Enn ein nefndin!

beanSpurning að setja saman nefnd, sem fer yfir starfsemi annarra nefnda og reikni út gagnsemi niðurstaðna þeirra í ljósi t.d. launakostnaðar.

Og það merkilega er, að þessi nefnd hefur það hlutverk, að fylgja eftir tillögum fyrri nefndar um sama mál.

Og nú ætti RUV að gera nýja þáttaröð af Maður er nefnd-ur, og myndi þá aðeins fjalla um þá, sem setið hafa í nefndum hins opinbera. Þetta gæti verið á dagskrá svona næstum 20-30 árin.


mbl.is Framkvæmdanefnd skipuð vegna endurskoðunar örorkumats
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svindl og svínarí hjá Inter

Ótrúlegt! Í leiknum, sem gat tryggt Inter Ítalíumeistaratitilinn í fótbolta, var lítið um óvænta atburði. Menn létu sig detta og vældu síðan í dómaranum. Bara venjulegur fótboltaleikur á Ítalíu, eða er það ekki?

Hér er Adriano í aðalhlutverki. Maðurinn lætur sig greinilega detta til að fá vítaspyrnu. Óþverraskapur.

 


Beckham að meika'ða

beckhamJæja, nú er hið nýja félag Beckhams, LA Galaxy, að sjúgja spenann og það jafnvel áður en Beckham hefur spilað einn einasta leik með liðinu. Fjölgun í ársmiðasölu hefur verið gríðarleg, búningar og annað slíkt selst eins og heitar lummur, etc, etc. Beckham ætlar þá virkilega að borga sig upp og það áður en hann spilar einn einasta leik.
mbl.is Beckham með Real Madrid á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðni útilokar samasem áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum

gudniHann sagði það þó ekki beint, en sagði þó, að sumir innan flokksins (lesist: Guðni og félagar?) telji nóg komið. Jafnframt sagði hann, að Framsókn þyrfti að hafa 17-20% til að geta haldið núverandi samstarfi áfram. Það er vægast sagt mjög ólíklegt.

Niðurstaðan er því sú, að ný ríkisstjórn mun taka við í gamla tukthúsinu við Lækjartorg í sumar.


mbl.is Guðni: Sjálfstæðisflokkurinn virðist stikkfrí í umræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pútín bannar Bolsévíkaflokkinn - ræðst gegn lýðræðissinnum

imagesCAS4RTPGJæja, þá hefur Pútin hafið kosningabaráttuna fyrir komandi kosningar með því að láta sér ekki aðeins nægja að handtaka stjórnarandstæðinga, a la Mugabe, og banna þeim að vekja máls á kröfum sínum nema í miklu "hófi", heldur hefur hann nú bannað Bolsévíkaflokkinn".

Ástæðan ku vera sú, að Bolsévíkaflokkurinn, sem Pútin þjónaði (þ.e. kommúnistaflokknum gamla - sama tóbakið) dyggilega hér á árum áður, sé öfgaflokkur!!

Er þá flokkur Pútíns ekki öfgaflokkur, úr því hann ræðst gegn lýðræðinu aftur og aftur? Að vísu er þetta alveg rétt í sjálfu sér, að Bolsévíkaflokkurinn sé öfgaflokkur, en hvar vilja menn draga mörkin?Hvernig skal skilgreina öfgar í stjórnmálum?

Og mega menn ekki vera öfgasinnaðir ef þeir vilja?


mbl.is Rússneska leyniþjónustan boðar Kasparov til yfirheyrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekjuskattur of hár

ogmundurJæja, loksins alvöru skoðanakannanir.

Svo segirá mbl.is:

61% þeirra, sem sögðust ætla að kjósa Framsóknarflokkinn í komandi kosningum, taldi skattinn of háan, 78,0% þeirra sem ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 72,3% kjósenda Samfylkingarinnar, 64,9% kjósenda Vinstri grænna og 76,3% kjósenda annarra flokka. 95,1% aðspurðra tók afstöðu.

 

Ég vek athygli á, að Framsóknarmenn og VG-fólk er síst hrifnast af því að lækka skatta. Andstaða framsóknarkjósenda kemur mér á óvart, og líka hitt, hversu margir VG-stuðningsmenn vilja ekki skattahækkanir!


mbl.is Mikill meirihluti segir 35,72% tekjuskatt of háan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. apríl 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband