Merkilegt samstarf

Slökkviliðið og Kyndill!

Spurningin er því, hvort slökkviliðið hafi ekki slökkt i kyndlinum?

 


mbl.is Slökkviliðið og Kyndill slökkva í mosabruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrælahald

slavesEkkert annað orð til yfir þetta. "Slave labour".  400 kr. á tímann. Þetta er andstyggileg framkoma við fólk, sem ferðast langan veg til að reyna að sjá fjölskyldum sínum heima fyrir lífsviðurværi.
mbl.is Rafiðnaðarsambandið vill láta rífa verk pólskra starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur á Hvít-Rússum í Varna!

DSC00288Íslendingar sigruðu Hvít-Rússa í dag á Evrópumóti grunnskólasveita, þrátt fyrir að 1. borðsmaðurinn væri lasinn og gæti ekki keppt með.

Sjá: http://www.taflfelag.is um úrslit og fleira.

 


Fáránlegt kerfi í USA

Ruglað kerfi. Eins og nýlega, þegar þjófur í verslun fékk svimandi skaðabætur fyrir meiðsli, sem hann hlaut þegar öryggisvörður stöðvaði hann!

Ruglað samfélag sem gerir svoleiðis mögulegt, jafnvel þó að engar bætur hafi verið þetta skiptið.


mbl.is Fær ekki 3,4 milljarða í bætur fyrir horfnar buxur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er 1 = 1400?

d_bloggi_heil_hamasAmk fara íslömsku samtökin, sem rændu Shalit, fram á 1.400 palestínska fanga, suma háttsetta, aðra morðingja, suma bara fanga, í skiptum fyrir einn ísraelskan hermann.

Greinilegt að sjálfsálitið er ekki ýkja hátt, úr því þeir verðleggja einn Ísraela jafnhátt og 1.400 Palestínumenn!

En verði orðið við þessu, mun þetta því miður bara halda áfram og hvað gerist svo, þegar engir fangar verða eftir? Þá þyrfti að fara á stúfana og handtaka nokkur þúsund Palestínumenn, bara til að eiga nóg til að skipta á við einn hermann?

Og Haniyah gerir auðvitað ekkert í málinu, enda er þetta honum þóknanlegt svosem, eða passar amk við hugmyndafræði hans -  þe. að vopnin skuli tala. Og núna var hann að segja eitthvað í gær, en það er ótrúverðugt, eins og ég ræddi í gær.

En í öllu falli eru þessi skipti út úr korti. Ég væri þó hlynntur slíku, ef t.d. Kaupþing myndi taka upp sömu reglu. Þá færi ég og skipti 5.000 kr. peningi og yrði ríkur.


mbl.is Shalit: Ég hef verið í gíslingu í eitt ár og þarf læknisaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Emil kominn aftur inn??

Kíkti á vinsæl blogg og þar stendur:

 

En hann var greinilega bara að plata, því með því að klikka á þetta, segir bara:

 

Höfundur hefur læst bloggi

Höfundur hefur læst bloggi sínu með lykilorði.

Einungis handhafar lykilorðsins geta skoðað þetta blogg með því að slá það inn hér að neðan.

 

Já svona er þetta nú. Hann virðist ekki vera viss um hvað gera skuli. En vonandi heldur hann þessu þá bara læstu fyrir sig og vini sína.


Körfuboltamenn taka þetta!

Ekki svo oft, sem körfuboltamenn fá fimm villur! Ja, ekki nema þeir séu tuddarar.
mbl.is Fimm villur á Flórída boðnar fyrir lágt verð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalatalning!

1. http://hvala.blog.is 

Restin er bara aukaatriði :)


mbl.is Hvalatalning að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var verið að loka á Emil Ólafsson??

fn_1584Jæja, ég sá færsluna hjá Stefáni Fr. áðan, og sýndist af því, að búið væri að grípa til ráðstafana gegn bullinu í Emil Ólafssyni. Ég fór og tékkaði á listanum yfir "vinsælustu bloggin" og sá þá, að Emil, sem hafði verið í 3. sæti og stefndi á toppinn, er horfinn af listanum.

Ég hef bara eitt um þetta að segja, ef rétt reynist: SNILLD!

Hér er málfrelsi, en ef menn misnota frelsið til að meiða og særa fólk að tilefnislausu og af ásettu ráðu, skal taka það af þeim.

Mitt álit er: Gott að losna við þennan rugludall út af blogginu.

 


Er Ólafur í Nautsmerkinu?

Ja, maður veltir því fyrir sér, úr því hann sá rautt. En vonandi hefur hann ekki stangað dómarann.
mbl.is Ólafur sá rautt í tapleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 25. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband