Laugardagur, 6. október 2007
Ömurlegt
Jæja, þetta er fallegur dagur, eins og Bubbi söng, en engu að síður ömurlegur.
Allt gekk á afturfótunum.
Hjá okkur T.R.ingum fór illa. Hannes samdi snemma á fyrsta borði, en það var líka allt of sumt.
Nataf lék niður unninni stöðu í tímahraki gegn Naiditsch muppetinu, sem var smekklega beðinn að hafa sig hægan af ónefndum Íslendingi á sama móti í fyrra fyrir herfilegan dónaskap og svívirðingar í garð Íslendinga og íslenskra skákmanna. Hann hefur haldið sig fjarri Íslendingum þetta skiptið.
Þrölli tefldi eina af þessu bitlausu byrjunum og var píndur fram eftir degi.
Stebbi fékk yfirburðastöðu úr byrjuninni gegn Tregubov, en lék illilega af sér í tímahrakinu líka.
Addi fékk ágæta stöðu, en lék herfilega af sér í einum og tjaldið féll.
Jón Viktor fékk erfiða stöðu úr byrjuninni en fórnaði skiptamun. Hann átti a.m.k. einu sinni þráleik til jafnteflis, en gallinn var, að hann var þá að falla á tíma og lék fyrsta skynsamlega leiknum sem hann sá. Þar fór hálfur í súginn.
Stórmeistaralið Clichy var vitaskuld sigurstranglegra enda mun stigahærri liðsmenn á öllum borðum. En samt.
Þetta er súrt. 3-3 hefði verið eðlileg úrslit miðað við stöðurnar, en aðeins hálfur vinningur kom í hús. Roar, hverjum ætli ég skipti út af á morgun?
Hellismenn voru varla skárri, en þeir tefldi við lið sem var jafnt þeim að styrkleika og 3,5, hefði kannski verið eðlileg úrslit fyrir Helli, eða amk ásættanleg. Robbi samdi fljótlega í steindauðri stöðu, en Sig. Daði slátraði sínum andstæðingi. Aðrir fóru niður í logum og sáu vart til sólar
1,5 - 4,5 gegn þessu liði er semsagt algjör hörmung líka.
Ömurlegur dagur.
Það eina góða við daginn er, að það var talið hér af ákveðnum aðila, að ég væri 27 ára með "good face"...en meira segi ég ekki um málið.
En vonandi koma menn úthvíldir og tilbúnir í slaginn á morgun.
Því fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Strákarnir fóru í bæjarrúnt eftir matinn, en ég verð eftir á hótelinu af skiljanlegum ástæðum. Over and out. Áfram Ísland.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 6. október 2007
Æ, en leiðinlegt
Kveðjur til Norðlendinga héðan frá Miðjarðarhafsströndum, í 30 stiga hita og glampandi sól, og með Önnu Sharevich í bíkiníi, flatmagandi í næsta sólstól.
Áfram Ísland
![]() |
Fyrsti snjórinn á Norðurlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 6. október 2007
Hádegi
Jæja, ég fór með Uglunni í bæinn áðan, en það var kominn hraðbankavöntun í drenginn. Við fórum síðan á ströndina, en stoppuðum í stóru lauginni, þar sem við hittum Ostinn og Skjaldbökuna. Turtlið varð eftir við laugina en við hinir fórum á ströndina, vorum þar smá en fórum síðan á laugarbakkann, þar sem Barbi kom líka.
Maður er bara rétt skriðinn heim og nú er það matur. Og síðan verða muppetin máluð í dag.
Áfram Ísland
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. október 2007
Merkilegar myndir
Var að horfa á umfjöllun um þetta mál og upprifjun á aðdraganda brúðkaups Díönu og Eyrnastórs ríkisarfa á CNN í morgun og gærkvöldi. Þetta er allt mjög merkilegt.
En gott að reyna að komast að hinu sanna í eitt skipti fyrir öll og vonandi að það takist.
![]() |
Áður óbirtar myndir af Díönu prinsessu vekja athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. október 2007
4.dagur í Antalyu
Jæja, ég ætla bara að vona að einhver ferðaskrifstofan heima á Íslandi fari nú að selja ferðir hingað til Kemer. Þetta er draumastaður.
Í gærkvöldi voru tvær eða þrjár "útihátiðir" á hótelinu. Ein rosalega flott rétt hjá slotinu mínu og stóð fram á nótt. Hin var á útisviðinu, þar sem Moulin Rouge var sett upp, okkur Íslendingunum að vísu til lítillar hrifningar.
Og á eftir var lifandi músík spiluð frameftir nóttu. Og ef menn hefðu enn viljað skemmta sér var diskótekið opið til þrjú, skilst mér.
Ég fór heim um miðnætti og slakaði aðeins á í "svítunni". Það hafði verið fámennt, amk hvað Íslendinga varðar, á útikaffihúsinu við útisviðið. Menn voru þreyttir og lúnir og tóku því rólega.
En nýr dagur er runninn upp, sólríkur og fagur. Ég vaknaði snemma og fór í breakfastið eins og venjulega. Á eftir tekur við skylduverk, eins og að lóðsa liðsmenn TR niðrí hraðbanka, sem er í þorpinu sjálfu, ekki innan hótelsins. Það er eiginlega það eina sem vantar hér á hótelið. Einnig þarf að sinna administrative liðsstjóraskyldum og einstaka smáverkefnum, eins og að vekja liðsmenn á ákveðnum tímum, osfrv, tékka andstæðingana í dag, osfrv.
Við fengum viðunandi úrslit í gær, 5-1, en Hellismenn töpuðu 0,5 - 5,5,. Robbi var sá eini sem náði punkti, eða eiginlega var það öfugt, því hann var með kolunnið tafl. Þar eð Robbi gekk til náða mjög snemma náði ég ekki að spyrja hann út í þetta, en mér skilst að hann hafi jafnvel átt vinningsleið í lokastöðunni, en mótherji hans hafði þráleikið. Rúnar Berg tefldi afar vel í gær og fékk gott hrós frá andstæðingi sínum. Ég fylgdist ekki nógu vel með öðrum skákum til að geta commentað.
Hjá okkur var þetta frekar þægilegt. Við náðum ágætis stöðum upp á flestum borðum, nema hvað þetta leystist upp í jafntefli á 2 efstu borðunum. Þrölli vann fljótlega eftir Sozin afbrigði í Sikileyjarvörn. Stefán tefldi Paulsen og fékk á sig jafnteflisvaríant, en fórnaði peði fyrir að halda taflinu gangand og vann Baunann að lokum.
Addi átti frekar auðveldan dag og þurfti að hafa voða lítið fyrir þessu, þó hann hafi samt verið síðastur að klára, en þá hafði hann haft unnið nokkuð lengi. Jón Viktor fékk upp "svona Bg7 stöðu" eins og hann segir sjálfur, þ.e. ákveðna útgáfu af Maroszy Bind, en með Réti útfærslu.
Í dag fáum við TRingar sterka sveit Clichy frá Frakklandi með stórmeistara á öllum borðum, og suma hverja jafnvel mjög sterka. Liðsskipun liðsstjóra er semsagt, að semja á fjórum efstu og vinna á tveimur neðstu! Allt í lagi að vera bjartsýnn!
Hellismenn eiga spænska sveit, sem Húnninn hefur lofað að "væóleita". Vonandi að það takist.
En jæja, kveðjur héðan frá Antalyu. Klukkan hér er 9, sex að ísl. tíma. Over and out.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. október 2007
Ég skal þá játa lyfjanotkun líka
Frá því ég var drengur hef ég neytt koffeins í ríkum mæli á meðan á skákum hefur staðið og er ég viss um, að sú neysla hefur bætt árangur minn.
Ég bið Íslendinga formlega afsökunar.
![]() |
Marion Jones baðst grátandi fyrirgefningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)