100 ára afmælisgjöf

Nice á 100 ára afmælisári Víkings. Gamla stórveldið að vakna.
mbl.is Víkingar í efstu deild eftir sigur gegn ÍR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru íslensku femínistarnir núna?

Spurning hvort Sóley leiði ekki hóp femínista og loki Laugaveginum til að mótmæla því að konur þurfi að hylja á sér brjóstin í sundlaugum Rvk??
mbl.is Konur mega bera brjóstin í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glötuð tækifæri

"Palestínumenn hafa aldrei misst af tækifæri til að missa af tækifæri." Abba Eban.
mbl.is Óttast að tækifæri glatist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira ruglið

Hvað í ósköpunum voru unglingarnir að pæla? Þetta var afar óskynsamlegt hjá þeim. Lögbrot er lögbrot, málið dautt.
mbl.is Rýmingu lokið á Miklubraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsamleg ákvörðun Láru

Jæja, hún tekur þó ábyrgð á gjörðum sínum.  Gott mál.

Hvenær ætli Þórhallur hringi í hana?


mbl.is Hættir sem fréttamaður á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líklega ákærður?

Auðvitað verður maðurinn ákærður. Annars væri út í hött, því þá hefði skapast fordæmi.
mbl.is Líklega ákærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Malaría

Ég fékk malaríu þegar ég var kominn vel á þrítugsaldur og var lækni sigað samstundis á mig. Hann skaffaði mér alls konar pillur sem unnu vel á þessu. Ég man ekki hversu lengi ég lá hálf rotaður í rúminu en mig minnir að ég hafi verið kominn á ról c.a. viku eftir heimkomuna frá Kairó.

Í mælingum fyrir c.a. 2 árum fannst enn malaríusýking í mér, en hún liggur þarna bara í leyni og bíður eftir moskító-flugum til að virkja sig að nýju.

Ég man að þetta var ekki skemmtilegasta vika sem ég hef lifað og styð því Bankann í því að koma svona herferð af stað.


mbl.is Ki-moon hvetur til herferðar gegn malaríu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað verður um Grím?

Nú er lag fyrir hinn nýja meiri hluta að láta "party-politics" lönd og leið og láta Grím Atlason halda bæjarstjórastöðunni. Ég veit ekki betur en að hann hafi staðið sig vel.
mbl.is Nýr meirihluti í Bolungarvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vörubílstjórarnir, Sturla, Lára og co

Horfði á Sturlu í Kastljósinu eftir á. Úff, hann er ekki góður málsvari, og ekki ábætandi þegar hann neitaði því að "kjaftshöggsmaðurinn" hefði nokkuð með trukkakallana að gera. Sturlu tókst þarna að fjarlægja síðasta samúðarsnefilinn sem ég hafði. Burtséð frá málstað þeirra strákanna og einstaka málsatvikum, þá hegða menn sér ekki svona í sjónvarpsviðtali.

En á hinn bóginn var Hörður lögga mjög trúverðugur og kom sómasamlega fram.

Ég bloggaði áðan um Láru, en nú heyrir maður að hún, þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagnstæða, var að reyna að búa til frétt. Þetta var ekki grín, þá hefði raddblærinn verið öðruvísi. Ég er aldeilis hlessa:

http://sersveit.rlr.is/laraomars.mp3


Ég heyri ekki betur en að hér sé verið að hvetja til lögbrots. Ætli það sé stefna Fréttastofu Stöðvar 2? Og ég sem vildi trúa því besta um hana og gefa henni "benefit of a doubt". Ég vil heyra hana útskýra þetta. Þetta var ekki grín, alls ekki.


Bloggfærslur 25. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband