Hundraðdagakóngurinn

Já, það er kalt á toppnum. Og Dagurinn er stuttur nú í skammdeginu, eins og Friðjón appelsínublái sagði fyrr í dag.


Þessi "versti dagur ársins" er næstum liðinn. Og nóg að gerast.

1) Fisher grafinn í kyrrþey og með það mikilli leynd að lík hans hefur varla tekið eftir því. Og það var grafið við dyrnar á kirkjunni sem afi og systkini hans reistu og gáfu til minningar um bróður þeirra sem lést ungur, og ég heiti reyndar eftir.

2) Óli F sendir dag í læknisferð til að tékka á Svandísi og meðan þau eru bæði upptekin, og Bingi að skoða jakkaföt í Herragarðinum laumast Óli upp í Valhöll og kemur að þar sem Villi er að setja upp kolluna, og spyr: "Ok, hvaða díl varstu að bjóða mér í afmæli Davíðs? Stólinn og allan pakkann"?

3) Og Dagur fréttir af þessu, enda með njósnara dag og nótt bæði fyrir utan hjá gamla góða Villa og við útidyrnar á Valhöll. Hann hringir sex sinnum í Óla og spyr: "Ertu að henda hnífasettum í bakið á mér"? Ólafur kveður það ekki vera svo. Hann sé ekkert að svíkja neitt, enda hafi hann ekki verið memm þegar Magga lyfti upp pilsinu fyrir rúmlega 100 dögum síðan.

4) Og á meðan á þessu öllu stendur komast fjölmiðlar yfir 1260 þús. króna c.a. reikning Framsóknar hjá Hugo Boss og Herragarðinum. Já, Bingó lætur styrktaraðila flokksins borga fötin á sig. Svo ekki sé talað um allt make-uppið.

´5) Og ég er í fríi eftir að hafa unnið alla helgina og klárað verkefnin. Og ég nenni engu, og eyði deginum í hangs, tiltektir og blogg.


Versti dagur ársins? Nei, en þarna fer Versti Dagur ársins beint í minni hluta aftur.


mbl.is Dagur: Óvanur því að samstarfsmenn segi ekki satt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl-listinn vaknar í eigin kistulagningu

Kannski hefðu sósíalistarnir átt að stjórna aðeins betur, þá hefði þetta ekki gerst.


mbl.is Vaknaði í eigin kistulagningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað ætli farðinn hafi kostað...

...hjá Bingó fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar?


Spyr sá sem ekki veit!
mbl.is Dýr farði hjá Sarkozy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sneitt að Margréti Sverriz

"Ólafur ítrekaði, að staða F-listans hefði verið erfið í fyrra meirihlutasamstarfi. Það hefði einnig verið áberandi í fráfarandi meirihluta, að F-listinn hafði ekki sterka rödd og segja mætti, að ekki hafi verið talað nógu skýrt fyrir þeim í nokkurn tíma. "

Æjá, getur ekki bara verið, að Margrét hafi á sama tíma og hún gekk úr F-flokknum, líka skipt um skoðun á flestum málum og orðið laumukrati?
mbl.is Ólafur: Áherslur komu mjög seint fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bingó í Herragarðinum í dag?

Og vísast að skrifa föt á ÍTR, meðan hann enn getur? LoL


En halló, milljón í föt og það með afslætti.


En nú er spurning hvort ekki séu líka til reikningar frá Byggt og búið:

4 hnífasett, beitt
3 hnífasett, hárbeitt

og sett á reikning Framsóknarflokksins?


mbl.is Keyptu föt fyrir tæpa milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kratarnir alveg að sleppa sér!!

Haha, kratarnir alveg að missa sig og nú heyrir maður að Ólafur sé geðveikur og að Villi hafi verið að misnota sér ástand Ólafs, að hann sé ekki með fulle fem og so videre!!

Ótrúlega tapsárir kratarnir!

En þeim var nær að standa svona illa að stjórnun borgarinnar.

 

En 1929 sameinuðust Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn (gamli) nánast undir merkjum og stefnu Frjálslynda flokksins og kom saman í Sjálfstæðisflokknum.


Og þessi stefnuskrá virðist vera nær eingöngu stefnuskrá Ólafs. En þetta meikar sens:

1. Geymum umræðuna um flugvöllinn
2. Förum strax í mislæg gatnamót á Kringlum/Miklubr. Rugl-listinn eyðilagði það mál.
3. Losnum við Bingó úr stjórn og milljón króna fataskápinn hans.
4. Og félagslegu málin, sem þarna komu fram, meika sens og ég er mjög ánægður með.


Til hamingju Reykvíkingar. Stjórn án Framsóknar og sósíalista hlýtur að vera góð. "Hægri" stjórn tekin við í Reykjavík.


Ólafur borgarstjóri

Gott að fá gamlan skákmann í stól borgarstjóra, amk fyrir mig persónulega.

Allt er betra en Rugl-listinn. Wink

EN hvað ætli Bingó hafi skilið eftir mörg hnífasett í bakinu á Ólafi??
mbl.is Ólafur og Vilhjálmur stýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr borgarstjórnarmeirihluti tekur við! Glæsilegt!

Glæsilegt.

Gott að losna við þennan nánast óstarfhæfa Rugl-lista.

Endalaus umræðu og nefndavinna, og ekkert gert af viti, amk ekki mikið.

Út með þetta lið.

Góðar fréttir!!!
mbl.is Nýr meirihluti í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju að grafann þarna?

Jæja, Fischer er grafinn aðeins nokkra metra frá þeim stað þar sem afi fæddist. Og í kirkjunni sem afi og systkini hans byggðu og gáfu.


Ég skil ekki af hverju þessi kirkjugarður var valinn. Skil ekki að hann hafi haft nein tengsl þarna austur. (Viðbót:jæja, málin hafa skýrst; tengdó Garðars Sverrissonar býr þarna og Fischer hefur heimsótt staðinn oft og líkað vel!)

En jæja, svosem ekki verri staður en margir aðrir og gott að þetta skyldi hafa farið fram í kyrrþey til að losna við fjölmiðlasirkus og svoleiðis leiðindi.

RIP
mbl.is Fischer jarðsettur í kyrrþey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig svarar Hamas þessu?

Jú, vísast með enn frekari eldflaugaárásum.

En hvað með að það sé rafmagnslaust á Gasa? Þetta raforkuver sá bara um 25% raforku Gasabúa, restin kom frá Ísrael (70%) og Egyptalandi (5%) og hélt það áfram að berast.

Ef allt er rafmagnslaust á Gasa er það af því að Hamas slökkti á rafmagninu viljandi, til að kría fram samúð og stuðning umheimsins.
mbl.is Lyf og eldsneyti til Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 21. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband