Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Skoðanakönnun Gallups
Jæja, nú er varla hægt að segja, að skoðanakönnun sé hægrisinnuð, eins og margir kratar gerðu eftir skoðanakönnun Heims. Nú er það bara Gallup, næst mest elskaða fyrirtæki Samfylkingarmanna, sem gerði könnunina.
Niðurstaðan:
Sjálfstæðisflokkur á svipuðu róli.
Samfylkingin að fara niður í logum
Vinstri græn á uppleið.
Allt eru þetta þekktar stærðir úr síðustu skoðanakönnunum.
Og Framsókn fengi 9% sem er svipað og í síðustu könn.
En Framfaraflokkurinn fær líka 9% og hefur því jafnað hinn Fr. flokkinn.
Þessi skoðanakönnum virðist staðfesta:
Sjálfstæðisflokkur er með stöðugt fylgi um og undir 40%
Samfylkingin er með um 20% og á niðurleið.
Vinstri græn með um 20% og á uppleið.
F-flokkarnir tveir eru með um 10% og berjast um að falla niður í aðra deild.
![]() |
Vinstri grænir mælast með 21% fylgi í nýrri Gallupkönnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Sökudólgur Baugsmálsins fundinn!
Það er semsagt ÉG, Snorri Bergz. Í umræðu á blogginu mínu kom framkvæmdastjóri þingflokks Samfó með þessa merkilegu kenningu. Hann segir í andsvari við mig:
...þú leitar á náðir ritstjóra Moggans og "innmúraðra" valdamanna innan Sjálfstæðisflokksins sem sjá sér þarna leik á borði að ráðast að yfirlýstum óvinum "ónefnds manns".
Nú er ég aldeilis hissa. Össur ertu þarna? Ertu ekki formaður þingflokksins? Geturðu ekki reynt að leiðrétta blessað barnið?
En annars eru þessar spekúlasjónir kratanna merkilegar. Þeir koma aldrei fram með neinar sannanir fyrir því, að SJálfstæðisflokkurinn hafi staðið að baki Baugsmálinu. Þetta er farið að minna á Göbbels og málflutning hans. En hins vegar kom Jónína Ben fram með yfirlýsingu um, að það hafi einmitt verið formaður Samfó sem hratt málinu af stað. Og því svara kratar aðeins með því að gera lítið úr Jónínu, persónu hennar og trúverðugleika, og endurtaka það sem Baugsmenn sögðu: "Jónína er saklaust fórnarlamb". Já, Samfó virðist vera orðin endurvarpsstöð fyrir Baug, hið ágæta félag, sem ég á annars ekkert sökótt við. Síðan Framsókn var meira og minna málpípa Sambandsins, hefur enginn stjórnmálaflokkur gefið jafn sterklega í skyn, að hann væri á vegum ákveðins fyrirtækis.
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Grátlegt!
Leikurinn hrundi, eftir ágætis kafla þarna í síðari hálfleik. Greinilegt er, að Íslendingar eiga engin svört þegar
1) Andstæðingarnir eru mjög hávaxnir í vörninni
2) Óli Stefáns er tekinn úr umferð.
En þá er bara að taka Spánverjana. Úff, eftir þessar hörmungar þurfa menn að mæta heimsmeisturunum!
![]() |
Íslendingar leika um 7. sætið eftir tap fyrir Rússum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Klósettstríð í Palestínu?

![]() |
Fjórir féllu í hörðum átökum á Gasasvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Ríkissjóður stendur vel
Eins gott. En hvað myndi gerast, ef vinstri flokkarnir tækju við? Þá yrði þessu spanderað með ofurhraða og allt færi í kaldakol aftur. Sú er a.m.k. raunin af vinstri stjórnum hingað til.
![]() |
Ríkissjóður innheimti 126 milljarða í skatta á síðasta ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
En Jónína sagði meira!
Hún sagði líka, að það hafi verið Ingibjörg Sólrún, sem hratt af stað þessari atburðarás, sem nefnd hefur verið Baugsmálið, þegar ISG bauð henni í mat í Apótekinu til að ræða um svindlið og svínaríið hjá Baugi! Já, sama Ingibjörg og reynir nú að klína þessu máli á Sjálfstæðisflokkinn.
Ég hreinilega skil ekki hvað tæp 20% þjóðarinnar er að hugsa. Ingibjörg er gjörsamlega ótrúverðug. Algjörlega ófær um að verða t.d. forsætisráðherra.
En ég vona að Ingibjörg haldi fleiri ræður. Hún virðist snillingur í, að klúðra málum í hverri ræðunni á fætur annarri.
![]() |
Jónína Benediktsdóttir segir að tölvupóstar í olíumálinu hafi lekið út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Merkilegar staðreyndir um 20 forseta Bandaríkjanna.
http://encarta.msn.com/encnet/features/lists/default.aspx?Article=uspresidents
Margt af þessu er mjög fróðlegt, t.d. hvers vegna Abe Lincoln var með pípuhatt, um nektarsund eins forsetans í Potomac, skólagönguleysi Andrews Johnsons, og margt fleira.
Mjög skemmtileg lesning.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Ekki-frétt
Af hverju er verið að birta þetta? 'A að hundelta manninn alls staðar. Það hafði birst, að Guðm. ætti að mæta hjá sýslumanni. Því skil ég ekki hvað er svona fréttnæmt við þetta.
Það hefði hins vegar verið frétt, hefði Guðmundur ekki mætt.
![]() |
Guðmundur mætti til skýrslutöku laust fyrir hádegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Jæja, betra en ekkert.
Mér líst nú ekkert illa á þetta svosem. Og ágætt að setja Kjartan í þetta djobb, hann er röggsamur drengur með bein í nefinu. Hann á vísast eftir að gera þarna góða hluti.
![]() |
Veittar verða 218 milljónir í aukið umferðareftirlit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. febrúar 2007
Don´t Mess With Tony
Ég sé fyrir mér, að körfuboltaliðin séu þegar farin að bera víurnar í hann og tryggja sér þjónustu hans í framtíðinni. Hér á Íslandi voru menn nýlega að segja, að það vanti stóra leikmenn í skyttustöður í landsliðinu í handbolta.
Hvernig væri nú, að bjóða þessari fjölskyldu hingað, gera þau íslensk, og láta strákinn spila handbolta.
![]() |
Barn í ofurstærð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)