Sunnudagur, 24. júní 2007
Gíslataka á Gasa
En ég spyr: af hverju hefur Hanaiyah umborið gíslatökuna í 103 daga?
Þetta er hræsni. Hann hefur haft nægan tíma til að leysa AJ úr haldi, hann veit ábyggilega nákvæmlega hvar honum er haldið.
Maðurinn er að reyna að lappa upp á almenningsálitið í heiminum eftir blóðuga daga á Gasa og meðfylgjandi ógnarstjórn. Ódýrt trikk. En ég efast um að margir trúi honum.
![]() |
Haniya vill fá Alan Johnston lausan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 24. júní 2007
Farið hefur fé betra
Ég verð nú bara að segja það, að ég hef ekki áhyggjur af þessu...þ.e. þessu banni. Þó mér sé um og ó að sjá 1 dag hvers mánaðar vera undirlagðan frekari bönnum og höftum á frelsi fólks, þá er þetta "frelsi", sem hér er til umræðu, eitt af því sem mín vegna má takmarka og það all hressilega.
![]() |
Einkadansinn líður undir lok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 24. júní 2007
Ég missti stjórn á skapi mínu í dag
Já, það gerist stundum, en sem betur fer ekki oft. Það er einn maður í heiminum sem ég þoli ekki og mun ekki getað þolað. Hann hefur fengið endalausa sénsa, en kemur alltaf aftur með dónaskap, svívirðingar, ósannindi og óhróður um menn, og virðist hafa sérstaka ánægju af að ráðast á mig og aðra þá, sem þó hafa reynt að vera almennilegir við hann.
Það kemur að því að menn fá nóg, ekki síst þegar paranoia og æði mannsins er farið að valda vini manns ótta um lífskjaraskerðingu, og þá meina ég fjölskyldumann með ungabörn.
Hann virðist vera þeim verstur, sem reynt hafa að reynast honum vel.
Og í dag ætlaði ég að horfa á skákmót þegar umræddur maður kemur og leikur sakleysinga. Þykist ekkert kannast við að hafa gert neitt af sér. Og ekki í fyrsta skipti. Þetta er alltaf öðrum að kenna. Og ég sem óskaði honum til hamingju með 100 ára afmæli vinnustaðar hans og fékk bara til baka svívirðingar; ég væri nýnasisti og með fordóma gegn geðsjúkum. Og ég sem hafði bara óskað honum til hamingju með afmæli vinnustaðar hans. Og þetta var bara byrjunin.
Og hann kemur nú og leikur sakleysing. Það sauð á mér, því ég fylgdist úr fjarlægð með þegar vinur minn, fullur angistar, baðst vægðar af höndum þessa manns, sem hefur greinilega gaman af að koma af stað deilum og erjum, en fékk bara hlátur á móti: Gott á þig, sagði hann. Það sýnir hugarþel, sem mér líkar ekki. Já, vinur minn baðst vægðar þegar umræddur maður hótaði að kæra hann við vinnuveitandans, sem hefur verið að segja upp fólki, af því að amk eitt bréf hafði verið skrifað á vinnutíma. Og eðlilega óttaðist þessi vinur minn um starf sitt. En ofbeldismaðurinn fussaði bara og fannst þetta bara hæfilegt á fjölskylduna og ungabörnin, þau yrðu að taka afleiðingum gerða fjölskylduföðurins. Og vinur minn þessi var að svara leiðindum þessa manns og missti sig dálítið.
Maður þessi sagðist síðan nýlega, í bloggi sínu, auðvitað ekki hafa látið verða af þessari hótun, að klaga í yfirmanninn. En við þennan vin minn sagðist hann hafa klagað hann...Því fer tvennum sögum.
Já, ég missti stjórn á skapi mínu og sagðist finna skítafýlu úr munni hans og kallaði hann aumingja að hegða sér svona. Ég hefði mátt velja sterkari orð. En ég rauk síðan á dyr til að segja ekkert meira.
Kom síðan inn skömmu síðar og sat þar í friði og spekt, þegar umræddur maður kom fram og byrjaði að hreyta á mann orðum. Ég sagðist ekki ætla að tala við hann, en hann hélt áfram, og áfram, að hreyta í mig ónotum, meðan ég sat og þagði, uns ég að lokum snappaði.
Auðvitað á maður ekki að missa stjórn á skapi sínu. Ég get svosem þolað að þessi maður ráðist á mig með svívirðingum og dónaskap. Þar á ég margra ára reynslu að baki og er ýmsu vanur. En ég uni ekki að sjá hann ráðast að vinum mínum - og það fleiri en einum á síðustu misserum - með þessum hætti, hvað þá fjölskyldu eins þeirra.
En þessi maður er eini maðurinn í heiminum sem mér er illa við. Ég myndi frekar vilja vera með Osama bin Laden og herdeild af Hamas liðum á eyðieyju en þessum manni. Með hinum fyrrnefndu yrði þó amk friðsælt... :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 24. júní 2007
Frjáls!
Jæja, þá eru landsmenn hættir að vinna fyrir ríkið. Kominn tími til. Gallinn er, að við förum aftur að vinna fyrir ríkið 1. janúar.
Þetta er farið að verða næstum eins og í Sovét.
![]() |
Andríki: Landsmenn voru að vinna fyrir hið opinbera til 21. júní |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)