Maður missti af fjörinu!

Það er aldeilis fjörið í Belgrað núna. Og ég missti af því.

Desember 2007 008Ég var reyndar að spá í Belgrað á þessum tíma; mér var boðið á sterkt skákmót sem nú fer fram þarna í Belgrað, rétt hjá sendiráði Bandaríkjanna. Ef ég man rétt, er það ekki auðvarið. Síðast þegar ég ók þarna framhjá, sá ég bara einn vörð fyrir utan. Óvenjulegt fyrir bandarísk sendiráð.

En jæja, ég hefði getað fylgst með fjörinu, hefði ég ákveðið að þiggja hið góða boð, reyndar ásamt Robba Lagerman, en við förum gjarnan á skákmót í Serbíu. (Mynd tekin í Belgrað fyrir 3 mánuðum tæpum)

En ég sit bara heima og fylgist með úr fjarlægð. Það er kannski bara betra.
mbl.is Sendiráðsmenn yfirgefa Belgrad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hizb'Allah að æsa sig

Ja, það er nú talið að vinir Hizb'Allah í Sýrlandi hafi nú verið eitthvað viðriðnir þetta morð á einum grimmasta terrorista samtímans. En auðvitað veit maður ekki hvað er rétt og hvað ekki í þessum fréttum.

En hitt veit ég, að nýlega komu lögreglusveitir í Evrópu upp um samsæri Hizb'Allah um að myrða eða ræna háttsettum stjórnmálamönnum eða öðrum "major figures" í Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi og Ítalíu, eins og komst upp í árás frönsku lögreglunnar á bæli terroristanna í París. Um þetta má lesa í nýlegu Spectator. Og franska leyniþjónustan hafði semsagt frétt frá Beirút að Nasrallah hafi kallað saman fund foringja sinna og sagt þeim að "vekja" svokallaðar "sellur" Hizb'Allah í Evrópu og láta þær hefjast handa við þessa áætlun.

Ég held að Hassan Nasrallah, sem er einn helsti ófriðarseggur heimsins þessa dagana, ætti að líta í eigin barm.
mbl.is Leiðtogi Hizbollah segir Ísraela hóta nýju stríði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Tell

us what you will do!


Hann virðist ætla nánast óstuddur að eyðileggja Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, a.m.k. tímabundið. Eins gott að kjósendur eru gleymnir.


mbl.is Vilhjálmur ætlar að sitja áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn Bubbi?

Bubbi og hljómsveit ekki með?

Æ, hvað hét aftur hljómsveitin sem mynduð var utan um kónginn? Forhúðin?
mbl.is Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna birtar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg siðspilling þrífst...jafnvel á Íslandi

Ég er alveg yfir mig hneykslaður. Ótrúleg spilling er þetta á Íslandi að geta ekki mútað mönnum hressilega eins og viðgengst erlendis. Til dæmis hefur enginn nokkru sinni borið mútur á mig (nema púbertíið -- og þeim mútum komst ég ekki undan að þiggja) og ég er mjög hneykslaður.

Eða eins og skáldið sagði: "Þeir sem harðast tala gegn spillingunni eru þeir, sem komast ekki í hana en vilja það gjarnan."


mbl.is Dæmdur fyrir að þiggja mútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

G-bletturinn

Íslendingar hafa nú þekkt G-blettinn í mörg ár, amk merktu ótrúlega margir við þennan blett á fjögurra ára fresti og fengu sérkennilega pólítíska fullnægingu fyrir vikið.


En nú er íslenski G-bletturinn týndur og V-bletturinn kominn í staðinn.


mbl.is Leitað að G-blettinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Mogginn ábyrgur?

Múhameðsmynd hefur birst hér á blogginu. Er Mogginn ábyrgur?

"Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins" segir Mogginn bara.

Gilda þá önnur lög í Noregi en á Íslandi?
mbl.is Ritskoða Múhameðsmyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband