Laugardagur, 10. maí 2008
Svindluðu Valsmenn í tapleiknum gegn ÍBK?
Ja, það er nú það. Varnarmennirnir sem áttu að vera inná skv. leikskýrslu, voru nefnilega ekki inná, heldur einhverjir sem voru mjög ólíkir þeim.
Keflvíkingar hefðu vísast kært leikinn hefðu þeir ekki unnið þetta svona sannfærandi.
En hvernig ætli menn geti annars verið ólíkir sjálfum sér, nema þá að setja upp grímu? Og það er bannað, nema með sérstöku "Cech"leyfi KSÍ.
Ok, maður má nú bulla einu sinni á dag?
![]() |
Willum: Varnarmennirnir ólíkir sjálfum sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 10. maí 2008
Glæsilegt!
Jæja, mínir menn að standa sig. Loksins fer þetta að líta út betur; enda liðið orðið ágætt (þó maður hefði viljað hafa Kristján Hauksson áfram (haha, hann fór svo bara í FJölni, á láni frá Val, hefði getað verið áfram í Safamýrarholtinu)) og góður þjálfari loksins, eftir marga mismunandi á síðustu árum.
Snilld að losna við Sækó og fá Akureyringinn knáa í staðinn. Hann hefði bara átt að koma í fyrra. Þegar ég var í námi í Englandi 1992-93 kynntist ég Nottingham náunga, sem bjó rétt hjá mér. Hann hafði mynd af Þorvaldi uppi á vegg hjá sér og heiðraði mig sérstaklega fyrir að vera af sama ætterni.
Kannski bláir Reykvíkingar fari að gera slíkt hið sama.
Og vonandi losnum við FRAMarar algjörlega við fallbaráttunna þetta árið.
Áfram FRAM.
![]() |
Öruggur sigur Framara í Árbænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 10. maí 2008
Valdarán hersins í Líbanon?
Eða er hann bara að dissa stjórnina?
A.m.k. veit maður ekki hvað skal halda, þegar herinn afturkallar tilskipanir ríkisstjórnarinnar?
![]() |
Líbanski herinn afturkallar aðgerðir ríkisstjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 10. maí 2008
Bankaræninginn játar
Vel gert hjá löggunni að hafa upp á þessum gauk. Hann mun svo sitja inni í nokkra daga og koma út í góðu skapi.
Spurning að fara að hækka refsirammann svo menn þori ekki lengur að ræna banka og sjoppur og svoleiðis apparöt.
![]() |
Bankaræningi handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 10. maí 2008
Bjarna Fel á skjáinn
Já, takk.
Hann hefði auðvitað verið flottur á leiki Englendinga, en... Það er síðan lágmark að fá hann til að lýsa leikjum KR í sumar...á hvaða stöð sem er.
Annars er eitthvað svo heimilislegt að hafa rödd Bjarna með boltanum. Hann má alls ekki hverfa af skjánum.
Styð Henry í þessu.
![]() |
Þjóðin styður við bakið á Bjarna Fel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 10. maí 2008
Sátt með appelsínuhúðina
Já, margir eru sáttir við að hafa appelsínuhúð þó snyrtistofur vilji telja fólki á að fjarlægja slíkt hið snarasta. En ég fann á netinu mynd af aðila sem er mjög stoltur af appelsínuhúðinni.
Já, slíkt gerist.
![]() |
Alsæl með líkamann þrátt fyrir appelsínuhúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)