Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Afsökunarbeiðni til lesenda
Æ, meira bullið í manni.
En ég er bara svona. Ég er semsagt snorrískur, sem mér skilst að útleggist sem "léttgeggjaður með alvarlegu ívafi".
En ég ætla ekki að breyta mér í neinn annan (og sérstaklega ekki í nöldurgjarnan sósíalista eða bitlingafúsan framsóknarmann) og skríð með það í skjól stjörnuspárinnar í dag.
Stjörnuspá
Hrútur: Þú ert einstakur. Heimurinn vill frá þér það sem aðeins þú getur gefið honum. Eða eins og Billie Holiday sagði: "Ef ég á að syngja eins og einhver annar, get ég alveg eins sleppt því".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Klónun framundan?
Ok, afsakið, en ég gat ekki staðist það, að lauma eftirfarandi. Þetta er ekkert illa meint!
Úr því að nú er hægt að fjölfalda apa er ljóst, að framsóknarmönnum muni fjölga verulega á næstu árum.
Úbbs, sorry.
![]() |
Vísindamenn segjast hafa einræktað fósturvísi úr apa í fyrsta sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Elliheimilinu lokað
En ætli við náum að forðast stórtap? Og ætli Óli Jó nái einhverju nýju úr liðinu?
![]() |
Helveg ekki með gegn Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Til hvers að giftast tík?
Já, margir karlmenn hafa spurt sig þessarar sömu spurningar. Sumir hafa þó látið verða af því, m.a. nokkrir frægir leikarar í Hollywood!
Að vera giftur bitch er kannski ekki það eftirsóknarverðasta, en þessi Indverji var greinilega mjög staðfastur í ákvörðun sinni.
![]() |
Giftist hundstík til að aflétta bölvun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Vá big deal
En gaman fyrir strákinn að komast á blað og spila allan leikinn. En voðalega erum við æst í stráksa, fyrirliða lélegasta landsliðs Íslands í mörg, mörg ár.
![]() |
Eiður Smári skoraði í sigurleik Barcelona |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Höfði greinist með sykursýki
Mér líst vel á þetta framtak. Allskonar hópar eða hagsmunasamtök "eiga" ákveðinn dag ársins og af hverju ekki sykursjúkir?
Það er ekki eins og að þetta sé fágætur sjúkdómur, heldur plága, sem hefur riðið yfir heiminn á síðustu áratugum, sérstaklega, en hefur auðvitað lengi verið til og á það jafnvel til að vera ættgengur.
Með aukinni offitu, sérstaklega í Vestur-Evropu og í Bandaríkjunum, mun sykursýki breiðast hratt út á næstu misserum, það er ég alveg viss um. Það er um að gera fyrir þá, sem gruna að þeir hafi fengið þetta, að fara strax til læknis. Það sparar óþarfa leiðindi og er þess aðeins valdandi, að erfiðara verður að meðhöndla sykursýkina, þegar hún að lokum uppgötvast.
Gott "próf" er að kaupa sér bland í poka fyrir 200 kall, hlaup og svoleiðis drasl, og hakka þetta í sig. Ef menn fá svima eða líður skringilega er ljóst, að næsta skref er að leita læknis og fara fram á sykursýkisrannsókn.
Sykursýki á ekki að vera neitt feimnismál. Framsóknarstrákurinn frá Sigló kom fram hér í haust og sagði frá þessu opinberlega. Fleiri mætti koma fram og lýsa reynslu sinni af sykursýki, til dæmis hér á blogginu.
Ég get nú bara sagt það fyrir sjálfan mig, að þegar ég lét loksins verða af því að fara í skoðun hefur líf mitt breyst. Ég hef miklu meiri orku og úthald; ég er ekki þreyttur allan daginn eins og áður. Nokkrar pillur á dag koma heilsunni í lag!
Insúlin, já takk.
![]() |
Höfði blár í þágu sykursjúkra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)