Og barnaperri fékk bara 18 mánuði??

Frekar skrítið allt saman.
mbl.is Sex ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðm. í Byrginu - nýr bissness?

oskudagur Varð að setja þetta inn!

Afturhallatregða í Ómari?

omar Jæja, Framtíðarlandið ætlar ekki að bjóða fram til Alþingis, eins og kom fram í gærkvöldi. En nú kemur Ómar Ragnarsson fram, og segir líkur á framboði umhverfissinna hafa aukist. Það væri óþarfi að kljúfa Framtíðarlandið, betra væri að koma fram með nýtt, óháð framboð umhverfissinna. En, allt í lagi, segjum svo, að framboð umhverfissinna komi úr skápnum. Hvaða flokkar græða og hverjir tapa?

Sumir segja, að slíkt framboð myndi helst taka fylgi frá Sjálfstæðisflokknum. Rökin eru þau, að þar innan húss séu margir hægri-grænir (eða hægri-græn, eins og vinstri-græn myndu segja), sem geti ekki kosið Steingrím Joð og co, en vilji leggja umhverfismálum lið sitt. Þeir gætu því kosið slíkt framboð.

En aðrir segja, og ég þar á meðal, að Vinstri grænir muni e.t.v. tapa mestu á slíku framboði. Rökin eru þau, að ólíklegt er, að 23% íslenska samþykki sósíalisma Vinstri-grænna, heldur sé a.m.k. helmingur þessa fólks fyrst og fremst umhverfissinnar og hafi engan annan vettvang en VG til að fá útrás fyrir þær hvatir. Með nýju framboði gæti fólk þetta, sem e.t.v. er staðsett á miðju stjórnmálanna eða verið opið í báða, ljáð óháðu umhverfisframboði atkvæði sitt, ekki síst þar sem margir eru hissa á VG, fyrir að hafa selt umhverfishugsjón sína fyrir súpudisk í Mosfellsbæ.

Ég held nefnilega, að sjálfstæðismenn muni ekki flykkjast til umhverfisframboðs. Rökin eru þau, að kjósendur Sjálfstæðisflokksins kjósa flokkinn vegna heildarlífssýnar hans: sjálfstæðisstefnunnar, þó fæstir séu sammála þingflokknum eða flokksforystunni um öll mál. Þeir gætu því varla farið að kjósa flokk, sem væri óskrifað blað í pólítíkinni. Hvaða afstöðu hefði t.d. umhverfisframboð í málefnum ESB og evrunnar, sjávarútvegs, velferðarmála? Ég held að sjálfstæðismenn muni ætla, að umhverfisframboð muni vísast taka sér stöðu á miðju litrófsins og verða eins konar b-lið Samfylkingarinnar í flestum málum. Og það er ekki góðs viti. Þeir munu því varla kjósa þetta framboð, nema e.t.v. i afar litlum mæli.

Ég ætla, að Samfylkingin muni græða allra mest á umhverfisframboði. Ástæðan er sú, að það tekur nær ábyggilega töluvert fylgi af Vinstri grænum og e.t.v. eitthvað fylgi frá Sjálfstæðisflokki. En ég efa, að margir kjósi Samfó vegna umhverfisstefnu flokksins, sem er mjög óljós og flöktandi, eins og alþjóð veit. Þar eð líklegt er, að umhverfisflokkur (t.d. undir nafninu Græningjar) fái ekki marga þingmenn, ef nokkra, gætu þessi atkvæði, sem annars hefðu nýst VG eða XD til uppbótarþingsætis, fallið niður dauð og gagnst Samfó, já og jafnvel Framsóknarflokknum.

Mér er þó til efs, að umhverfisframboð skili neinu. Eins-máls-flokkar hafa aldrei átt upp á pallborðið hjá þjóðinni. Hvað ætli frambjóðendur slíks framboðs segi um helstu álitamálin í þjóðfélaginu? Sumir eru með t.d. ESB, aðrir á móti, og erfitt að gera málamiðlanir. Slíkur flokkur yrði því hrærigrautur fólks með ólíkar skoðanir á flestum málum. Skipulagt kaos, eins og skáldið sagði. Og hvað ætlar slíkur flokkur að segja í t.d. heilbrigðismálum? "Setja sjúklingana í umhverfismat"? 

En að lokum vil ég rifja upp gamla vísu Flosa um Ómar, æðstaprest ultra-umhverfissinna á Íslandi:

Norðan fjalla Ómar er

afturhallatregur

Prúðan skalla skáldið ber

en skelfing kallalegur.

Og afturhallatregur merkir, að hann hafi þá verið hættur að taka bakföll af hlátri. En nú virðist hann vera orðinn afturhallatregur á fleiri sviðum. Spurning hvort nýja framboðið verði ekki kallað "Afturhallatregir umhverfissinnar"?


mbl.is Ómar Ragnarsson telur auknar líkur á framboði umhverfisverndarsinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fer allt eftir vindáttinni?

Jæja, sagan endalausa heldur áfram. Og eins og venjulega fara kratar fremstir í því, að elta þau mál, sem vinsæl eru, eða í umræðunni í þjóðfélaginu. Þetta er sama gamla sagan. Púður kratanna fer í að karpa um vinsæl dægurmál, í leit að fylgi. Þetta hefur ekki gengið hingað til, og mun ekki ganga. Kjósendur vilja stefnu, ekki vindhanagang.

En þó er sjálfsagt að ræða mál Byrgisins áfram, en óður kratanna í þessu máli er farinn að vera þreytandi. Maður fer að fá á tilfinninguna, að það sem að baki standi sé ekki aðeins umhyggja fyrir fórnarlömbum "Lille ven", heldur einnig, og hugsanlega enn frekar, tækifæri til að ráðast á stjórnina og skora punkta hjá þjóðinni, sem virðist ekki ætla að fá nóg af Byrginu...eða svo mætti halda.

En leyfum þó Össuri að njóta vafans. Þótt maður gruní, í ljósi "málflutnings" Samfó undanfarið, að Byrgismálið sé vatn, sem kratarnir vilja misnota í myllu sína, fær Össur að sanna, að þetta sé ekki bara lína í stjórnmálaleikriti Samfylkingarinnar.

En í öllu falli er Samfó flokkur sem berst með straumnum, eða reynir það. Hrekst þangað sem vindurinn blæs, allt vegna vinsældarleitar, sem er dæmd til að mistakast.


mbl.is Össur spyr um ábyrgð stjórnvalda gagnvart stúlkum í Byrginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

A la Jón Ólafsson

islamicjihad2Jæja, margt er skrítið í kýrhausnum. Nú hafa nokkrir Bandaríkjamenn, flestir með tvöfaldan ríkisborgararétt, ákveðið að höfða mál gegn palestínsku heimastjórninni vegna skotárása vígamanna Palestínumanna. Einn þeirra hefur nú fengið dæmdar bætur fyrir bandarískum dómstóli, 16 milljónir dollara, sem hækka í 48 milljónir vegna sérkennilegra bandarískra laga um bætur vegna hryðjuverka.

Málið er rekið í Bandaríkjunum, þótt brotið hafi átt sér stað "utan vítateigs", þ.e. á Vesturbakkanum. Lögmenn palestínsku heimastjórnarinnar (PA) mótmæltu í fyrstu og sögðu, að PA væri sjálfstætt ríki og því væri ekki hægt að lögsækja það með þessum hætti. Því var hafnað, í ljósi alþjóðalaga. Og nú fara Kanar af stað, og frysta eigur PA utanlands til greiðslu "skuldarinnar".

Persónulega finnst mér þetta mál fáránlegt, týpískt fyrir veruleikafirringu Kana. Ef menn ætla að flakka um átakasvæði, verða menn að taka með í reikninginn, að geta orðið fyrir hnjaski.

Þetta er farið að minna á mál Jóns Ólafssonar í Skífunni, sem stefndi Íslendingi í Englandi fyrir skrif á íslenskri vefsíðu. Stór mistök. Hann hefði e.t.v. frekar átt að reka málið í USA?


Lille ven og Byrgið: sagan endalausa

Þetta er nú orðinn merkilegur farsi, sem er vís með að koma mikið við sögu í næsta áramótaskaupi. Það var tilkynnt í gær, að 10 barnsfæðingar hafi átt sér stað eftir kynferðissvallið í Byrginu. Þetta er orðið alveg rosalegt. Maður spyr sig, hvort Guðmundur hafi í raun haldið, að hann kæmist upp með að hegða sér svona, burtséð frá því hvort hann sé faðir allra þessara barna eður ei. En manni verður óglatt að fylgjast með þessu úr fjarlægð.

En jæja, nú ætlar landlæknir að blanda sér í Byrgismálið og kannski ekki seinna vænna.


mbl.is Landlæknir vill koma að Byrgismáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíðarlandið býður ekki fram

Jæja, þá eru einu framboðanna færra! Spurning hvaða flokkar græða helst á því, að ekkert var úr þessu? Mig grunar, að Samfylkingin hagnist á þessu, eða Sjálfstæðisflokkurinn.

En þá er bara spurningin með hægri-grænt framboð Margrétar Sverrisdóttur, Ómars Ragnarssonar og e.t.v. fólks úr Framtíðarlandinu.

 


mbl.is Fellt á fundi Framtíðarlandsins að bjóða fram til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. febrúar 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband