Lífshættulegt gáleysi

Svona glannaakstur á að taka fyrir.


Ég varð einu sinni vitni á slíkum kappakstri sem endaði illa. Það var á Miklubrautinni. Annar unglingurinn missti stjórn á bílnum og endaði úti í garði hinumegin. Ég var einn þeirra fyrstu sem kom að ökumanninum, en sá sem tók stjórn á vettvangi taldi ráðlegast að bíða komu sjúkrabíls, enda kunni enginn okkar til verka í neyðarhjálp sem þeirri, er þarna var þörf.

Drengurinn lést síðan af sárum sínum.


Þessu gleymi ég aldrei og fæ því alltaf hroll þegar ég les um að fáráðlingar séu að haga sér með þessum hætti, vitandi hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér. En ekki nóg með að þeir leggi eigin líf í hættu. Þeir leggja einnig líf meðborgara sinna í hættu.


Og slíku þarf að taka á með festu.


mbl.is Á 115 km hraða á Laugavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja Hreyfing opnaði í dag

Loksins.


Ég skal viðurkenna, að ég var orðinn verulega þreyttur á gömlu Hreyfingu. Staðurinn er svosem ágætur eins og hann var, þannig séð, en hann var farinn að láta á sjá og mörg tækin sömuleiðis. Og maður var búnað fá leið á staðnum, skal ég viðurkenna.

Hilmar Björnsson skráði mig þarna upphaflega rétt eftir að staðurinn byrjaði, um 1990. Ég tók síðan væn hlé af og til, og var um tíma í Planet Pulse, sem var magnað á sínum tíma.

En nú er nýi staðurinn búnað opna í Glæsibæ. Hann er ekki alveg fyllilega tilbúinn, en t.d. opnar ekki útiaðstaðan fyrr en c.a. um næstu mánaðamót og Spa-ið ekki alveg tilbúið. En þetta er rosalega flott og ég er hæstánægður og spenntur. Og eitt er víst, að ég mun bæði mæta oftar og vera lengur en ég hef gert á síðustu misserum.

Það eina sem ég finn að, og margir aðrir hef ég heyrt, er að skáparnir eru frekar litlir og erfitt að troða þar inn töskunum sínum. Mæli ég með við Ágústu og liðið í Hreyfingu, að koma einhverjum töskuskáp fyrir í skiptiklefunum, ef laus staður er fyrirliggjandi eða hefja sölu og útdeilingu á minni íþróttatöskum!!

Takk fyrir mig. Þetta var magnað.


Pólítískar fundaherferðir

Já, nú er Samfó að fara af stað með fundaherferð. Flokkur þessi hefur þá amk lært eitthvað af hinum nýja samstarfsflokki sínum, því fundaherferðin fer fram á Íslandi, en ekki á Kanaríeyjum, eins og fundaherferð Framsóknarflokksins.

Æjá, öðruvísi mér áður brá og rúmlega það.
mbl.is Samfylkingin efnir til fundaherferðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður ger hér eftir selt í ríkinu?

"Hann segir að Dingo hafi stolist sársvangur inn í eldhús og gleypt um hálft kíló af gerdegi. Gerjun varð til þess að alkahól myndaðist í maganum á honum með þeim afleiðingum að Dingo varð blindfullur á skömmum tíma."

 

En hvað er þetta alkahól?


mbl.is Dingo datt í það
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Idol

Já, hvað varð um íslensku sigurvegarana? Við vitum reyndar hvað varð um Kalla Bjarna, en eitthvað varð minna úr frægð þeirra en þau hafa vísast gert sér vonir um.

Frægðin er fallvölt....
mbl.is Idol sigur ekki ávísun á farsæld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Íslendingar hamingjusamir?

Æ, ég veit það ekki. Ég held að við séum of uppteknir við að græða pening til að mega vera að því að vera hamingjusamir.
mbl.is Hamingja á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband