Er Steingrímur búinn að gista þarna?

steingrimur nyvaknadurSteingrímur Sigfússon þeas. Þetta hótel virðist alveg sniðið fyrir þann hluta VG-liða, sem vilja helst af öllu lifa í fortíðinni.

 


mbl.is Austurblokkin endurvakin í austur-þýskri blokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosalegasta súkkulaðikaka sem ég hef séð

Já, í gær lenti ég í deilum við súkkulaðiköku. Hún kallaði á mig, þar sem ég sat í sakleysi mínu í sófanum frammi í anddyri Skáksambands Íslands. Ég sagði henni að láta mig í friði, en hún hélt áfram að kalla til mín: "Komdu og smakkaðu mig"!

Eftir að hafa barist af hörku við að standast kökuna og meðfylgjandi rjóma, varð ég að víkja af staðnum. Hjördís kann svo sannarlega að baka kökur. 

En ég mátti þó ekki smakka, af heilsufarslegum ástæðum. En Bjössi Þorfinns borðaði minn skammt

 


"You make me proud", eins og skáldið sagði.

Jæja, ég legg til að nú verði umskipti. Stelpurnar fái það fyrir leikinn, sem strákarnir hafa fengið hingað til, og öfugt. Helst afturvirkt.

Undirritaður er svo stoltur af stelpunum, að hann á ekki orð. Nú gerist það bara að Ísland keppir við Arsenal (sem spilar undir nafninu England í kvennaboltanum) um Evróputitilinn.

Áfram stelpur! Þetta er slík snilld, að maður veit ekki í hvorn fótinn á að stíga.


mbl.is Fimm marka sigur Íslands á Serbum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband