Sunnudagur, 29. júlí 2007
Norðurlandameistaratitill
Til hamingju Lenka! Vel að verki staðið vina.
Hlýtur að vera afrek að vinna svona mót og það komin þetta langt í meðgöngu.
Hún er svo til vinstri á myndinni hjá Mogganum, ekki til hægri, eins og þar segir, eða sagði amk þegar ég gáði síðast.
Meðfylgjandi mynd er tekin í gömlu Leifsstöð 2005, þegar við vorum á leiðinni á mót í Serbíu.
![]() |
Lenka Ptácníková Norðurlandameistari í skák |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Formsatriðum fullnægt.
Já, annað kom aldrei til greina en sigur. Ungu strákarnir í Arsenal fóru auðvitað "létt" með Inter, enda er mikill munur á þessum deildum, ensku úrvalsdeildinni og ítölsku Serie A.
Og það besta við þetta er, að Boris var á forsíðu Moggans, er víst að fara í framboð til borgarstjóra. Tek fram að þetta er local húmor.
Áfram Arsenal!
![]() |
Arsenal hafði betur gegn Inter |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Gott að losna við hann!
![]() |
Reyes á leið til Atletico Madrid |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Hroðalegt atvik
Við vitum svosem ekki mikið hvað gerðist þarna, en hér bendir ýmislegt til, að maður hafi verið myrtur með köldu blóði og það á skipulagðan hátt, en ekki í einhverju æði, eins og oftast er raunin, þegar um svipað er að ræða.
Maður veit eiginlega ekki hvað skal segja þegar svona gerist á litla Íslandi. Það er ekki oft sem ég verð kjaftstopp.
![]() |
Maðurinn sem varð fyrir skotárás í Reykjavík er látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Sannana krafist af RUV
Það er hreint með ólíkindum fréttamennskan í RUV og öðrum ríkismiðlum. Nú hefur RUV birt frétt þess efnis, að Össur Skarphéðinsson ráðherra hafi verið mútað til að láta raka af sér Amish-skeggið á meðan á mótmælum Shaving Iceland samtakanna stóð.
Shaving Iceland samtökin mótmæla vitaskuld þessum aðdróttunum RUV og krefst þess, að útvarpsstjóri eða fréttastjóri komi fram með sönnun til stuðnings fullyrðingum sínum.
Munið að kíkja á: http://www.shavingiceland.org
![]() |
"Saving Iceland" krefur RÚV um sannanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Hættulegt að spila golf!
Sumir eru greinilega það höggfastir, að þeir skjóta niður fugla á báðar hendur. Og þessi Akureyringur virðist hafa verið harðastur í veiðinni, en hann veiddi sjö fugla á einum degi og það án þess að hleypa af skoti.
Ein af mínum elstu minningum er frá því, þegar ég fór með pabba að veiða, forðum daga í sveitinni. Þá sat ég (lengst af) í bílnum, meðan hann fór út og skaut í matinn.
Þá var öldin önnur. Í dag nota menn bara golfkylfur til að veiða sér í matinn.
![]() |
Björn fékk sjö fugla á Hvaleyrarvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |