Tyrkjarán eða...?

Ég sá ekki þennan leik, en ég var að kenna á meðan á þessu stóð. Og ég hefði heldur ekki nennt að horfa á leikinn, þótt ég hefði ekki haft neitt sérstakt að gera.


Sko, það er nógu leiðinlegt að horfa á Liverpool á Anfield, en að horfa á Liverpool á útivelli er hreinasta pína.


Gott hjá Tyrkjunum. Fínt að brjóta Púlarana aðeins niður fyrir leikinn á sunnudaginn.


mbl.is Liverpool lá í Istanbul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vantar nauðsynlega hraðlestir á Íslandi

Til dæmis á milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Ekki aðeins til þess að flugfarþegar verði snöggir á völlinn eða heim (á einfaldan og þægilegan hátt), heldur mætti selja svona einhleypingaferðir til að hafa nú fleira fólk þarna en annars.


Nú, eða framhjáhaldaferðir fyrir gifta, gleðiferðir fyrir samkynhneigða, rómantískar ferðir fyrir einstæða eldri borgara, nú eða bara bíóferðir fyrir krakka.


Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.


mbl.is Stefnumót í hraðlest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skeinipappírssölumennska

Það hringdi í mig ágætis náungi í gærkvöldi og vildi selja mér skeinipappír. Ég fengi hann ókeypis í nóvember, ef ég myndi skrá mig. Þennan skeinipappír yrði ég að prófa.


Ég hef nú tekið ágætis syrpur á Svíanum, eins og dyggir lesendur þessa bloggs muna, en hingað hef ég ekki verið í miklum vandræðum með pappírinn. Ég á semsagt til alveg nóg af slíkum.


Það sem verst er, við þessa tegund af skeinipappír, að þar er oft innbyggð skítafýla sem oft á tíðum er yfirgengileg og veldur manni ógleði.


Þessi nýja tegund skeinipappírs er mér semsagt ekki til gleði. Mér er alveg sama þó tegundin komi út flesta daga vikunnar og fáist afhent heim til manns, ég segi bara nei takk.


Og þá breytir engu þótt hún hafi skipt um ritstjóra.


Því DV er og verður DV, hvort sem skítafýlan er af fullum styrk eða bara "light", eins og núna.






Gjöldin burt?

Það er kominn tími til. En mun þetta takast?


Ég vona það. Þessi gjöld eru skandall, sem þarf að lagfæra. Við, fólkið í landinu, þurfum nóg að borga fyrir, þó þessi smán sé ekki innheimt af okkur reglulega.


Jæja, kannski að Bjöggi ráðherra sé ekki eins slæmur og Evrópusambandsástarsamband hans gefur til kynna? :)

mbl.is Vörugjöld, stimpilgjöld og uppgreiðslugjöld afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rekum Eyjólf

Í venjulegum löndum hefði hann verið rekinn fyrir löngu.


Ég held að Jolli ætti að byrja á að þjálfa lið á Íslandi, áður en hann þjálfar landsliðið. Gæti byrjar á Tindastóli, og síðan unnið sig upp.


mbl.is Eru landsliðsmennirnir óánægðir með Eyjólf?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efni í fína einkaþotu

Spurning hvort Baugur eða Björgólfsfeðgar verði fyrri til að kaupa sér svona eintak. Ég meina, þeir síðarnefndu þurfa svona stórt flykki til að flytja vini sína á leiki West Ham.
mbl.is A380 í fyrsta farþegaflugið á fimmtudaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7-0

Maður var nánast orðlaus í gær, að horfa á leikinn hjá Arsenal og Slavia. Og Arsenal hefði getað skorað fleiri mörk, ekki vantaði færin, en merkilega nokk kláraðu Arsenal menn færin sín betur nú en oft áður.


Gaman að sjá Walcott koma svona sterkan inn. Og Cesc var frábær að venju og Hleb heldur áfram að spila afburða vel, sér í lagi miðað við frekar slakt tímabil í fyrra. Hvergi var veikan blett að finna hjá Arsenal.


Til hamingju strákar og allir Arsenal menn.


mbl.is Arsenal skoraði 7 mörk gegn Slavia Prag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband