Er heilinn hitaeininganæmur?

Ok, ég er nú enginn sérfræðingur um mál sem þessi. En mig grunar þó, að þrátt fyrir þessi niðurstaða sé formlega "rétt", hljóti það að vera skynjun sykurs / glúkósa sem hafi þessi áhrif, þó auðvitað sé í meginatriðum um sama hlut að ræða, en samt ekki alveg.


Líkaminn hlýtur að hafa einhvert system sem sendir út boð um, að þörf sé fyrir orku. Og þegar þeim boðum er svarað með ríkulegum hætti, þakkar hann fyrir sig. Hann hefur þá fengið orku til að starfa með eðlilegum hætti.


En hafa menn prófað að gera samanburð á kökum, ís og sætabrauði þar sem annars vegar er um ekta sykur að ræða og hins vegar gervisykur eða sætuefni?

Ég er eiginlega alveg viss um, að "nautn" heilans verður meiri við alvöru sykur en platdæmið. Og ef svo yrði raunin, hlýtur að mega draga þá ályktun, að heilinn skynji sykurinn fyrst og fremst, en ekki hitaeiningarnar sem slíkar.

Eða hvað?


mbl.is Heilinn skynjar sætabrauðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veit hægri höndin hvað sú vinstri gerir?

Von að maður spyrji?
mbl.is Græn skilaboð flokksstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svarthvíta hetjan mín

Jæja, Keegan loksins að koma skikkan á Newcastle liðið. Það hefur tekið tíma, en er að mjakast. Þó ég geti jafnan ómögulega haldið með liði í KR-búningi, er þessi leikur ein af undantekningunum.


Alltaf gaman að sjá Tottenham tapa, sérstaklega þegar um ljótan skell er að ræða á HEIMAVELLI.


mbl.is Newcastle skellti Tottenham á White Hart Lane
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er með háborgina á Skólavörðuholti?

Já, hér í den teiknaði Gaui Sam frækna háborg sem atti víst að rísa á Skólavörðuholti.


Ég er ennþá að bíða.

 

En merkilegt að sumir framsóknarmenn fatti ekki að Framsóknarflokkurinn sprengdi sjálfur þá stjórn sem setti vatnagarðinn á plön.

 

Menn geta ekki bæði étið kökuna og geymt hana.


mbl.is Vatnagarður blásinn af?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvíverknaður

Skil ekki til hvers er verið að telja, þegar stjórnvöld eru búin að ákveða hvað flokkar muni fá mörg atkvæði.
mbl.is Atkvæði talin í Simbabve
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rekinn

Nokkuð ljóst úr þessu, að Rijkaard er á útleið hjá Barcelona og vísast Jose Mourinho, vinur Smárans, tekur við. Málið dautt.
mbl.is Barcelona tapaði - Eiður lék í korter og fékk gullið tækifæri til að jafna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband