Fimmtudagur, 27. mars 2008
Istorrent
Þetta er athygliverð niðurstaða. Hvað ætli Smáís geri nú?
Hér er semsagt verið að staðfesta, að Smáís hafði ekki rök fyrir hamförum sínum þarna fyrir nokkru. Og með slíkum aðgerðum eyðilagði Smáís atvinnutækifæri og fyrirtæki; spurning hvort Istorrent ehf. geti nú ekki farið í mál og heimtað skaðabætur?
![]() |
Máli gegn Istorrent vísað frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Hvernig í ósköpunum
Ja, ég þekki bara eina tegund flugvéla, Fokker.
Enda gefur hún frá sér "Fokker merkið".
![]() |
Fokker skoppaði" á brautinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Demókratar í vanda
Getur því verið, að þessi átök Billary og Obama hafi skaðað Demókrata það mikið, að McCain taki þetta í forsetakosningunum?
![]() |
Vinsældir Hillary Clinton minnka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Unglingameistaramót Reykjavíkur í skák
fer fram nk. laugardag í Skákhöllinni Faxafeni 12.
Eftirfarandi frétt er á www.taflfelag.is
Unglingameistaramót Reykjavíkur verður haldið í Skákhöllinni Faxafeni 12 laugardaginn 29. mars kl. 14.
Þátttökurétt eiga allir unglingar á grunnskólaaldri en unglingameistarnafnbótina og farandbikarinn hlýtur efsti keppandi sem búsettur er í Reykjavík.
Umhugsunartími er 15 mínútur á mann til að ljúka skák og verða tefldar sjö umferðir.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir þrjú efstu sætin, auk þess verða happadrættisverðlaun.
Núverandi Unglingameistari Reykjavíkur er Daði Ómarsson úr TR.
Skákstjóri er Óttar Felix Hauksson.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Nonni og Manni
Já, þetta voru uppáhaldsþættir litlu systur á sínum tíma. Hún horfði á þá aftur og aftur, aftur og aftur.
Svosem gaman að þessu. VOndi kallinn lék svo í Lethal Weapon mynd í framhaldinu!
En hvernig var þetta aftur í jólalaginu um sveinana, sem komu til Manna...en ekki Nonna.
![]() |
Nonni, Manni og smaladrengur hittast á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Veggjakrotið
Þetta lið þarf að góma og stinga á Hraunið eftir að hafa borgað skaðabætur og þrifið upp eftir sig ósómann. Þá myndi það kannski sjá að sér.
![]() |
Máluðu yfir veggjakrot í miðborginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Óásættanlegur ágreiningur?
Já, hún hefur sennilega ekki fílað fimm-aura-húmorinn hans.
Sorglegt, því Robin Williams er varaformaður í Félagi fimmaurabrandarakalla --
![]() |
Robin Williams að skilja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Álitshnekkir Kínverja
Ég fíla bæði Kína og Kínverja. Þetta er jafnan ágætisfólk, sem á ótrúlega merkilega sögu að baki. En hin ný-kommúnísku stjórnvöld virðast ekki þola gagnrýni og andóf, eins og kommúnista er siður.
Framferði þeirra í Tíbet er mikill álitshnekkir og svartur blettur á stjórnvöld í Peking.
![]() |
Munkar trufla skoðunarferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Celeb by association?
Fyrir hvað er þessi stelpa fræg? Jú, systir hennar var fræg fyrir söng, en er nú aðallega fræg fyrir geðveiki og fáránlega hegðun, en hefur ekkert "frægt" gert að viti í fleiri ára.
Ergo: Spears eldri er í dag fræg fyrir að vera fræg; og systirin er fræg fyrir að vera systir stelpu sem er fræg fyrir að vera fræg.
Meira ruglið.
![]() |
Spears ætlar að giftast barnsföðurnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)