líklegt að óbreyttir borgarar falli jafnframt lögreglumönnunum, ef "vel" tekst til. (Við gleymum því stutta stund að Japanir töldu t.d. kínversk mannslíf lítils virði, sbr. framferðið í Nanjing). Maður hefur samúð með málstað hvorugra, en skilur þó betur þá japönsku.

Engu að síður tel ég sjálfsmorðsárásir viðurstyggilegar...menn geta svo fundið undantekningartilvik ef nenna er yfir hendi.


mbl.is Mannskæð sjálfsvígsárás á Sri Lanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru fréttaflutningur

Ég er nú svosem enginn sérstakur áhugamaður um NBA, en verð að minnast á að hér er um að ræða alvöru fréttaflutning á mbl.is, en ekki þetta "nokkrar þýddar línur á ísl-ensku", eins og venjan er.

Two thumbs up, eins og skáldin sögðu hér í den.


mbl.is Ekki búið enn - Lakers slapp fyrir horn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband