Sama framsóknarfárið

Jæja, Björn Ingi og Valgerður Sverris hefðu kannski átti að hafa aðeins hærra. Ef til vill hefðu þau átt að fara sér hægar þegar þau hófu hlakkandi að reyna að skjóta í fætur annarra.


Slysaskot á Hverfisgötu? Greinilega.

Skot í eigin fætur...æjá, framsóknarmenn virðast ekki ætla að takast að benda á aðra til að beina sjónum fólks frá þeirra eigin ruglingshætti.

Eða kannski voru þau bara að hylma yfir með Alfreð. Maður hefur hann einhvern veginn alltaf grunaðann um að standa að baki, þegar framsóknarmenn gera eitthvað spúkí og óviturlegt í borgarmálum.


Ég legg til að framsóknarmenn hætti þessum sandkassaleik og fari að snúa sér að pólítík eftir langt hlé.






mbl.is Geir segist ekki hafa lagt blessun sína yfir samruna REI og GGE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innkölluð eldhús

Vonandi verða engir svangir á meðan þeir hafa engin eldhús?

 



En jæja, hefði kannski verið sniðugra að nefna í titli, að hér væri um að ræða leikfangaeldhús, þó flestir kannist vísast við FP.

En slíkt kemur aulum eins og mér færi á að koma með lélegan aulahúmor.


mbl.is Yfir 172 þúsund eldhús frá Fisher-Price innkölluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað gerir Framsókn í tapaðri stöðu?

Við skákmenn vitum að í  tapaðri stöðu grípa menn til ýmissra örþrifaráða. Þá hafa menn engu að tapa.


Framsóknarflokkurinn virðist vera í slíkri stöðu núna. Hann hefur engu að tapa, hann getur varla farið neðar, enda er kjörfylgið ekki svo mikið hærra en fjöldi flokksmanna.


Ég hef ekki nennt að kynna mér málavöxti í þessu stóra REI máli, sem vísast verður hlegið hressilega að í næsta áramótaskaupi. En í mínum huga ættu framsóknarmenn ekki vera að hafa það of mikið í flimtingum. Í mínum huga ættu Björn Ingi og co að ræða sem minnst um aðdraganda þess, að fyrrv. borgarmeiri hluti sprakk.


Og Valgerður ætti að hafa lægra þegar kemur að orkumálum. Mjög margir, t.d. meðal samverkamanna Binga í borgarstjórn, eru ekki mjög sáttir við forsögu hennar.


En gaman að sjá hversu framsóknarmenn eru baráttuglaðir núna þegar þeir eru komnir með bakið upp að veggnum...með ekkert að tapa, nema e.t.v. síðasta sneflinum af trúverðugleika.

En hvaða ástæða lá að baki tapaðri stöðu Framsóknarflokksins? Léleg stefna? Æ, ég er ekki svo viss um það. Lélegir frambjóðendur eða léleg forysta? Kæmi ekki á óvart.


En hins vegar þekki ég marga góða framsóknarmenn, sem því miður hafa verið teknir niður í fallinu.
mbl.is Valgerður: Sextettinn verður að leita að nýrri ástæðu fyrir tapaðri stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var að velta fyrir mér...

...hvort nú komi nýtt "múhameðsteikningamál" upp í Danmörku. Ég skil ekki í öðru en að íslenska ríkisstjórnin muni harðlega mótmæla þessari háttsemi Danana, sem voru hér klárlega að hæðast að forseta Íslands og Bónus / Baugi, óskabarni þjóðarinnar.
mbl.is Hundruð grísa sveltir í hel í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nöfn, skammstafanir og álitamál

Ég hef í mörg ár djókað með það, að Tryggingastofnun ríkisins skuli kalla sig TR. Elsta félagið eða stofnunin, sem hefur þessa skammstöfun, er Taflfélag Reykjavíkur, stofnað um aldamótin 1900. Síðan þá hefur félagið verið skammstafað TR og er því hið "upphaflega" TR.

 

Og til að fyrirbyggja misskilning, hefur Taflfélag Reykjavíkur ekki birt verð hjá tannlæknum, enda telur stjórn félagsins það ekki í verkahring þess.


Vildi bara koma þessu á framfæri.


mbl.is Álitamál hvort hlutverk TR sé að birta verð hjá tannlæknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neytó og tollurinn

Já, þessar upphæðir eru hlægilegar. Maður getur varla keypt sér rakvélablöð, þá er maður kominn í mínus.


En nú er ég á leiðinni til Serbíu þriðja árið í röð á skákmót. Þar má kaupa jóladæmið ódýrt! En um að gera að hafa kvittanirnar til reiðu, því annars færu t.d. leðurskór, sem kosta kannski 1-2.000 þarna suðurfrá, á 20.000 kall í tollinum og maður gæti þurft að borga 5.000 kall í toll af skóm sem kostar 2.000.


Þetta nær auðvitað engri átt.

Viðmiðunarupphæðina ætti að hækka í amk 100.000 kall.
mbl.is Jólafötin tekin í tollinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband