Föstudagur, 9. nóvember 2007
Hvala-skoðun vinsæl
Nú, jæja, ég hafði ekki áttað mig á því, að sérstök fyrirtæki hefðu verið stofnuð um lestur þessarar fátæklegu síðu minnar, http://hvala.blog.is, eða öllu heldur "skoðun" síðunnar.
Kannski eru þessi fyrirtæki á vegum óvandaðra manna, sem vilja finna eitthvað misjafnt á síðunni og skoða hana því rækilega. Eða kannski er svona mikill áhugi fyrir þessu bulli mínu, að menn hópist saman til að skoða hana.
Og eitt af þessum hvala-skoðunarfyrirtækjum hefur nú hlotið verðlaun! Sko! Glæsilegt.
Eða kannski er ég að misskilja eitthvað hérna....
![]() |
Hvalaskoðunarfyrirtæki fékk nýsköpunarverðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. nóvember 2007
Styð kröfur stúdenta
Ég hef frá upphafi verið meðal þaulsetnustu manna á Þjóðarbókhlöðu, og það þrátt fyrir að vera búinn með námið. Ég hef bara margt að gera þarna.
Fólkið þarna er fyrsta flokks, frábært afgreiðslufólk og allt í fínu lagi, að mínu mati, nema hvað opnunartíminn er of stuttur. Alltof stuttur! Og þá er ég ekki aðeins að tala um almennt rými, heldur ekki síður Þjóðdeild.
En þetta er ekki safninu að "kenna", heldur eru fjárframlög naumt skömmtuð. Mér finnst að Ríkið ætti nú að standa almennilega að þessu og tryggja, að það sé hægt að halda safninu opnu frá 8.15-11 á virkum dögum, og 9-17 (eða 19) um helgar, og þá bæði almennt rými og Þjóðdeild.
En ég tek ofan hattinn minn fyrir starfsfólki Þjóðarbókhlöðu, jafnvel honum Eddni. :)
En ég vorkenni líka stúdentunum að þurfa að hanga þarna. Miklu betra bara að leigja sér litla skrifstofu úti í bæ, nokkrir saman. Þarf ekki að kosta mikið.
![]() |
Krefjast þess að Þjóðarbókhlaðan verði opin lengur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 9. nóvember 2007
Boðorð mafíunnar
Sú mafía, sem ég er einna tengdastur, kallast Hellismafían og ku víst stjórna skáklífi á Íslandi, beint eða óbeint. Mafía þessi er mjög oft nefnd á umræðuhorni skákmanna, aðallega af mönnum sem er uppsigað við Helli. Einnig nota Hellismenn þetta sjálfir, í gríni.
En nú var ég að finna hin 10 boðorð Hellismafíunnar og birti hérmeð:
Reglurnar 10 eru eftirfarandi:
- Enginn getur gengið í Hellismafíuna, nema með leyfi Don Gunzós.
- Aldrei horfa á eiginkonur annarra mafíósa.
- Aldrei láta sjá sig í návist TR-inga, nema á skákmótum.
- Fara sem oftast á krár og klúbba.
- Alltaf vera til þjónustu reiðubúinn því Hellir Nostra er skylda - jafnvel þótt eiginkonan sé í þann mund að fæða barn.
- Mæta verður á alla fundi sem boðað er til.
- Sýna verður Don Gunzó og Don Húnó virðingu.
- Þegar óskað er eftir teoríum verður svarið að vera sannleikanum samkvæmt.
- Ekki má ráðstafa peningum sem tilheyra öðrum eða öðrum taflfélögum.
- Fólk sem ekki getur tilheyrt Hellismafíunni: Hver sá sem á nákominn ættingja í TR, hver sá sem á náinn ættingja í briddsi, hver sá sem hegðar sér illa og virðir ekki siðareglur og gildi.
![]() |
Lögreglan finnur 10 boðorð mafíunnar á Sikiley |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 9. nóvember 2007
TR bendlað við verðlagseftirlit!

En ég get fullvissað lesendur og skákáhugamenn um, að Taflfélag Reykjavíkur, þ.e. TR, stundar ekki verðlagseftirlit, hvorki á tannlæknum né öðrum.
![]() |
Tannlæknar sætta sig ekki við verðlagseftirlit TR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. nóvember 2007
Einni stærstu torrent síðunni í USA var lokað
Þá er ég að tala um www.demonoid.com, en þar er uppspretta torrenta, sem dreift er víða um vefinn, og vísast einnig á istorrent.
Ég frétti af vandræðunum hjá demonoid.com og sló þetta inn í morgun. Þá kom upp eftirfrandi:
"The CRIA threatened the company renting the servers to us, and because of this it is not possible to keep the site online. Sorry for the inconvenience and thanks for your understanding."
Það er semsagt búið að loka demonoid.com og þarmeð verður vettvangur torrent-smiða takmarkaðri. En vísast færa þeir sig á aðrar síður, en a.m.k. er þetta sú leið, sem rétthafar í USA eru greinilega farnir að nota: Í stað þess að loka síðunni, fara menn "all in" á þau fyrirtæki, sem skaffa þessum síðum servera.
![]() |
Styr um Torrent.is |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 9. nóvember 2007
Veðrið
En nú er veturinn kominn, formlega a.m.k. Og lítið bólar á snjónum, þó það hafi komið smá föl um daginn. En kannski er maður orðinn góðu vanur?
En veðrið er a.m.k. orðið þannig, að e.t.v. þarf maður ekkert að vera að þvælast á þessum bílskrjóð sínum mikið lengur. Ég er farinn að gæla við að fjárfesta í reiðhjóli og vaða þannig um göturnar, enda fer ég voðalega lítið orðið nema að heiman, þaðan á skrifstofuna og aftur heim. Þjónustan er öll í næstu húsum við skrifstofuna, og T.R. er þar líka og ræktin!
En sjálfsagt verður ekki mikið úr slíku, frekar en venjulega. En þetta a.m.k. draumur...og menn þurfa að hafa drauma...það sagði a.m.k. Marteinn Lúter konungur.
![]() |
Breytileg átt og slydda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)