Eiður skoraði í 3-0 sigri Barcelona

Og kappinn var inná allan leikinn, meðan t.d. Eto'o og Messi voru báðir teknir út, sá síðarnefndi í hálfleik.

Sjá; http://soccernet-akamai.espn.go.com/match?id=226512&cc=5739

Eiður skoraði þriðja mark Börsunga á 62. mínútu. Glæsilega gert hjá stráknum, sem er allur að koma til með Barcelona.

Og bæði Ronaldinho og Deco á bekknum, svo og margar stjörnur.
mbl.is Eiður í byrjunarliði Börsunga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uptown girl

Jáhérnahér. Þetta er aldeilis frábært. Og hún á þetta svo sannarlega skilið. Syngur eins og engill og lítur út fyrir að vera einn slíkur.


Til hamingju
mbl.is Dísella syngur með Billy Joel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað tíminn líður hratt á Gasa

"Fyrir hálfu ári sigruðu samtökin í kosningum og náðu völdum á Gaza. Leiðtogar samtakanna ítrekuðu á útifundi í dag heit sín um áframhald vopnaðrar baráttu gegn Ísrael. " mbl.is


Vá, fyrir aðeins hálfu ári sigruðu Hamas-samtökin í kosningum og náðu í framhaldinu völdum á Gasa. Einmitt. Wink


Hvaða gaur skrifaði þetta eiginlega? A.m.k. einhver sem er greinilega EKKI skynsamari en skólakrakki. Hvar hefur hann haldið sig síðustu árin? Í Bandaríkjunum?
mbl.is Tugþúsundir fagna afmæli Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsamari en skólakrakki???

Ok, sjáum til. Í hugum margra Bandaríkjamanna er eiginlega ekki neinn heimur til fyrir utan Bandaríkin. Þess vegna eru landamæraverðirnir svona fáfróðir um heiminn fyrir utan og margt annað, eins og ég og fleiri hafa reynt. Til dæmis var sá landamæravörður sem ég lenti í ekki nein sérstök mannvitsbrekka, vissi ekki hvað "kilogram" var.

Og hér er skynsamari en skólakrakkamyndband frá USA. Ótrúlegt, en þetta gæti m.a. útskýrt af hverju Erla fékk svona agalega meðferð í USA.

 

og hér er smá yfirlýsing Bandaríkjamanns:

 

og eitt dæmi enn.

 


4 eða 400 ára fangelsi?

Já, á Íslandi hefði hann fengið max 4 ára dóm, ef ekki minna, fyrir þennan glæp, en yfir 400 ára dóm í USA.


OK, refsingar eru of stuttar á Íslandi, en hitt segir meira en margt annað um USA.


mbl.is Dæmdur í 438 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JFK málið

Þetta er hið besta mál. Kominn tími til að umheimurinn viti að bandarískir landamæraverðir eru greinilega ekki með öllum mjalla og kerfið þar í kring er rotið.


Bandarískir landamæraverðir og öryggisverðir á flugvöllum er ótrúlega stressaðir og sjá terrorista í hverju horni. Í framhaldinu beita þeir óþarfa hörku, jafnvel þegar ljóst er að engin hætta steðjar að.


Persónulega vil ég sjá Kanana borga Erlu skaðabætur. Svona framkomu á ekki að líða. En þetta voru hins vegar engin "mistök", heldur er systemið svona ruglað í USA.

Land frelsis og heimkynni hinna hugrökku? Nei.


Land skrifræðis, ofbeldis og hugleysis.
mbl.is Mál Erlu Óskar vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dónaleg bílnúmer

Jahérna. En jæja, samt sleppur eitt númer, eða númeraupphaf, sem ég hefði viljað sjá burtu vegna dónaskapar, það eru upphafsstafirnir KR. Smile
mbl.is Blátt bann við dónalegum bílnúmerum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband