Klámnetlöggan byrjuð að undirbúa sig fyrir vinstri stjórn

fn_1584

 

 Og fyrsta atriðið var, að hanna meðfylgjandi...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Tveir vinstriforingjar

kaffibandalagJæja, þá hefur maður það. Ingibjörg er byrjuð að tremma sig niður og byrjuð að reka jákvæðari kosningarbaráttu en áður. En Steingrímur vill ekki svara spurningum, ef þeir eru "ósanngjarnar" (þe. svör þeirra gætu orðið óþægileg VG) og er með skæting, ef réttilega er varað við samstjórn margra flokka, sem starfa myndu undir vinstri merkjum.

Er nokkur furða þó Samfó hækki, en VG minnki? 

Og þar að auki vil ég segja, að ef Geir á að velja sér "sæta stelpu á ballinu" eftir helgi, er Ingibjörg greinilega myndarlegri, ef tekið er mið af þessum þætti. Hún hefur, merkilegt nokk, vaxið í áliti hjá mér á síðustu misserum, ef undan eru skilin hin hefðbundnu kjánamistök, sem stjórnmálamenn gera oft í aðdraganda kosninga.

Og er ég svo farinn að hallast að því, að ISG hafi haft rétt fyrir sér með það, að þingflokkurinn sé lélegur.

 


mbl.is Steingrímur: forsætisráðherra hreytir ónotum í kjósendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara að spá!

 

Bandaríska herliðið í Afganistan hefur staðfest að óbreyttir borgar hafi látið lífið í átökum herliðsins í landinu og liðsmanna (hverra) í Helmand héraði í suðurhluta landsins fyrr í þessari viku. „Staðfest hefur verið að óbreyttir borgarar létu lífið. Enn er hins vegar óljóst hversu margir þeir voru,” segir í yfirlýsingu hersins. Þetta er í þriðja sinn á nokkrum mánuðum sem bandaríska herliðið viðurkennir fall óbreyttra borgara í aðgerðum sem ekki eru gerðar í umboði fjölþjóðaliðs NATO í landinu hermenn. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

...

Fréttaskýrendur segja nær ómögulegt að fá áreiðanlegar tölur um (hvað)?


mbl.is Bandaríska herliðið staðfestir dauðsföll óbreyttra borgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg könnun

Já, gaman að þessu. Sjálfstæðisflokkur með tæp 45%.

Vorið er komið.


mbl.is Ríkisstjórnin héldi velli skv. könnun Blaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ævintýri Sævars Ciesielskis í útlöndum

saevarJæja, allt fram streymir endalaust. Ævintýrin halda áfram að gerast.

Sævar Marinó Ciesielski var að koma aftur til landsins. Ekki er langt um liðið síðan hann fór framarlega í flokki ungdómsmótmælenda í Kaupmannahöfn, þegar Ungdómshúsinu var lokað, og var handtekinn og settur í fangelsi, við illan aðbúnað.

Nú, hann færði sig síðan um set til Svíþjóðar, og tók þar þátt í mótmælagöngum með sænsku ungviði. Og löggan komst í spilið að nýju og mátti sæta eftirliti og aðfinnslum lögreglu þar á eftir. Nú, síðan ætlaði hann aftur til Kaupmannahafnar og sat inni á brautarstöðinni í Stokkhólmi. Þar sat hann og las gögn sín og skjöl, þegar ungir menn, öryggisverðir þar, komu að og sögðu hann óvelkominn þar inni. Hófu þeir kylfurnar á loft og tóku upp maze-brúsa og ógnuðu kappanum.

Hrökklaðist hann þá aftur til Kaupmannahafnar, en þar héldu ævintýrin áfram, var m.a. tekinn í Hovedbanegarden, þegar lögreglumenn gengu að honum og spurðu: "Ertu ekki eftirlýstur af Interpol, í Danmörku og/eða á Íslandi". Beint í steininn. Fortíðin eltir menn greinilega víða.

Sævari var síðan sleppt. Hann segist m.a. hafa afrekað það, að vera einn fárra manna, sem séu í banni frá Kristjaníu. Það hafa ekki margir afrekað.

En Sævar er nú kominn heim í stutta heimsókn til Íslands.

 

 


Stjórnin heldur velli: Sjálfstæðisflokkur yfir 40%

13maiJæja, enn ein skoðanakönnunin komin, að þessu sinni frá Fréttablaðinu. Samkvæmt henni heldur stjórnin velli og vel það. Sjálfstæðisflokkur vinnur stórsigur, VG dettur niður í "eðlilegt" fylgi, eftir að hafa mælst með minnir mig amk 27% í sumum könnunum. Samfó er líka komin í "eðlilegt" fylgi, svona um 25%. Frjálslyndir fá 3 þingmenn, tapa einum, Framsókn fær sex þingmenn, og fara niður í logum, grínframboðið (sem sendi mér rosa umslag í gær) hans Ómars kemst ekki inn, enda engin ástæða til.

Ég held reyndar, að Sjálfstæðisflokkurinn sé ofmældur þarna, en þá um "eðlileg" vikmörk, þ.e. 2-3%. Ég á von á c.a. 38% fylgi, þegar talið verður upp úr kössunum að Eurovisionlausu kvöldi 12. maí. Mér þykir líklegt að báðir vinstri flokkarnir sýni hér um það bil rétt fylgi að Vg fái 10 þingmenn og Samfó 16, mínus-plús einn. Framsókn eða Frjálslyndir gætu tekið einn hvor til viðbótar, þá vísast annan frá Sjálfstæðisflokki og hinn frá Samfó.

c_xdMér sýnist, miðað við þetta, að vinstri stjórn sé aðeins möguleg með þátttöku fjögurra flokka, þ.e. kaffibandalagsins og Framsóknar. S, V, og B gætu náð 32 þingmönnum samanlagt, eða 33, en sá meiri hluti yrði tæpur, þar eð málamyndanir yrði margar og efast ég um að það myndi reynast létt verk, sér í lagi á milli VG og Framsóknar.

Niðurstaðan hlýtur því að vera, að D-listinn muni halda áfram í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili og þá vísast í samkrulli með Samfó eða Framsókn.

En hér á eftir er frétt Fréttablaðsins um þessa skoðanakönnun:

  

Stjórnin með meirihlutafylgi

Kosið verður á morgun til Alþingis og kemur þá í ljós hvernig atkvæðin falla í þessum þingkosningum. Samkvæmt síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins fyrir þessar kosningar mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 42,2 prósent og fengi 28 þingmenn kjörna. Fylgið dalar hjá þeim um 0,3 prósentustig frá könnun blaðsins sem birt var á sunnudag. Vikmörk eru 2,0 prósentustig. Þann fyrirvara verður þó að setja, þar sem Fréttablaðið spyr ekki hvort svarendur séu líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða annan flokk, að reynsla af könnunum fyrir kosningar sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn reynist oft of hátt mældur.

24,6 prósent segjast myndu kjósa Samfylkingu, sem dygði til að fá sextán þingmenn. Vikmörk eru 1,8 prósentustig. Fylgi flokksins eykst um 0,6 prósentustig frá því á sunnudag.

Fylgi Vinstri grænna mælist nú 16,1 prósent, með vikmörk upp á 1,5 prósentustig. Það er nánast sama fylgi og á sunnudag. Ef það verða niðurstöður kosninganna fengi flokkurinn tíu þingmenn.

Framsóknarflokkurinn mælist nú með 9,1 prósents fylgi, 0,4 prósentustigum minna en á sunnudag. Samkvæmt því fengi flokkurinn sex þingmenn kjörna. Þegar fylgið er brotið niður á hvert kjördæmi eru líkur á að Jón Sigurðsson geti fengið úthlutað jöfnunarsætinu í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Fylgi Frjálslynda flokksins hefur ekki breyst frá því um helgi og segjast enn 5,4 prósent myndu kjósa flokkinn. Vikmörk eru 0,9 prósentustig. Samkvæmt því fengi flokkurinn þrjá jöfnunarþingmenn kjörna, en samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins á hvert kjördæmi ná þingmennirnir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður flokksins, og Sigurjón Þórðarsson ekki kjöri.

Íslandshreyfingin nær enn ekki nægjanlega miklu fylgi til að fá mann kjörinn. 2,6 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn, hálfu prósentustigi meira en um helgina. Vikmörk eru 0,7 prósentustig.


Bloggfærslur 11. maí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband