Siggi Sveins og handboltalandsliðið

Já, af hverju ekki Sigga Sveins. Hann gæti amk kennt strákunum að skjóta á markið, en því virðist Alfreð hafa gleymt að kenna þeim.


Því miður virðist sú bölvun fylgja landsliðinu að menn hætta að kunna að skjóta á markið um leið og þeir fara í landsliðsbúninginn.

Siggi gæti hjálpað til við að leysa þetta vandamál.


mbl.is Siggi Sveins: Myndi þjálfa strákana frítt!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru konur með kynlíf á heilanum?

"Á venjulegum átta tíma vinnudegi hugsa konur 34 sinnum um kynlíf samkvæmt nýrri könnun, eða einu sinni á 14 mínútna fresti. Þetta kemur kannski ekki á óvart þar sem ein af hverjum þremur konum kvartar undan kynlífssvelti."



Engin furða þó sumar þingkonur séu stundum annars hugar í þingsalnum! Ætli það sé Guðni Ágústsson sem þær eigi í svona miklum vandræðum með?


En á hinn bóginn efast ég nú reyndar um, að karlpeningurinn sé nú nokkuð rólegri í tíðinni. Tel reyndar fullvíst, að hann standi konunum síður en svo að baki hvað þetta varðar.


mbl.is Blautir draumar í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þessi maður á ekki að spila fótbolta framar"

taylor_martin_bifc_profile_2004"„Ég tel að þessi maður eigi aldrei að spila fótbolta framar. Hvað er svona maður að gera á fótboltavelli?" sagði Wenger bálreiður eftir leikinn. „Þetta brot var búið að gera boð á undan sér í talsverðan tíma því það hefur hefur legið í loftinu að leiðin til að stöðva Arsenal sé að sparka í leikmenn liðsins. Meiðslin hjá Eduardo eru mjög slæm og það er um meira að ræða en það að bara þetta tímabil sé á enda hjá honum," sagði Wenger við Sky Sports."


Næstum því alveg sammála. Hann á a.m.k. að fá mjög, mjööööööööög langt bann. Spurning hvort ekki ætti að hringja á lögguna. Þetta var meira en tækling, þetta var líkamsárás.

Afsakið, en ég "totally disgusted".


(Ég yrði ekki hissa þó einhverjir "fans" keyri til Birmingham og rekst utan í bílinn hans með lykli eða einhverju oddhvössu....svo ekki sé talað um að grípa til enn róttækari aðferða.)


mbl.is Wenger: Þessi maður á ekki að spila fótbolta framar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fífl og fáviti mánaðarins

taylor_martin_bifc_profile_2004 Á þessi maður einhverja framtíð fyrir sér eftir ljótustu tæklingu ársins, eða áratugarins, í boltanum?


Ég gæti ímyndað mér að hann ætti a.m.k. að fela sig næstu dagana meðan þetta er að róast aðeins.


En eins lengi og hann spilar fótbolta, mun hans ætíð vera minnst sem mannsins sem (hugsanlega) eyðilagði fótboltaferil Eduardos.

Megi hann fara í bann sem lengst.

Fyrirliði Birmingham

mun aldrei getað spilað á Emirates aftur, a.m.k. ekki í friði. Þetta er eitt það ljótasta sem sést hefur í boltanum. Svona menn eiga að fara til sálfræðings. Svona gera menn ekki í fótbolta.
mbl.is Eduardo hjá Arsenal illa slasaður?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíðar sumarleyfisstaður Íslendinga?

Alveg greinilegt. Saudi-Arabía er framtíðin, eða...?

 Hvað ætli margir íslenskir karlmenn á aldrinum 18-30 myndi sleppa úr landi aftur, nema eftir að hafa verið hýddir?

Og stúlkurnar á sama aldri hýddar líka fyrir að vera í stuttbuxum á almannafæri.

Spurning hvenær miðöldunum ljúki þarna suðurfrá?
mbl.is Handteknir fyrir að daðra við stúlkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigi skal víkja

Vér mótmælum allir.
mbl.is Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsakanir og Alþingi

Jájá, það má alveg biðja Breiðuvíkurpilta afsökunar. Það var illa farið með þá, svo og marga aðra. Ömurlegt að sjá svo mörg líf eyðilögð.



En þjóðin má líka biðja Alþingi afsökunar á að hafa sent þangað svona marga vitleysinga í gegnum tíðina.

Og ég vil líka biðja þá afsökunar sem ég hefi sært með óígrunduðum orðum í gegnum tíðina.

Hvernig væri að gera t.d. 3. maí að sérstökum afsökunardegi, þar sem menn biðjast afsökunar og allt verður í gúddí?


mbl.is Alþingi Íslendinga biðjist afsökunar á Breiðavíkurmálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband