Dóp í tösku

Merkilegt að menn sem hafa áður "komið við sögu lögreglunnar" skuli yfirleitt nenna að reyna að smygla dópi til landsins. Ég býst fastlega við að tollurinn í Keflavík tékki farþegaskrár og beri saman við gagnabanka, þar sem kemur í ljós hvaða farþegar hafa áður verið nefndir á nafn í sögubókum dómsyfirvalda og lögreglu.

Og ef einhver farþegi telst grunsamlegur í þessu ljósi er hann auðvitað tékkaður sérstaklega, það segir sig sjálft.


mbl.is Með þrjú kíló af amfetamíni í tösku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Absolut afsökun?

Hvað ætli auglýsingastofa Absolut hafi verið búin að innbyrða marga Absolut-kassa þegar hún hannað þessa auglýsingu?
mbl.is Absolut biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferðarslys

Bara smá spurning: var ekki margra-bíla-árekstur í Ártúnsbrekkunni í morgun, eða voru bílstjórar að mótmæla einu sinni enn?

 

A.m.k. hef ég ekkert séð um þann atburð hér á mbl.is. Eða var mig kannski bara að dreyma?


mbl.is Alvarlegt umferðarslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ranglega greind í fyrstu"

Jæja, Neighbours stjarnan var ranglega greind í fyrstu. Soleiðis! En gott að hún skuli nú hafa orðið greindari með tímanum. En ég þekki marga sem eru ranglega taldir greindir.
mbl.is Var ranglega greind í fyrstu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir á ensku

Jæja, þetta er nú ágætt, sér í lagi að blm. Moggans hvorki skrifi þessar fréttir sjálfir né afriti þær frá erlendum fréttamiðlun.

Copy/paste er leiðinleg aðferð, en hvað hitt atriðið snertir þá eiga blm. Moggans nógu erfitt með að skrifa á íslensku...:) 
mbl.is Fréttir á ensku á mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svindlað um svindl

Ef einhver trúir þessari skýringu Mugabe-manna ætti sá hinn sama að panta tíma hjá

1) Sálfræðingi

2) Geðlækni

3) Aftökusveit


Þetta er auðvitað bara brandari.


mbl.is Sakaðir um kosningasvindl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband