Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Skandall
Það er auðvitað hneyksli að b-lið Arsenal skuli ekki geta unnið a-lið Spurs. Skandall.
![]() |
Jafntefli hjá Arsenal og Tottenham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Shaky mynd sem mér var send
En verð nú að birta hana, þó hún sé í vafasamara taginu (og ég er ekki endilega sammála, ekki frekar en Mogginn):
Ok, ég varð að birta hana, en ....roar, svoldið dónó.
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Einn af bröndurum Össurar
Málavextir voru þeir, að Össur var víst staddur í París á umhverfisráðstefnu, í þá gömlu góðu daga. Með honum var aðstoðarmaður hans, (held það hafi verið Árni Páll síhleraði), og fóru þeir út á veitingastað á milli funda og pöntuðu sér skjaldbökusúpu. Tíminn líður og ekkert gerist, og þjóninn gefur þeim vín hússins í sárabætur fyrir töfina. En tíminn líður, og líður, og ekkert gerist. Össur sendir þá Árna fram í eldhús, að athuga hvað sé eiginlega að gerast.
Árni gengur að hurðinni og sér inn um "kýraugað" hvað kokkurinn er að reyna að hrista skjaldbökuna út úr skelinni, en ekkert gengur. Aha, þar er komin skýringin á töfinni. En Árni hefur ráð undir hverju rifi og gengur inn, réttir kokkinum saxið, leggur skjaldbökuna á borðið og biður kokksa að vera tilbúinn að höggva hausinn af skjaldbökunni. Jája, kokkurinn hlýðir þessum skrítna útlendingi.
Árni treður þvínæst puttanum á kaf í þarminn á skjaldbökunni og rekur hún þá hausinn undan skelinni og kokksi heggur hann af. Hann spyr síðan Árna, hvar hann hafi lært þetta trix. Árni tekur kokkinn með sér að dyrunum, bendir á Össur og segir:
"Sérðu þennan feita þarna með Amish skeggið?"´
"já" svarar kokksi.
"Hvernig heldurðu", bætir Árni nú við, "að ég hnýti á hann þverslaufuna?"
Ég varð bara að segja þennan. Það er auðvitað algjör snilld, að stjórnmálamaður skuli þora að segja svona um sjálfan sig! Klappbroskall fyrir húmoristann með Amish skeggið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Chavez í auglýsingaherferð
![]() |
Chavez hyggst frelsa gíslana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Jújú
Þetta eru góðar fréttir fyrir öfundsjúka Dani og síðan þá sem kaupa þessi bréf fyrir skít og kanil og geta selt þau síðar á betra verði.
![]() |
Ekki góðar fréttir fyrir neinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Skemmtileg kvöldstund á frábærum veitingastað
kringum mig tók ég eftir því að allt starfsfólkið var með skeiðar í vösunum sínum.
Þegar þjónninn kom aftur með súpuna til okkar spurði ég hann:
"Hvað er með skeiðina?"
"Sko...", útskýrði hann, "eigendur veitingastaðarins réðu ráðgjafafyrirtækið Greiningavinnsluna, sem eru sérfræðingar í skilvirkni og afköstum, til að endurskipuleggja alla verkferlana okkar.
Eftir margra mánaða greiningu og tölfræðilegar rannsóknir komust þeir að þeirri niðurstöðu að skeiðin væri það áhald sem oftast dettur í gólfið. Gera má ráð fyrir að tíðnin sé 3 skeiðar á hvert borð á klukkustund. Ef starfsólkið okkar er tilbúið til að mæta þessu vandamáli, þá getum við fækkað óþarfa ferðum í eldhúsið og sparað sem varar 15 mannstundum á hverri vakt."
Eins og örlögin kusu þá misst ég skeiðina í gólfið og hann gat skipt henni út fyrir þá sem hann hafði í vasanum. "Ég næ í aðra skeið næst þegar ég fer inn í eldhús í stað þess að gera mér auka ferð þangað núna."
Ég var nú frekar "impressed" af þessu öllu saman. Ég tók eftir því að það var lítill spotti hangandi út úr buxnaklaufinni hjá þjóninum. Þegar ég leit betur í kringum mig tók ég eftir að allir þjónarnir höfðu svona bönd hangandi út úr buxnaklaufunum. Þetta vakti forvitni mína á ný og áður en hann komst í burtu spurði ég þjóninn: "Afsakið, en geturðu sagt mér af hverju þið hafið þessa spotta hangandi þarna...".
"Já, það...", sagði hann vandræðalega og lækkaði röddina "það eru ekki allir eins athugulir og þú. Þeir hjá ráðgjafafyrirtækinu sem ég nefndi áðan, fundu einnig út að við gætum sparað tíma sem eytt er á klósettinu."
"Hvernig þá?"
"Sko", hélt hann áfram, "með því að binda þennan spotta á þú veist ..., getum við togað hann út án þess að snerta hann og með því móti eytt þörfinni fyrir að þvo okkur um hendurnar og þar með stytt tímann á klósettinu um 76.39%."
"En eftir að þú nærð honum út, hvernig seturðu hann þá inn aftur?"
"Ja...", hvíslaði hann jafnvel enn lægra, "ég veit ekki um hina, en ég nota nú bara skeiðina."
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Mun Hillary Clinton spila með Liverpool?
Merkilegt grein í Deiglunni hjá Borgari-næstumþví-Haarde. Þar segir hann að FOx News sé í raun sá aðili, sem tapaði mestu í forvalskosningunum í New Hampshire í gær. Ég tapaði líka rosalega miklu á falli Berlínarmúrsins, en jæja, tökum strákinn trúanlegan, hann er jú lögfræðingur.
En hann segir svo:
"Það er auðvitað algjörlega fráleitt að halda því fram að sigur Hillary í New Hampshire í gær hafi verið neitt annað en glæsilegur. Endurkoma Liverpool í bikarúrslitaleiknum við West Ham sl. vor, þar sem þeir rauðu lentu tveimur mörkum undir en náðu að jafna á lokamínútunum og sigra í vítaspyrnukeppni, var glæsilegt afrek, þrátt fyrir að Liverpool hefði verið talið sigurstranglegra liðið áður en flautað var til leiks. Sama máli gegnir um Hillary, Obama og forvalið í New Hampshire."
Æ, nú veit ég ekki. Ég man að nýlega var ég að tefla við dreng, sem er miklu lélegri en ég samkvæmt mælikvarða skákmanna, þ.e. eló-stigunum. Ég fékk koltapað en náði að grísa á sigur.
Var þetta glæsilegur sigur hjá mér? Ég var búinn að tapa skákinni, faktískt, gegn mun veikari skákmanni, en náði að snúa taflinu mér í hag undir lokin með trikkum (ja, ég grét þó að vísu ekki við borðið). En sigurinn var ekki glæsilegur.
Ég fagnaði reyndar sigri Hillary, enda tel ég hana besta kostinn af demókrötum. Ég skil vel að Borgar styðji Hillary, enda gæti hann vísað í hana, ef hún sigrar, með þá kenningu, að völd í lýðræðisríki eiga jafnan að haldast í sömu fjölskyldunum (t.d. Bush og Bush, Clinton og Clinton vs t.d. Steingrímur - Hermann, Geir - Borgar), hvort sem um er að ræða völd í landi eða í flokki.
Ég hef ekkert á móti Borgari persónulega og enn síður á móti fósturföður hans, hinum ágæta manni Geir Haarde. Og við erum samherjar í pólítík, báðir félagar í stærsta jafnaðarmannaflokki landsins. En ég fæ alltaf illt í magann þegar nánir ættingjar valdhafa eru að troða sér fram hvort sem þeir eru góðra gjalda verðir eður ei.
Ég legg til að Borgar verði gerður að héraðsdómara fyrir austan líka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Glæsileg útför varð manni að falli!
En jæja, þetta var reyndar útför móður hans. En það hefði svosem mátt koma fram í titlinum.
![]() |
Glæsileg útför varð embættismanni að falli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Er Óttar Felix hættur?
En nú heldur einkavinavæðing kratanna áfram, og einkavinurinn Stefán Ólafsson, sem hefur verið duglegur fyrir þá síðustu ár, fær góða sporslu, formannsstöðu í kennistafaþjófafyrirtækinu við Hlemm.
Ég er greinilega skráður í rangan flokk. Hef aldrei fengið neinar sporslur þar sem ég er núna.
![]() |
Stefán Ólafsson prófessor formaður TR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Ég játa á mig peningaþvætti
Já, ég gleymdi tveimur fimmhundruðköllum í buxunum mínum nýlega og fengu þeir góðan þvott í þvottavélinni.
Ég biðst afsökunar á þessu peningaþvætti. Ég meinti ekkert illt með þessu.
![]() |
Ákærður fyrir peningaþvætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |