Jæja, best að fara að selja gullið sitt

Roar, jæja. Ég kíkti ofaní gullgeymsluna og þar átti ég bara gamla leggi og völuskrín.

En úr því sem komið er segi ég bara:

"Við skulum ekki vaka um dimmar nætur".
mbl.is Metverð á gulli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð úrslit!

Bæði Liverpool og KR að tapa stigum, og það mjög illilega LoL

Ég sá áðan skrifað á spjallhorni að nú sé það stefna Liverpool að verða fyrir ofan M'Boro í vor. Ég vona þó að það takist, en tæpt verður það.
mbl.is Man City lagði Newcastle, 2:0 - Liverpool gerði 1:1 jafntefli við Wigan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skeljungsmótið 2008 -- skráning hafin

grandprixSkeljungsmótið - Skákþing Reykjavíkur 2008 mun hefjast sunnudaginn 6. janúar 2008. Teflt verður, að venju, á sunnudögum kl. 14.00 og miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30. Mótið fer fram í Skákhöll Reykjavíkur, Faxafeni 12.


Teflt verður í einum flokki, opnum öllum skákmönnum. Tímamörk eru hefðbundin, eða 90 mínútur á skák, en að auki bætast við 30 sekúndur á leik.


Dagskrá mótsins  

1.  umferð sunnudag      6. janúar  kl. 14-18 

2.  umferð miðvikudag  9. janúar  kl. 19-23 

3.  umferð föstudag      11. janúar  kl. 19-23 

4.  umferð sunnudag    13. janúar  kl. 14-18 

5.  umferð miðvikudag 16. janúar  kl. 19-23 

6.  umferð föstudag      18. janúar  kl. 19-23 

7.  umferð sunnudag    20. janúar  kl. 14-18 

8.  umferð miðvikudag 23. janúar  kl. 19-23 

9.  umferð föstudag      25. janúar  kl. 19-23 


Skákþingið er reiknað til íslenskra og alþjóðlegra skákstiga. 


Skráning fer fram í síma 895-5860 (Ólafur) eða í netföngin  taflfelag@taflfelag.is  og oli.birna@simnet.is


Nokkrir keppendur hafa þegar skráð sig, þeirra á meðal stórmeistarinn Henrik Danielsen, alþjóðlegu meistararnir Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson og FIDE-meistararnir Sigurður Daði Sigfússon og Ingvar Þór Jóhannesson. Síðan er næsta víst að fleiri bætast í hópinn.



Verðlaun verða:

1. sæti: 100.000
2. sæti:   60.000
3. sæti:   40.000


Þátttökugjöld verða : 3.500 krónur fyrir fullorðna / 2.000 kr. fyrir grunnskólabörn.


Sigurvegarinn hlýtur jafnframt nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur, sé hann búsettur í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélagi.


Núverandi skákmeistari Reykjavíkur er Sigurbjörn J. Björnsson.


Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 27. janúar og hefst það kl. 14.00. Tefldar verða 2x7 umferðir eftir Monradkerfi.


Djúpsteikt kremkex?

Verður þetta páskakexið frá Frón 2008?

Meira bullið er þetta nú.


mbl.is Hætt að borða djúpsteikt kremkex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegabréfsáritanir til USA

Jú, það kostar líka að halda fólki í fangaklefum og kalla út bakvaktir af FBI mönnum til að yfirheyra allskonar fólk sem landamæravörðunum hefur þóknast að handtaka.

mbl.is Umsóknargjald fyrir vegabréfsáritun til Bandaríkjanna hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stressaðar nunnur

Það segir sig sjálft.


mbl.is Trúariðkun og hjálplegur eiginmaður draga úr streitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsalki

En þetta gæti útskýrt


a) af hverju Björk er jafnan eins og þroskaheft hæna í viðtölum
b) af hverju viðtöl eru tekin við hana seint á föstudagskvöldum.


En þetta hlýtur að hafa verið "misquote".


mbl.is Lítri af óblönduðum vodka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítið

Sko, þessi samanburður er rangur. Bon Jovi er snillingur, Tom Cruise er fáviti.


En hitt er svo annað mál að Bon Jovi hefur ekki fengið þá viðurkenningu sem hann á skilda. En ég átta mig á ekki á, af hverju Tom Cruise á viðurkenningar inni fyrir myndir sínar. Hann hefur ekkert gert af viti (að mínu mati) síðan Rain Man. En Bon Jovi er enn að framleiða góða músík!

mbl.is Líkir sér við Tom Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þess vegna eru þeir orðnar fitubollur

Málið dautt.
mbl.is Bretar þjóða hrifnastir af skyndimat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Smárinn fái séns með Barca?

Ja, vonum að hann verði fjögurra laufa Smári í næsta leik og haldi síðan sæti sínu í þeim leikjum sem framundan eru og skipta máli.
mbl.is Eiður í hópnum en Ronaldinho ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 2. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband