Lággjaldaflugfélög

Ojæja, alls staðar tekst þeim að smyrja.


Ég fer gjarnan með Icelandair til Lundúna eða Köben og borga jafnan fyrir 18.500 c.a. á netinu, fyrir utan flugvallarskatta auðvitað. En nýlega flaug ég til Frankfurt og var þá ódýrast hjá Iceland Express, 40.000 kall rúmlega.


Og ekkert innifalið auðvitað. Ógeðslega vond samloka á um eða yfir 400 krónur, Mogginn seldur osfrv. Hvað fær maður eiginlega fyrir þennan 40.000 kall? Bara sætið við hliðina á salerninu?


Greinilega. Mér fannst þetta allt of dýrt til Hahn, sem er gömul herflugstöð, þar sem ekkert að gerast. Ömurlegur flugvöllur....en sem betur fer stuttar biðraðir og ómögulegt að villast!


En a.m.k: ég mun reyna að komast hjá þvi að flúgja með Iceland Express í náinni framtíð, nema ég megi til. Frekar borga ég nokkrum þúsund köllum meira, fæ að lesa Moggann, fæ frítt vatn og einhvern smá matarbita, og alvöru þjónustu um borð....og ekki flug út á gamlan herskála.


Og EasyJet! Æ, nei takk. Ekki nema í algjörri neyð.


mbl.is Brátt þarf að borga undir töskur hjá easyJet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KR Nörd sería væntanleg á Sýn!

krnordSamkvæmt öruggum heimildum er væntanleg ný sería af KR Nörd þáttunum vinsælu.


Nú bíða menn spenntir! Tekst Loga daggardropa að kenna KR nördunum að spila fótbolta?


Snobbdrottningin

poshMargar "stjörnur" hafa það orð á sér að vera yfirmáta snobbaðar. En líkast til hafa fáar unnið sér svoleiðis nafngift inn eftir aðeins nokkrar vikur í Hollywood. Það virðist Viktoríu Beckham hafa tekist og það með stæl.


Ég trúi því frekar þeim sögum, að Snobb-kryddið hafi strunsað út undan Britney. En ég nánast vorkenni Becks sem virðist hinn vænsti drengur.


Og ekki undrar mig, að veitingahúsafólk skuli ekki vera mjög spennt fyrir Viktoríu, ef hún lætur svona. Flestir fara út að borða til að nærast eða e.t.v. að hitta annað fólk. En Viktoría virðist fyrst og fremst fara út að borða til að sýnast og troða sér í fjölmiðla....ef rétt er eftir haft.


mbl.is Britney vildi ekki sitja næst Viktoríu - eða öfugt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dregið í Meistaradeild Evrópu

3Ensku liðin tvö, Arsenal og Liverpool, fá tiltölulega erfiða andstæðinga í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu.


Arsenal mætir góðkunningjum liðsins í Sparta Prag, en Tékkarnir eru sýnd veiði en ekki gefin. Liverpool mætir franska liðinu Toulouse (eða To lose eins og sumir segja).


Þótt ensku liðin séu vitaskuld sigurstranglegri, má ekki afskrifa þessi tvö ágætis lið.


En áfram "England"! (Já, ég vona að Liverpool komist áfram Wink).


mbl.is Dregið í þriðju undankeppni Meistaradeildar Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ítalskir karlmenn

Já, ég hef lúmst gaman að þessum ítölsku siðum, þó ég fatti t.d. ekki hvers vegna ítalskir karlmenn fari með óhreina þvottinn sinn til kærustunnar til að láta þvo. Þeir verða alveg gjörsamlega hjálparlausir greyin og sést það ágætlega þegar þeir bregða undir sig betri fætinum og dvelja lengri eða skemmri tíma í útlöndum.

 

Þegar ég var í Englandi í námi 1992-93 var ég í "heimavist" með nokkrum ítölskum stelpum. Þær furðuðu sig mikið á þeirri sérvisku minni að vilja þvo fötin mín sjálfur, elda mat á eigin spýtur, skúra gólf og svo framvegis. Þeim fannst jafnvel hart að sér vegið þegar ég sinnti mínum eðlilegu húsverkum fyrir sameiginlegar þarfir, t.d. með því að skúra eldhúsið. Þeim fannst ég vera að fara inn á þeirra verksvið. Mér fannst nóg komið þegar hin elskulega ítalska stúlka Daniella Cambiasso  laumaðist inn til mín, þegar ég var að tefla með skákliði Háskólans utan borgarinnar, sótti óhreina þvottinn minn, þvoði hann og straujaði. Ég var ekki að fíla þetta, en þakkaði henni fyrir og bað hana vinsamlegast að leyfa mér að þvo af mér sjálfur. Ég hefndi mín síðan eitt kvöldið þegar hún skrapp í bíó með stelpunum og tók "hennar dag" í húsþrifunum, skrúbbaði eldhúsið hátt og lágt, og skildi eftir blómvönd á eldhúsborðinu. Uppfrá þessu varð maður eins konar legend meðal ítalskra stúlkna þarna á svæðinu, svo að manni þótti nóg um.


Og þetta fór mjög illa í ítölsku strákana. Einn Ítali þarna, Andrea (var með honum í tíma í bandarískri samtímasögu), var mjög ósáttur, en hann hafði einmitt náð sér í ítalska kærustu þarna í skólanum, greinilega aðallega til að fá sér ókeypis ráðskonu, því hann hafði síðan local stelpu "on the side" til að sinna ýmsum öðrum þörfum. Þegar sú ítalska fór síðan að neita að þvo af honum og sagði, að hann geti bara gert eins og þessi skrítni Íslendingur, lét hann mig aldeilis heyra það. Fleiri ítalskir strákar voru einnig óánægðir með þessa þróun, en mér skilst þó, að þeir hafi nú jafnan fengið sínu fram að lokum, amk sumir. En Andrea greyið mætti jafnan í óhreinum fötum í tíma og gekk svo langt að reyna að fá mig til að hjálpa sér að þvo. Já, einmitt!


Ég held að þetta sé fyrst og fremst rótgróinn vani hjá ítölsku kvenfólki, að sinna karlmönnunum með þessum hætti. Ég efast nefnilega stórlega um, að þær séu fullkomlega ánægðar með þetta (amk efast ég um almenna gleði meðal yngri kvenna og þeirra betur menntaðra), þó vissulega sé misjafn sauður í mörgu fé.


En hitt er svo annað mál, að ég efa ekki að íslenskir karlmenn yrðu almennt mjög sáttir, ef þetta ítalska system yrði tekið upp á Íslandi!


mbl.is Mömmustrákur á sjötugsaldri komst í klandur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband