Loksins

Ég var farinn að undrast það hversu Ólafur hefur verið marga daga á landinu í einu LoL

 

En hitt er svo annað mál, að ég fíla þessar forseta/viðskiptaferðir. Held að þær geti skilað miklu. Í Mexíkó eru fjölmörg tækifæri. Um að gera að nýta þau.


mbl.is Forseti Íslands í opinbera heimsókn til Mexíkó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvöldinu bjargað

Tottenham tapaði.
mbl.is Everton og Tottenham töpuðu, Bolton með jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viggó til FRAM!

Merkilegt, ég segi nú ekki annað.
mbl.is Viggó Sigurðsson ráðinn þjálfari Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómar Ragnarsson sendir bréf?

Fékk þennan email áðan. Merkilegt, því ég hef aldrei haft neinn áhuga á þessu flippi Ómars og hef engin tengsl við þessi samtök hans og Möggu Sver. Mig langar að spyrja, er þetta feik eða var Ómar virkilega að senda manni eftirfarandi meil?



Og frekar myndi ég ganga í KR en Íslandshreyfinguna.

 

Góður Íslendingur.  Samkvæmt gögnum okkar lagðir þú Íslandshreyfinginunni - lifandi landi  lið flyrir síðustu kosningar. Þess vegna sendi ég þér, fyrir hönd stjórnar hreyfingarinnar, þetta bréf til að kanna hvort þú hafir áhuga á að leggja þitt af mörkum  við málefnastarf og endurmótum á stefnu, skipulagi og starfi hreyfingarinnar og undirbúningi fyrir aðalfund hennar og aðra fundi.  Íslandshreyfingin - lifandi land er fyrsti og eini stjórnmálaflokkurinn hér á landi sem hefur umhverfismál sem meginstef stefnu sinnar. Hreyfingin var stofnuð til að bjarga ómetanlegum vermætum landsins og varðveita þau fyrir komandi kynslóðir og mannkyn allt. Líta má á hreyfinguna sem björgunarsveit og það væri skammsýni að leggja hana niður eða hætta að halda henni í æfingu því að hvenær sem er geta þær aðstæður komið upp að brýn þörf sé fyrir hana og þann lærdóm sem fékkst í kosningabaráttunni í fyrra.  Ranglát kosningalöggjöf kom í veg fyrir að hreyfingin fengi þingstyrk í samræmi við fylgi. Auk þess þorðu margir ekki að kjósa hana af ótta við að atkvæði yrðu "dauð". Hreyfingin hefur liðið fyrir það að eiga ekki fulltrúa á þingi og fjölmiðlum hættir til að sniðgenga hana og ályktanir sem frá henni hafa komið. Gegn þessu þarf að vinna og þörfin er brýn. Hreyfingin situr að vísu uppi með skuldir frá síðustu kosningabaráttu, en það breytir því ekki að auður hennar og afl liggur í þeim sem vilja styðja hana og hugsjónir hennar.  Enn hefur ekki reynt á það til fulls hvort ráðamenn standi við þau loforð sín að gera hlé á stóriðjuframkvæmdum. Þær virðast enn á dagskrá og haldi þær áfram linnulaust verður svikið það loforð að ljúka fyrst rannsókn rammaáætlunar á náttúru landsins.  Þess vegna þarf Íslandshreyfingin að starfa áfram í samræmi við hugsanleg verkefni í bráð og lengd. Rúm þrjú ár eru til næstu alþingiskosninga og tvö ár til byggðakosninga en kallið gæti komið fyrr, til dæmis í formi stjórnarslita og þingrofs.  Á vefsíðu Íslandshreyfingarinnar má sjá stefnuskrá hennar. Á henni má byggja en hún þarf að vera í sífelldri mótun.  Til greina kemur að stór hluti innra starfs verði fólgið í eins konar starfshópum sem standi vaktina í einstökum málaflokkum og móti tillögur um stefnuna í þeim. Með því eru stoðir hreyfingarinnar treystar og afl og áhugi einstaklinganna virkjuð.  Sem dæmi má nefna einstök svið umhverfismála og aðra hefðbundna málaflokka. Einnig starf hinna yngri félaga í ungliðahreyfingu Íslandshreyfingarinnar.   Á tímum auðveldra fjarskipta ætti í starf í málefnahópum ekki að krefjast mikilla fundahalda umfram það sem félagar telja sér henta. Stundum gætu niðurstöður rannsókna orðið tilefni til þess að koma þeim á framfæri, t.d. á málþingum eða blaðamannafundum og þar með vakið athygli á þeim og starfi okkar.  Bréf þetta er ritað til að kanna hvort þú hafir áhuga á að skipa þér í ein í einhvern af slíkum starfshópum og hvaða mál þú telur þér hugleiknust og líklegust til að nýta krafta þína. Í samræmi við svörin væri síðan hægt að stilla upp slíkum málaflokkum.  Svar við ofangreindri málaleitan skoðast sem trúnaðarmál og svar má senda um hæl í tölvupósti.  Fyrir hönd stjórnar Íslandshreyfingarinnar - lifandi lands.   Með bestu kveðjum / Best regardsÓmar Ragnarsson 

Lækkun meðalaldursins hjá Milan!

Ójá, og til þess á að kaupa mann sem er hvað 32 ára?


mbl.is Berlusconi vill endurheimta Shevchenko
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No forplay?

Maður bara spyr?
mbl.is Kynmök taki sjö til þrettán mínútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefndin er sæt

Eða bitur kannski, í tilviki Móra?
mbl.is Mourinho á sér þá ósk að slá Chelsea út í Evrópukeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankaræninginn í Fjarðar-Kaupþingi

klúðraði því algjörlega, að sprengja eins og 1-2 sprengjur í Hafnarfirði til að halda löggunni frá á meðan hann framdi ránið. Svona er að vera amatör.
mbl.is Bíll sprengdur í Malmö
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Botnar einhver í þessu kerfi?

Jújú, það má komast til botns í kerfinu sem slíku, en botnar einhver í af hverju þjóð, sem er svona yfir meðallagi í greind og menntun, skuli ekki getað fundið upp betra kerfi.

Og sá sem vinnur þarf svo að gjalda greiða fyrir greiða til þeirra fjölmörgu sem kostuðu baráttuna.
mbl.is Aukin áhersla á stuðning óháðra kjörmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PR herferðin byrjar

Nú fara stuðningsmenn Repúblikana út um allt land og dreifa frönskum kartöflum, McCain frönskum.

Æjá, sumar auglýsingaherferðir eru dýrar.
mbl.is McCain undir í skoðanakönnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 6. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband